Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 109
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS
113
Hátíðarguðsþjónusta.
Sunnudaginn 29. ágúst fór fram í Siglufjarðarkirkju hátíð-
arguðsþjónusta. Var hún um margt sérstæð og ógleymanleg.
Þar prédikaði biskupinn yfir fslandi, herra Pétur Sigurgeirs-
son, og fyrir altari þjónaði vígslubiskup sr. Sigurður Guð-
mundsson og fimm fyrrverandi og núverandi sóknarprestur í
Siglufirði.
Öll hátíðin var blessunarrík og fögur og vonandi hefur hún
haft mikil og góð áhrif á allt safnaðarlífið, sem unnið er Guði
til dýrðar og manninum til heilla.
Sr. Vigfús Þór Arnason.
S tærr i -Árskógskirk j a
Stærri-Árskógskirkja var byggð á árunum 1926-1927. Var
hún vígð 6. júní 1927. 50 ára afmælis hennar var minnst með
hátíðarguðsþjónustu og kaffisamsæti 28. ágúst 1977. Vegna
þeirra tímamóta bárust kirkjunni talsverðar gjafir, að mestu
leyti peningar. Fyrir þá peninga var síðar keypt útidyrahurð
fyrir kirkjuna. Þá var einnig gefin Biblía og gestabók.
Kirkjan á marga velunnara, og berast árlega einhverjar
peningagjafir og þá gjarnan sem áheit og minningargjafir.
Minningargjöfum þeim fylgja stundum óskir um að pening-
arnir verði notaðir til sérstakra hluta, og má þar nefna t.d.
leiðalýsingu. Nýlega var sett leiðalýsing í garðinn og naut
kirkjan frábærrar aðstoðar Lionsmanna hér á Árskógsströnd
við það verk.
Á síðustu árum hafa kirkjunni borist ýmsar góðar gjafir.
Nefna má skírnarkjól, rikkilín, íslenska fánann, blómavasa,
kertastjaka og kross á altari. Einnig barst kirkjunni hökull,
8