Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 110
114
TÍÐINDI
stóla og mappa undir mundlín. Þetta þrennt er í grænum lit
og er unnið á Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur á ísafirði. Er
efni þess ofið að mestu leyti úr íslensku kambgarni og eingirni.
Skírnarfontur var gefinn af kvenfélaginu „Hvöt“ á Árskógs-
strönd á barnaári 1979. Skírnarfonturinn er teiknaður og
útskorinn af bræðrunum Kristjáni og Hannesi Vigfússonum í
Litla-Árskógi en smíði hans annaðist Valdimar Jóhannsson á
Akureyri. Skírnarskál gerði Björgvin Svavarsson silfursmiður
í Kópavogi.
Kirkjunni hefur verið vel við haldið. Árið 1976 var fjarlægt
með háþrýstidælu kalk af veggjum kirkjunnar að utan og
þeir síðan málaðir með venjulegri málningu. Ýmislegt annað
hefur verið gert á þessum árum og má þar nefna t.d.: Gert við
leka á turni, gler í gluggum tvöfaldað, gólf í hliðaranddyri
endurbyggt, anddyri, stigi og söngloft teppalagt, seta á
kirkjubekkjunum klædd listadún og áklæði, og ýmislegt fleira
gert. Gagnvart umhverfi kirkjunnar er það að segja, að eftir að
nýr vegur var lagður frá þjóðveginum og heim að kirkju, var
bílastæði byggt vestan við kirkjugarðinn, og síðan var lögð
stétt frá sáluhliði og heim að kirkjutröppum. Stéttin er 1,60 m
á breidd, eða fjórar hellubreiddir.
Þann 8. júlí 1981 var nýtt orgel keypt í kirkjuna sem er
Allen rafmagnsorgel.
Kristján Vigfússon,
Asa Marinósdóttir.