Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 36

Eir - 01.01.1900, Blaðsíða 36
3« reynslan sýnir, að rneð óreglunni fylgir sjúkleiki, sem siná- ýfist með köflum og stundum svo, að sjúkiingurinn tekur aldrei á heilum sér. Af hverju skyidi nú þetta koma? Því verður ekki svarað sem nægir, sökum þess, að vér vituin harla lítið hvernig á því stendur, að kvennmaðurinn missir þetta hióð á reglubundnum tímum. Sumir eru nú farnir að hallast að þeirri skoðun, að eitthvert skaðvænt efni, jafnvel eiturefni, væri í tiöablóðinu og að þessu efni væri þá um að kenna lasleik- inn, sem fylgdi tíðateppunni; hver skal segja, nema þessi skoðun hafi við góð rök að stvðjast, og að mönnum takist að komast að sannleikanum. Hér skal ekki farið út i að telja alt það upp, sem álitið er að geti orsakað þennan kvilla, heldur að eins enn þá einu sinni livetja kvennfólkið til að bera mikla umhyggju fyrir því, að forðast alt það, sem komið getur óreglu á þessa rás blóðs- ins og sérstaklega að standa ekki í votu á sumrin við hey- vinnu, og umfram allt fara varlega um það leyti, sem þær eiga að hafa á klæðum. Ég býst við því, að mér verði svarað þessu: „hvernig getur stúlkan komist hjá því að standa í votu við heyskap ?“ Svarið er, hún á að vera í tvennum sokkurn og góðum skinnsokkum, sem nái upp undir hné og þar eð margar eru fátækar og hafa ekki ráð á að eignast skinnsokk- ana, ætti húsbóndinn að leggja stúlkunni þá til, skoða það skyldu sína, ef hann lætur stúlkuna vinna verk fyrir sjg á vot- engi; að öðrum kosti hefir hann það á sinni samvizku, að hún fái aldrei fulla heilsu síðar meir. Ég hefi stöku sinnum oi'ðið þess var, að stúlkunum finst það einhver vanvirða að vera í skinnsokkum, en þetta er herfilegur misskilningur. Er ekki heilsan dýrmætust af öllu? Mikil heilsubót hlyti það að vera fyrir islenzku kvennþjóðina, ef bændur létu aldrei kvenn- me n fara á votengi nema í skinnsokkum og teidu það skyhlu sína, að hlífa þeim við verkum, þegar illa stendur á fyrir þeim. Ég þykist reyndar sannfærður um, að allir góðir livs- bœndur mundu orðalaust gera þetta fyrir kvennfólkið, ef þær hefðu uppburði i sér til þess að segja þeim eins og væri, en því er ver og miður, að fæstar gera það, og af hverju? lík-

x

Eir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eir
https://timarit.is/publication/36

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.