Eir - 01.01.1900, Page 36
3«
reynslan sýnir, að rneð óreglunni fylgir sjúkleiki, sem siná-
ýfist með köflum og stundum svo, að sjúkiingurinn tekur aldrei
á heilum sér. Af hverju skyidi nú þetta koma? Því verður
ekki svarað sem nægir, sökum þess, að vér vituin harla lítið
hvernig á því stendur, að kvennmaðurinn missir þetta hióð á
reglubundnum tímum. Sumir eru nú farnir að hallast að
þeirri skoðun, að eitthvert skaðvænt efni, jafnvel eiturefni, væri
í tiöablóðinu og að þessu efni væri þá um að kenna lasleik-
inn, sem fylgdi tíðateppunni; hver skal segja, nema þessi skoðun
hafi við góð rök að stvðjast, og að mönnum takist að komast
að sannleikanum.
Hér skal ekki farið út i að telja alt það upp, sem álitið
er að geti orsakað þennan kvilla, heldur að eins enn þá einu
sinni livetja kvennfólkið til að bera mikla umhyggju fyrir því,
að forðast alt það, sem komið getur óreglu á þessa rás blóðs-
ins og sérstaklega að standa ekki í votu á sumrin við hey-
vinnu, og umfram allt fara varlega um það leyti, sem þær
eiga að hafa á klæðum. Ég býst við því, að mér verði svarað
þessu: „hvernig getur stúlkan komist hjá því að standa í votu
við heyskap ?“ Svarið er, hún á að vera í tvennum sokkurn
og góðum skinnsokkum, sem nái upp undir hné og þar eð
margar eru fátækar og hafa ekki ráð á að eignast skinnsokk-
ana, ætti húsbóndinn að leggja stúlkunni þá til, skoða það
skyldu sína, ef hann lætur stúlkuna vinna verk fyrir sjg á vot-
engi; að öðrum kosti hefir hann það á sinni samvizku, að
hún fái aldrei fulla heilsu síðar meir. Ég hefi stöku sinnum
oi'ðið þess var, að stúlkunum finst það einhver vanvirða að
vera í skinnsokkum, en þetta er herfilegur misskilningur. Er
ekki heilsan dýrmætust af öllu? Mikil heilsubót hlyti það að
vera fyrir islenzku kvennþjóðina, ef bændur létu aldrei kvenn-
me n fara á votengi nema í skinnsokkum og teidu það skyhlu
sína, að hlífa þeim við verkum, þegar illa stendur á fyrir
þeim. Ég þykist reyndar sannfærður um, að allir góðir livs-
bœndur mundu orðalaust gera þetta fyrir kvennfólkið, ef þær
hefðu uppburði i sér til þess að segja þeim eins og væri, en
því er ver og miður, að fæstar gera það, og af hverju? lík-