Helgarpósturinn - 21.11.1985, Síða 30
HELGARDAGSKRAVEIFAN
Föstudagurinn
22. nóvember
19.25 Á döfinni.
19.25 Sænska barnaefniö um Jobba klípu-
kall...
19.50 Táknmálið.
20.00 Hitt málið.
20.45 Allt annað mál.
20.55 Mál að linni.
21.30 Skonrokk (að sögn lang ódýrasti aug-
lýsingatíminn í sjónvarpi).
22.15 Derringur. Horst Tappert weis es
nicht, aber...
23.15 Endurfundir (Reunion at Fair-
borough). ★★ Ný bandarísk sjón-
varpsmynd. Leikstjóri Robert Wise.
Aðalleikarar Robert Mitchum,
Deborah Kerr, Red Buttons, Judi Trott.
Ágætlega unnin mynd um banda-
rískan bissnessmann sem skreppur til
Bretlands til fundar við félaga sína úr
stríðinu sem hann hefur ekki séð í 40
ár. Auðvitað hafði hann svo líka
kynnst stelpu á staðnum . . . hó, hó!
01.05 Etienne Aigner í dagskrárlok. . .
Laugardagurinn 23. nóvember
14.20 Bayern MOnchen — Werder Bremen.
Sjöundi þáttur þessa indæla
fræðsluþáttar um þýska hagkerfið í
umsjón Horst Tapperts.
16.15 Bjarna Felspyrnan.
17.00 Móðurmálið. Árni Böðvarsson sýnir í
sér tunguna.
17.10 íþróttir. Bjarni Felixson sýnir í sér tenn-
urnar.
18.30 Hlé.
19.20 Steinn Marcó Pólós.
19.50 Fréttir með handapati...
20.00 . . . fréttir í handaskolum.
20.25 Jólaauglýsingarnar.
20.35 Staupasteinn. Guðni Kolbeins þýddi á
þriðja glasi. Og fjórða. . .
21.10 Glatt á hjalla (Fun with Dick and Jane).
★★ Bandarísk bíómynd frá 1976.
Leikstjóri Ted Kotcheff. Aðalleikarar
George Segal, Jane Fonda, Dick
Gautier, Allan Miller, John Dehner.
Fjölskyldufarsi um hjón sem byrja
að stela þegar kallinn missir vinnuna.
Lofar góðu framan af, en rennur síðan
gjörsamlega út í sandinn.
22.40 Sagan af Adele H (L'historie dAdéle
H). ★★★ Frönsk bíómynd frá '75.
Leikstjóri Francois Truffaut. Aðalleik-
arar Isabelle Adjani og Bruce Robin-
son. Þessi mynd er byggð á dagbók-
um og bréfum dóttur Victors Hugos,
en hún fékk ofurást á breskum liðsfor-
ingja sem hún elti m.a. til Nova Scotia.
Óhætt er að mæla með þessu verki
enda Truffaut í formi og Adjani í stuði.
Sjarmerandi verk...
00.20 Panta taxa, klára úr glösunum, í
skóna. Út. . .
04.15 Koma heim á eyrunum. Og öðru
herðablaðinu. ..
Sunnudagurinn 24. nóvember
(mánuður til’^óia!)
16.00 Sunnudagslognmolla. Margrét Hró-
bjartsdóttir sofnar í guðanna bænum.
16.10 Áfangasigrar.
17.10 Áframabraut.
18.00 Stunan okkar.
18.30 Fastir liðir „einsog venjulega". Forsýn-
ing á endursýndri frumsýningu sem
er ósýnd í sjálfu sér. Þriðji þáttur ósýni-
legur (en allt verður reynt).
19.00 Hlé. Stjórn upptöku Tage Amm-
endrup.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og hlé.
20.40 Sjónvarp næstu viku og hlé.
21.05 Glugginn. Ef hlé leyfir.
21.50 Verdi.
23.15 Þjóðsöngurinn, allir standa upp (beint
bak og lófann þéttingsfast um
brjóstið). .. Brotna síðan saman og
emja af þjóðernisást. Sofna með
ekka. . .
Fimmtudagskvöldið
21. nóvember
19.00 Frétt (og frétt á stangli).
19.50 Deilý sprakkhe. Sigurður G. Tómas-
son slangrar og slettir. Beygir ekki
einu sinni orðin, hvað þá meir. . .
19.55 Leikritiö „Þjóðargjöf" eftir Terence
Rattigan. Bennsi Árna stýrði. I sautján
gráður vestur.
22.30 Fimmtudagsumræðan. Ásdís J.
Rafnar ræðir opinskátt um stjórnmála-
viðhorf sín, uppeldið norðan heiða og
annað skemmtilegt. (Framhald síðar)
23.00 Rögnvaldur Sigurjónsson mætir með
plöturnar sínar niörá Skúlagötu.
24.00 Rögnvaldur veldur þessu ekki lengur,
fer heim.
Föstudagurinn 22. nóvember
07.00 Faöirvorið og fréttir af helstu uppá-
komum næturinnar.
07.15 Morgunvaktin?
09.05 Morgunbörnin?
09.45 Þingfréttir?
10.40 „Ljáðu mér eyra", Málmfríður Sigurð-
ardóttir á Akureyri biður ekki um lítið,
finnst mér, bara.
11.10 Málefni aldraðra. Eins og svo sem
hver, ha. . .
11.25 Morguntónleikar?
12.20 Hádegisfrétt á borð við járnbrautar-
slys í Ulan Bator.
14.00 Miödegissagan?
14.30 Upptaktur. Gvendur Ben dillar sér í
takt eöa því sem næst.
16.20 Síðdegistónleikar?
17.00 Helgarútvarp barnanna. Vernharður
Linnet les yfir skaranum, skammast
og skundar svo heim.
19.00 Nánari fréttir af járnbrautarslysinu í
Ulan Bator.
19.45 Þingmál málanna.
19.55 Daglegt mál. Margrét Jónsdóttir leið-
réttir bréf sem þættinum hafa borist.
20.00 Lög unga fólksins. Dsjords Mækel
Djakksson á staðnum.
20.40 Kvöldvaka. Snorri Sturluson rær sér í
stúdíóinu.
21.30 Atli Heimir lemur í borðið (tvisvar laust
og fast).
22.25 Igor Stravinsky brýtur fiðlur.. .
22.55 Svipmynd. Jónas leitar að eldspýtum
til að kveikja á kertinu sínu í sjötugasta
skipti...
24.00 . . . finnur þær ekki. . .
01.00 Finnur þær loks (Finn Eydal líka).
03.00 Og Helenu... með stokkinn.
>*
Eg mœli meö
Rás 1, laugardaginn 23. nóvember,
klukkan 17.00: Framhaldsleikrit
barna og unglinga „Á eyðiey" eftir
Reidar Anthonsen í leikgerð Hólm-
steins Hayeks. Steingrímur Hermanns-
son staðfærði. Árni Johnsen vann leik-
hljóð.
Laugardagurinn 23. nóvember
(með herkjum!)
07.00 Óveður, véfréttir og geðsleg bæn.. .
07.30 islenskir einsöngvarar og kórar vekja
fólk með látum.
09.30 Óskalag sjúklingsins sem liggur nef-
brotinn á stofu 217 á Fjórðungssjúkra-
húsinu á ísafiröi og hefur það bara
hreint ekki nógu gott.
11.00 Bókaþing. Gunnar Stefánsson dag-
skrárstjóri mátar nokkrar bókarkápur
á konuna sína.
12.20 Frétt.
13.50 Hér og nú. Fréttamenn útvarps hrista
af sér slenið og æða út í beljandann
með tæknimenn í eftirdragi...
15.00 Þættinum Hér og nú í raun lokið, en
langt í frá að allir fréttamennirnir hafi
skilaö sér til byggða. Elly Ameling
syngur lög milli þess sem Jón Múli
reynir að kalla þá upp...
15.00 Fjölmiölun vikunnar. Fjallað um
áhættuþátt fréttamennskunnar. . .
15.50 íslenskt mál. .. og ógeðslega Ijótt
málfar fréttamanna.
16.20 Listagrip. Sigrún Björnsdóttir kemur
sér í mjúkinn hjá listamafíunni.
17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga:
„Á eyðiey" eftir Reidar Anthonsen í
leikgerð Hólmsteins Hayeks. Stein-
grímur Hermannsson staðfærði.
Árni Johnsen vann leikhljóð.
17.30 Samleikur í útvarpssal (ef einhver vill).
19.00 Fréttir að hætti hússins (og útvarps-
ráðs).
19.35 Elsku pabbi. Leikkonurnar Guðrún
Þórðar og Saga Jónsdóttir með föð-
ursýkistilfelli í útvarpssal.
19.55 Fimmtudagsleikritið endurflutt.
22.25 Á ferð. Sveinn Einarsson farinn (á
taugum?).
23.00 Harmonikkutónlist da-ri-da-ri.
23.30 Danslög.
00.05 Miðnæturmúsík. Jón örn Marinós
diskar fram til dagskrárloka, nema
hann hafi sofnað áður, en það verður
þá bara að hafa það.
Sunnudagurinn 24. nóvember
08.00 Morgunandakt. Síra Sváfnir grípur
andann á lofti (og sér ofsjónum, að
því er hann hefur sagt mér).
08.35 Létt morgunlög. ( + )
10.25 Sagnaseiður. Einar Karl Haraldsson
sér um.
11.00 Messa í Ólafsfjarðarkirkju. Séra
Hannes Blandon varpar upp lit-
skyggnum af guði og góðum mönn-
um, vel mildur af messuvíninu...
12.20 Stórfrétt (líkast til, og þó aldrei að
vita).
13.25 Matti Joch 150 ára.
14.25 Miðdegistónleikar. Hikk...
15.25 Slegiö á létta strengi með Alla Berg-
dal og frú.
16.20 Vísindi og fræði — Skammtafræði og
söguspeki. Já, já!
17.00 Með á nótunum. Páll Heiðar er það.
18.00 Tónlistarhús á íslandi. Því ekki, ha?
19.00 Frétt. Kári Jónasar les hana aftur og
aftur og aftur eöa alveg þangað til
hann skilur hana til botns...
19.35 Milli rétta. Gunni Gunn meö nokkur
spjöll...
20.00 Stefnumót. Hikk.
21.00 Ljóö og lag.
21.30 Útvarpssagan „Saga Borgarættarinn-
ar".
22.25 íþróttir. Ingólfur Hannesson lýsir síð-
ari hálfleik þrjú bfósins sem hann fór
á meö syni sínum fyrr um daginn.
22.40 Betur sjá augu... („Það ætla ég að
vona...")
23.20 Kvöldtónleikar, enn einu sinni.
00.05 Milli svefns og vöku...
00.55 ... nær svefni en vöku (og síöan þétt
upp að svefninum).
eftir Sigfinn Schiöth
Fimmtudagskvöldið
21. nóvember
20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar 2.
21.00 Gestagangur.
22.00 Rökkurtónar.
23.00 Poppgátan.
24.00 Rás 1 og 2 samtengjast í þögninni.
Föstudagurinn 22. nóvember
10.00 Morgunþáttur. Ásgeir Tómasson og
Páll Þorsteinsson sýna mátt sinn og
megin (hinumegin, nema tæknimað-
urinn klikki.. .).
12.00 Suð... (nema maður svissi náttúrlega
yfir á gufuna).
14.00 Pósthólfið. Valdís Gunnarsdóttir leið-
réttir aðsend bréf og endursendir með
umsögn um stafsetningargetu.
16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafsson mættur á
ný á glænýjum skeifum og sýnir af-
burðagóðan gang í hálkunni. ..
18.00. . . en missir hófanna!
20.00 Hljóðdósin. Þórarinn Stefánsson
(dósa)upptekinn af sjálfum sér.
21.00 Kristján Sigurjónsson fær sér kringlu.
Smjattar.
22.00 Nýræktin. Snorri og Skúli f arfanum.
Og arfinn í þeim.
23.00 Fjögurratíma útkall. Prinsar og
madonnur spiluð þar til allir hafa
örugglega fengið nóg...
Laugardagurinn 23. nóvember
10.00 Morgunþáttur í timburmönnunum.
Æjæjæjæjæ.
12.00 Æjæjæjæjæ.
14.00 Laugardagur til Lukku-Láka og aftur
heim.
16.00 Listapopp, síðan Hringborðið, svo Hlé
og svo og svo (. .. gleymið ekki kvöld-
matnum í ofninum. ..) og svo og
svo...
20.00 Hjartsláttur (ætla ég að vona). Kolla
Halldórs tengir tónlist myndlist og
myndlistarmönnum hvernig sem það
er nú hægt í útvarpi. Jæja, ég gef
henni sjens.
21.00 Dansrásin. Hermann Ragnar rásar.
22.00 Bárujárn. Siggi Sverris gefur í botn.
23.00 Svifflugur. Hákon-grunsamlega-hátt-
upp-Sigurjónsson.
24.00 Næturvaktin til þrjú, júhú, dúbidú.
Sunnudagurinn 24. nóvember
(mánuður til jóla!)
13.30 Salt í samtíðina.
15.00 Tónlistarkrossgátan. Jón Gröndal
einn láréttur.
16.00 Vesældarlistinn. Victor Hugo kynnir
þrjátíu aumingjalegustu lögin um
þessar mundir.
18.00 Bæ.
ÚTVARP
Morgunvaktin
Fréttamennirnir Gunnar E. Kvaran og
Sigríður .Árnadóttir hafa um nokkurra
vikna skeið haldið utan um morgunvakt út-
varpsins. Þau eru að góðu kunn úr kvöld-
fréttunum, og það er orðið ljóst að þeim fer
ekki síður vel að starfa í bítið. Ferskleikinn
í efnisvali þeirra og framsetningu er tölu-
verður. Þau hafa líka að nokkru breytt
áherslum morgunútvarpsins frá því sem
áður var.
Þetta finnst mér reyndar staðfesta þá
skoðun — sem ég hef áður sett fram í þess-
um dálkum — að fjölmiðlafólki sé hollt að
hvíla sig öðru hvoru á þeim þáttum sem
það hefur fest sig við: Fréttafólki sé nauð-
synlegt að skipta yfir í greinaskrif og við-
töl. Og innblaðsfólk — svo ég noti blaða-
mál áfram — hafi gott af því að fara í fréttir
annarslagið. Og ég endurtek að þetta á við
um fjölmiðlafólk almennt. . .
Sjónvarps-, útvarps- og blaðamenn end-
urnýjast við svona umskipti, öðlast meiri
.víðsýni en ella og ná aftur skerpunni sem
einkennir jafnan þá sem fást við ný verk-
efni. Þetta kemur líka í veg fyrir að menn
endurtaki sig. Það er nú einu sinni svo að
mannshugurinn dafnar mest og best þegar
hann fær tekist á við fjölbreytilegustu að-
stæðurnar.
Aftur að morgunvaktinni: Kostir hennar
undir stjórn Gunnars og Sigríðar eru marg-
ir. Fyrir það fyrsta eru þau einstaklega
örugg í útsendingu, sem er ekki lítils virði.
Hér er fagfólk á ferðinni, efnið kemst fum-
laust til skila, og þó er manneskjan aldrei
langt undan. Þegar mistök verða eru þau
leiðrétt af lipurð. Af þessum sökum hefur
maður það á tilfinningunni að andrúms-
loftið í hljóðstofu sé afslappað og slappar
þar með sjálfur af yfir súrmjólkinni sinni.
Umsjármenn morgunvaktarinnar detta
ekki í þá gryfju að einoka sjálf allan útsend-
ingartímann (sem er sá lengsti á rás 1 undir
stjórn sömu manna). Þau virkja vel aðra
fréttamenn útvarpsins, svo og fréttaritara
stofnunarinnar úti á landi. Þá er ég sérlega
sáttur við inngrip fréttaritaranna í útlönd-
um í þáttinn. Það er eitthvað við það að
heyra fótatak fólksins í næstu löndum og
álfum!
Ég vil einnig nefna snaggaralega úttekt
úr leiðurum dagblaðanna en öllum mein-
ingum þeirra er þjappað saman í eina máls-
grein, og heyrist mér það nægja. Lagavalið
er einstaklega gott á morgunvaktinni, skar-
ar fram úr flestu því sem fer frá hinni rás-
inni. Það miðast við þann tíma sem útsend-
ing þáttarins varir, tekur og tillit til andlegs
ástands hlustanda um það leyti.
Ég sé einkum þrjá veikleika á þættinum.
Þess gætir um of að fjallað sé um alvarlegri
hliðar mannlífsins á kostnað mýktar, létt-
leika, viss húmors og kæruleysis. Efnið er
of fréttatengt; hlustandinn er minntur allt-
of snemma á það amstur sem bíður hans.
Þá er síminn ofnotaður í þættinum að mínu
viti, í stað þess að fara út á meðal fólksins.
Útvarpið býður nú einu sinni upp á besta
möguleikann á beinum útsendingum.
í þriðja lagi, og það er kannski versti ljóð-
urinn á þessari annars ágætu morgunvakt,
hún er allt of negld niður í tíma. Skipulagn-
ingin gengur út í öfgar. Hér verður að hafa
í huga að langflestir landsmenn borða
morgunmatinn sinn á sama tíma dag hvern
og leggja af stað í vinnuna á næstum sömu
mínútunni virku dagana á enda. Þar af
leiðandi heyra þeir alltaf sömu atriðin á
morgunvaktinni, viku eftir viku.
Það er sjálfsagt einhæft til lengdar.
SJÓNVARP
eftir Reyni Antonsson
Hið blinda gestsauga
Guðbrandur Gíslason var skrifaður fyrir
Glugganum sem birtist á sjónvarpsskján-
um sunnudaginn 10. þessa mánaðar.
f fyrrnefndum Gluggaþætti lagði téður
umsjónarmaður land undir fót, eða öllu
heldur líklega flugvélarsæti undir rass, og
var stefnan tekin á Akureyri í þeim aug-
ljósa og lítt dulda tilgangi að sýna þjóðinni
frammá það að enn væru til nokkrir sér-
vitringar og fáeinir eldheitir hugsjóna-
menn sem streðuðu við það vonlausa verk,
að færa ljós hinnar sönnu menningar til
sveitalubbanna þarna norður við Eyja-
fjörð, í stað þess að sitja við lista-
brunna höfuðborgarinnar þar sem mark-
aðurinn er. Og hugsjónamenn fundu þessir
þáttagerðarmenn svo sannarlega, en lítið
virtust þeir sakna höfuðborgardýrðarinn-
ar, einn ágætur rithöfundur minntist að
vísu á það að auðveldara væri að útvega
aukasnatt syðra, en ekki var það á honum
að skilja að slíkt myndi valda brotthvarfi
hans úr bænum.
Þannig gekk þetta allt í gegnum þáttinn.
Stjórnendurnir reyndu án afláts að grafa
upp einhvern sem væri að gefast upp
þarna í sveitinni. Þeir komu meira að segja
fram með mann í þessum Akureyrarþætti
sem var við tónlistarnám í Reykjavík.
Akureyringar yrðu þó að fara suður til að
læra tónlist. Satt er það að vísu ennþá ef
þeir ætla að ná mjög langt; þeir þurfa raun-
ar að fara lengra en til Reykjavíkur. Þegar
svo dró til loka þáttarins kúventu stjórn-
endurnir allt í einu af einhverjum dularfull-
um ástæðum þegar þeir fóru að fjalla um
leikhúsið okkar sem fyrir löngu er lands-
frægt. Áttu þeir viðtal við Signýju Páls-
dóttur leikhússtjóra sem tekið var fyrir utan
leikhúsið í ískaldri norðannepju, og að
sjálfsögðu gátu þessir ágætu menn ekki
stillt sig um að geta þess að þetta leikhús
væri sótt jafnvel frá Reykjavík. Leikhús-
stjóri svaraði að bragði að fólk kæmi líka til
Akureyrar í leikhús frá Höfn í Hornafirði.
Þetta svar var hreinasta snilld, gerði reynd-
ar þau endemi sem þáttur þessi allur var
næstum því bærileg undir að sitja.
Einn lærdóm er hægt að draga af þessari
vitleysu allri. Sjónvarpið verður hið bráð-
asta að koma sér upp aðstöðu á Akureyri,
og reyndar gengur það fjöllunum hærra
hér um slóðir að slíkt sé ekki ýkja langt
undan. Er nafn Ernu Indriðadóttur gjarnan
nefnt þegar rætt er um hver veita muni
þeirri starfsemi forstöðu, og er það vel, því
hún er reynd fjölmiðlamanneskja þó hinu
sé ekki að neita að það yrði áfall fyrir
svæðisútvarpið að missa hana, þar sem
hún er að mínu mati langhæfasti starfs-
maður þess. En uppbygging sjónvarps á
Akureyri er mál sem þolir enga bið. Uppá-
komur eins og Gluggaþátturinn á dögun-
um verða að heyra sögunni til. Hin blindu
gestsaugu verða að Ijúkast upp.
30 HELGARPÓSTURINN