Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 104
108
TlÐINDI
una, og er það gert með fasttengdum rafmagnsofnum. Kirkj-
an er lýst rafmagnsveggljósum sem Kvenfélag Seyluhrepps
færði söfnuðinum að gjöf, auk altaris- og kertaljósa.
Þjóðminjavörður greiddi af sínu ráðstöfunarfé að mestum
hluta kostnað af þessum framkvæmdum og á hann þakkir
skyldar.
I visitasíugjörð frá 5. júlí 1967 er hr. biskup Sigurbjörn
Einarsson framkvæmdi er eftirfarandi bókfært:
„Á eftir ávarpaði biskup söfnuðinn, fagnaði því að fá að
embætta í þessu musteri, sem hann svo nefndi Víðimýrar-
kirkju, og samfagnaði söfnuðinum að eiga helgistundir í þeim
helgidóm, sem heldur reisn sinni gagnvart mestu kirkjum
veraldar.“
Nú eru engin vandkvæði á að embætta í Víðimýrarkirkju
jafnt á vetri sem á sumri.
Sr. Gunnar Gíslason.
Siglufjarðarkirkja 50 ára
28. ágúst 1982
Bygging og vígsla nýrrar kirkju 1932.
Byrjað var á byggingu Siglufjarðarkirkju, þeirrar er nú
stendur ofan Aðalgötu og lokar henni, árið 1931. Var hún
byggð eftir teikningu Árna Finsen arkitekts, en yfirsmiður við
bygginguna var Einar Jóhannsson byggingameistari. Ingólf-
ur heitinn Kristjansson rithöfundur, höfundur bókarinnar
Siglufjörður, sem tekin var saman í tilefni af 150 ára verslun-
arafmæli Siglufjarðar og 50 ára kaupstaðarafmæli Siglu-
fjarðar 1958, lýsir kirkjunni svo: