Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 13
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS
17
Tengdafaðir minn Halldór Sigurgeirsson var ötull bóndi og
sæmdarmaður í hvívetna, hann er nú látinn. En tengdamóðir
mín Þorgerður Siggeirsdóttir er enn á lífi á tírœðisaldri. —Á ég
þeim mikið að þakka fyrir margháttaða hjálp og vináttu við
mig og heimili mitt. — Við hjónin eigum fimm börn sem öll
eru uppkomin og gift. Tvo syni og þrjár dætur. — Kona mín
hefur tekið þátt í starfi mínu ötullega og búið mér gott heim-
ili.
Á Grenjaðarstað hefi ég unað hag mínum vel. Fjórar sóknir
eru í prestakallinu. Eg hefi stundað búskap í nokkrum mæli
og tekið þátt í sveitarmálum og starfi fólksins eftir getu. Verið
í ýmsum félagsmálum og ekki síst skólamálum. Einn vetur var
ég skólastjóri Laugaskóla og unglingaskóla hélt ég á heimili
mínu um tuttugu ár. Söngmál hefi ég látið mig skipta, eink-
um að efla kirkjusönginn.
Prófastur minn var sr. Friðrik A. Friðriksson, sem nú er
nýlega látinn. Var hann jafnan hollur ráðgjafi og traustur allt
til enda. — Þau hjón frú Gertrud og sr. Friðrik urðu vinir
okkar hjóna sem við gleymum aldrei. —
Við prófastsstörfum tók ég 1. október 1962 í Suður-Þingeyj-
arprófastsdæmi — og 1971 er Norður-Þingeyjarsýslu bætt
við. — Ég hefi notið góðs samstarfs við starfsbræður mína.
Vinátta hefur skapast milli heimila okkar. — Prófastsstarfið
veitir víðari innsýn í starf kirkjunnar og sem prófastur hefi ég
haft lærdómsrík og ánægjuleg samskipti við marga í hérað-
inu, sóknarnefndir, safnaðarfulltrúa og marga fleiri. —
Ekki get ég í þessu æviágripa annað en minnst á þann
mann sem einna mest áhrif hefur haft á trúarlega mótun mina,
en það er dr. Sigurbjörn Einarsson biskup. — Allt frá þvi
hann kenndi mér síðasta vetur minn í guðfræðideildinni til
þessa dags hefur hann verið að kenna mér, móta mig og hjálpa á
margan hátt. — Vinátta skapaðist fljótt við heimili hans —
og þess vegna þökk til þeirra hjóna og barna þeirra.
Fyrsta kirkjan sem ég predikaði í var gamla kirkjan að
Laugardælum. — Séra Sigurður Pálsson í Hraungerði, nú
2