Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 41

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 41
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÖLASTIFTIS 45 Að svo mæltu vil ég fyrir hönd hátíðarnefndar, bjóða yður öll velkomin í Húnaþing til þessarar hátíðar. Ég vil sérstak- lega þjóða velkomna hingað í dag 70 manna hóp þátttakenda, er dvalið hafa á móti Kristniboðssambandsins hér norðan- lands undanfarið. — Hátíðarsamkoman er sett. Gerum kirkjugarðana að menningarreitum! Á héraðsfundi Eyjafjarðarprófastsdæmis 1979 var kosin nefnd til að fjalla um málefni kirkjugarðanna. Nefndin aflaði ýmissa gagna og leiðbeininga fyrir sóknarnefndir og lagði fram á héraðsfundi 1980. Jafnframt boðaði hún til fundar í kapellu Akureyrarkirkju 8. nóvember 1980 þar sem mál kirkju- garðanna voru tekin til umræðu. Á þessum fundi kom fram áhugi á auknu samstarfi sóknarnefnda til að koma ýmsu í verk, einkum þar sem fjárskortur og fámenni hefur valdið þvi að garðarnir eru umhirðulitlir. Rætt var um að ráða vinnuflokk til starfa yfir sumartímann, sem unnt yrði að fá til tíma- bundinna verkefna, svo sem við lagfæringar girðinga, upphleðslu leiða, viðgerðir á minnismerkjum o.fl. Sumstaðar hafa ekki enn verið gerðir upp- drættir af görðunum og legstaðaskrár. Einnig var rædd sú hugmynd að sameinast um tækjakaup. Á þessum fundi var kirkjugarðavörður, Aðalsteinn Steindórsson, einnig mættur. Kynnti hann starf sitt og sýndi fróðlegar myndir. Sumarið eftir, eða 1981, skipulagði nefndin svo skoðunarferð hans um allt prófastsdæmið og kom á fundum með honum og sóknarnefndum. Sérstaklega var lögð áhersla á að hann kannaði eftirtalin atriði á hverjum stað: Skipulagsupp- drætti og legstaðaskrár, hirðingu og frágang leiða, minnismerki, girðingar og sáluhlið, trjágróður og runna, áhöld og tæki garðanna svo og heima- grafreiti og aflagða garða í sóknunum. Eftir þessa skoðunarferð sendi kirkjugarðavörður sóknarnefndum og prófasti skýrslu um ferð sína og tillögur um úrbætur þar sem ástæða þótti til. Þessi skoðunarferð varð upphafið að hliðstæðum ferðum kirkjugarða- varðar í fleiri prófastsdæmum og er ástæða til að vænta að slík vinnubrögð verði til hvatningar og leiði til þess að garðarnir fái þann aðbúnað og umhirðu sem þeim sæmir. Vel búnir og hirtir kirkjugarðar segja meira en margt annað um virðingu okkar og ræktarsemi við minningu forfeðranna. Þ. H.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.