Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Blaðsíða 28
32
TlÐINDI
standa til frambúðar, á sínum gamla fornhelga grunni, í
kirkjugörðunum, því kirkja og kirkjugarður heyra saman,
þótt stundum beri nauðsyn til að bregða út af þeirri gömlu
hefð.
Eg hef stundum fengið að heyra það á minni ævi, að ég sé
ekki mikill kirkjunnar maður og fannst sumum það nokkur
ljóður á ráði mínu að ég færi ekki mikið með guðsorð í ræðum
sem ég hélt meðan ég var forseti. Satt mun það vera, og vist
get ég ekki hrósað mér af því að ég sé kirkjurækinn maður í
venjulegum skilningi þess orðs. En ég vona að það sé ekki
hræsni þegar ég segi að það er trú og sannfæring okkar allra,
að við íslendingar, hvort sem við erum veikari eða sterkari í
trúnni, ættum að lofa forsjónina fyrir það að við skulum
tilheyra hinum kristna hluta mannkynsins i þessum ekki allt
of góða heimi, að við búum við hugsunarhátt, þjóðlíf og
menningu sem um aldir hefur mótast af kristinni trú og
kristinni kirkju. Þetta eru dásamleg forréttindi, sem aðeins
nokkur hluti jarðarbúa nýtur. Þetta held ég að hver íslenskur
maður ætti að gera sér Ijóst og íhuga í alvöru.
Um leið og ég, á þessu góða dægri, óska söfnuði og sóknar-
nefnd hér í Tjarnarsókn til hamingju með að lokið er viðgerð
þessarar gömlu kirkju, vil ég þakka hjónunum hérna á Tjörn
fyrir að hafa hvatt mig og konu mína til að koma norður og
taka þátt í þessari hátíðarguðsþjónustu. Aldrei fór það þó svo
að mér auðnaðist ekki að stíga einu sinni í stólinn í Tjarnar-
kirkju. Eg flyt mínum gamla góða bekkjarbróður, sóknar-
prestinum og prófastinum séra Stefáni Snævarr þakkir fyrir
hans löngu og dyggu þjónustu í sóknunum öllum hér í Svarf-
aðardal. Frá upphafi vega hefur aðeins einn prestur þjónað
Tjarnarkirkju lengur en séra Stefán og er þó mjótt á munum
og hann hefur enn góða möguleika að jafna þau met. Eg
þakka góðvini mínum séra Sigurði Guðmundssyni vígslu-
biskupi fyrir kenninguna hér í dag og óska honum allra heilla
í nýju embætti sínu. Kirkjugestum öllum þakka ég þolinmóða
áheyrn og óska ykkur öllum guðs blessunar.