Eir - 01.01.1900, Side 45
45
algerlega. Hún er alstaðar fylgifiskur holdsveiki og likra sára-
sjúkdóma t. a. m. lupus (ein tegund af húðberklaveiki).
Sóttveikisköst hafa sjúklingarnir fongið oft, stundum með
nýjum útbrotum i húðinni (febris eruptionis), stundum án út-
brota (febris sine eruptione), þar sem ekki hefir fundizt noinn
annar sjúkdómur.
Maqakvef (Catarrhns intest. acut) gekk hér á spítalanum
í mánuðunum apríl og maí, og fengu margir sjúklingar sjúk-
dóminn.
Annars hafa engar landfarsóttir gengið hér á spitalanum,
en samt sem áður hafa sjúklingarnir verið fremur kvillasamir,
eins og við er að búast, þar seni margir þeirra voru svo langt
leiddir er þeir komu á spítalann.
Um „kirurgiska sjúkdóma“ hefir okki Verið mikið, og þá
ekki heldur um „operationir''.
„Operationir“ 1898—99.
Necrotomia (tekin dauð bein) .........................5
Resectio talocrural. (tekin bein úr fæti..................1
Operatio fistulæ region. gluteæ (skurður á pípusári) . 1
Ðilatatio fistulæ abdomin (seqv. echinscocc. hepat.), (út-
víkkun á pípusári).....................................1
Incisiones abcess og phlegmon. (skurðir í ígerðir) . 0
Redressement genuum (rétting á hitjám)................1
Tracheotomia (barkaskurður)................................5
Samtals 2Ö
Barkaskurðirnir (Tracheotomiæ) voru allir gerðir vegna
köfnunarhættu. Eru sjúkiingarnir allir frískir og kunna vel
við sig með barkapípur sinar. Tilfinningin á öllum var deyfð
með Cocain-infiltratio.
Af 79 holdsveiklingum, sem komið hafa á spítalann til
ársloka 1899, hafa 24 verið giftir (12 karlar og 12 konur) og
hafa átt 90 börn. Hinir, 55 að tölu, hafa átt. 28 börn. Sam-
tals var barnatalan 113. Af þeim hafa 3 fengið holdsveiki
(limafallssýki). Faðir eins þeirra er líkþrár, mæður hinna tveggja
sömuleiðis líkþráar.