Helgarpósturinn - 20.03.1986, Síða 36

Helgarpósturinn - 20.03.1986, Síða 36
EF VARNARLIDID HNERRAR FiE Samtíningur um Keflavík og gildi varnarliðsins fyrir atvinnulífið þar um kring Sagt heíur það verid, um Suður- nesjamenn, aö fast þeir sóttu sjóinn og sœkja hann enn. Svo segir í gam- alkunnum texta sem flest allir landsmenn hafa einhvern tímann sungið. Undanfarin ár hefur hins vegar slegið í bakseglin hjá úitgerd- armönnum og fiskverkendum Suð- urnesja, þó einkum í Keflavík, þar sem mikill samdráttur hefur átt sér stað. Þetta kemur sér vitaskuld illa fyrir Keflvíkinga, sem löngum hafa treyst á sjóinn og svo utanaðkom- andi öfl í öðrum atvinnugreinum. Þannig segir t.d. í sérstöku kynn- ingarriti um landið, að Keflavík hafi frá aldaöðli verið „verslunarpláss danskra kaupmanna". Þarsegir enn fremur: „Saga bœjarins hefur varð- veist vel, enda hefur athafnasemi verið mikil í þessum bœ erlendu kaupmannanna.". Ef danskir kaupmenn hafa áður verið mikilvœgir í atvinnulífi Kefla- víkur og nágrennis, þá eru áhrif er- lendra manna enn greinilegri nú. Reyndar má segja að ef á íslandi kœmist til valda róttœk vinstri stjórn sem léti það verða sitt fyrsta verk að koma bandaríska varnarliðinu á brott, þá tœki við stórfellt atvinnu- leysi og fólksflótti af Keflavíkur- svœðinu. „Ef varnarliðið hnerrar fœr Keflavík kvef" sagði einn við- mœlenda HP og vildi ekki hugsa þá hugsun til enda hvers konar „sjúk- dómur" herjaði á svœðið efvarnar- liðið yrði á brott. Um 2300 íslendingar hafa atvinnu af varnarliðinu og Keflavíkurflug- velli almennt. Hjá varnarliðinu sjálfu starfa milli 1000 og 1100 manns, en afgangurinn skiptist á milli íslenskra aðalverktaka, Kefla- víkurverktaka og undirverktaka þeirra, lögreglu- og slökkviliðs, frí- hafnarinnar, leigubílastöðva, Flug- leiða, Flugmálastjórnar og áfram mætti telja. Að minnsta kosti helm- ingur þessa starfsfólks er frá Kefla- vík og Njarðvík. Má áætla að á fimmta þúsund manns af þessu svæði hafi sitt lifibrauð af vinnu í tengslum við varnarliðið og Kefla- víkurflugvöll. Stóriðja Suðurnesja Reyndar má heita að varnarliðið sé stóriðja þeirra Suðurnesjamanna. Og eins og títt er um stóriðjur þá eru launin þar hærri en gengur og ger- ist. Taka má dæmi af árinu 1983. Þá störfuðu í þjónustu sjálfs varnarliðs- ins 1178 manns, þar af 764 karlar og 414 konur. Þetta fólk hafði að með- altali um 35% hærri tekjur en sem nam meðaltali allra starfandi lands- manna. Árlega greiðir varnarliðið 'íslendingum í þjónustu sinni 800—900 milljónir króna á núvirði. Þegar launagreiðslur verktakafyrir- Varnarliðið með drjúgan hluta Suðurnesja: Varnarsvæðið i lagalegu tómarúmi Varnarsvœðið ersérstakt lögsagn- arumdœmi lögreglustjóraembœttis- ins á Keflavíkurflugvelli. í hugum flestra landsmanna takmarkast hið svo kallaða varnarsvœði við hina víðfrœgu og götóttu girðingu um- hverfis byggðakjarna varnarliðsins og flugvöllinn sjálfan. Það er hins vegar misskilningur. A meðfylgjandi korti af svæðinu má sjá að varnarsvæðið tekur yfir alldrjúgan hluta Suðurnesja. Alls nær varnarsvæðið yfir rúmlega 87 ferkílómetra lands, en minnihluti þessa svæðis er afgirtur. Skyggða svæðið á kortinu er innan varnar- svæðisins en utan girðingar. Lög- sögu yfir öllu þessu svæði hefur lög- reglustjóraembættið á Keflavíkur- flugvelli og það heyrir um leið undir utanríkisráðuneytið. Á hinn bóginn hefur varnarsvæðið utan girðingar flotið í eins konar tómarúmi, því í framkvæmd hafa mál á því svæði komið til kasta almennrar lögreglu og dómstóla. Til að forvitnast nánar um þetta „tómarúm" leitaði Helgarpósturinn til Valtýs Sigurðssonar, héraðsdóm- ara í Keflavík og innti hann eftir því hvort ekki væri hætta á árekstrum vegna vafaatriða í þessum efnum. ,,Það er rétt, varnarsvæðið er sér- stakt lögsagnarumdæmi undir stjórn lögreglustjórans á Keflavíkur- flugvelli, en þetta land var tekið með víðtæku eignarnámi árið 1944 vegna byggingar Keflavíkurflugvall- ar. Eg held að það sé nokkur al- mennur misskilningur að menn álíti girðinguna um kjarna flugvallarins vera mörk varnarsvæðisins," sagði Valtýr. „Innan varnarsvæðisins fer utanríkisráðherra með allar þær heimildir sem lögum samkvæmt er lagt til annarra ráðuneyta utan svæðisins. Þetta er eðlileg ráðstöfun til að auðvelda framkvæmd varnar- samningsins og til að koma í veg fyr- ir árekstra milli ráðuneyta á verstu tímum í samskiptum við varnarlið- ið. Ég tel hins vegar að þarna eigi að draga mörkin og tel mikilvægt að viðkomandi fagráðherrar fari með öll þau mál sem að Islendingum snúa og ekki heyra beinlínis undir framkvæmd varnarsamningsins." Hafa þá komið upp einhver vafa- mál með lögsögnina? „Það hafa vissulega komið upp vafa- og deilumál, t.d. skipulagsyfir- valda og í dómsmálum. Ég lít svo á að það þurfi að takmarka þessa sér- eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir: Jim Smart og fleiri Frá Keflavík. Hvað myndi gerast ef til valda kæmist róttæk vinstri stjórn sem léti það verða sitt fyrsta verk að koma varnarliðinu á burt? Gróflega má áætla að helmingur íbúa Keflavíkur og Njarðvíkur hafi sitt lifibrauð af störfum á'Keflavíkurflugvelli. tækjanna íslensku bætast við má áætla að hinar árlegu launagreiðsl- ur nemi 1200—1300 milljónum króna. En hvers konar starfskröftum sækist varnarliðið eftir? Af þessum 1178 starfsmönnum var skiptingin þannig að 202 töldust „faglærðir", 405 „ófaglærðir", 300 voru í „skrif- stofustörfum" og 153 töldust „sér- fræðingar og stjórnendur". Faglærð- ir starfsmenn varnarliðsins höfðu þá nær 40% hærri meðaltekjur en sem nam landsmeðaltali og sér- fræðingarnir og stjórnendurnir voru 53% yfir þeim mörkum. Hlut- fallið hjá hinum stéttunum var mun lægra. Atvinnuþátttaka kvenna í þjón- ustu varnarliðsins er einnig nokkuð sérstæð, því varnarliðið virðist sækj- ast meir eftir ógiftum ungum kon- um en almennt gerist á vinnumark- aðinum! Þetta árið störfuðu sem fyrr segir 414 konur hjá varnarlið- inu, þar af voru 176 giftar en 238 ógiftar. Á öllu landinu háttaði þann- ig með atvinnuþátttöku kvenna, að 55% starfandi kvenna voru giftar, en 45% ógiftar. Samsvarandi hlut- föll hjá konum í þjónustu varnarliðs- ins voru á hinn bóginn 42,5% giftar og 57,5% ógiftar. Þegar litið er á ald- urinn kemur í ljós að 48% hinna giftu kvenna voru á aldrinum 20—44 ára, en 58% hinna ógiftu. Þó hinar ógiftu hafi þannig verið nokk- uð yngri þá kemur í Ijós að meðal- laun hinna ógiftu voru 5,3% hærri en meðallaun hinna giftu. Til sam- anburðar má nefna að í Reykjanes- kjördæmi öllu eru meðallaun giftra kvenna 3% hærri en meðallaun ógiftra á þessum tíma. Framkvæmdir fyrir tugi milljarða Gildi Keflavíkurflugvallar fyrir at- vinnulíf Keflavíkur og nágrennis fer ekki beinlínis minnkandi um þessar mundir. Nýja flugvallarbyggingin hefur ekki farið framhjá neinum, framkvæmdirnar við byggingu olíu- geyma og olíuhafnar við Helguvík eru hafnar, 9 styrkt flugskýli hafa undanfarið verið í byggingu og jafn- vel verður fjórum bætt við. Þá er áætlað að byggja á flugvellinum „styrkta stjórnstöð" og enn fremur er gert ráð fyrir ýmsum fram- kvæmdum til að „efla styrk stöðvar- innar til loftvarna". Er hér um að ræða byggingar fyrir viðhalds- og viðgerðarverkstæði orrustuflug- sveitar, geymslur fyrir varahluti og annan tækjakost, rafstöð og fleira. Þessar ofantöldu framkvæmdir hljóða í áætlunum upp á 13.500—14.000 milljónir króna. Þessi upphæð samsvarar nálægt hálfum fjárlögum ríkissjóðs íslands. Fyrir utan vinnu við slíkar fram- ,s stöku heimild utanríkisráðuneytis- ins eins og hægt er. Ég nefni sem dæmi að lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli dæmir í dóms- málum sem það hefur sjálft rann- sakað. Það hlýtur að minnsta kosti að vera réttindamál að deilumál milli íslendinga innbyrðis heyri und- ir eitt og sama yfirvald. Það má nefna í tengslum við nýju flugstöðvarbygginguna að fyrirhug- að er að færa núverandi girðingu að byggingunni, en stöðin er nú utan hennar. Engu að síður er flugstöðin, aðkeyrslan að henni og bílastæði innan marka varnarsvæðisins. Ég tel mikilvægt að sú breyting verði gerð á lögum að mörk varnarsvæð- isins miðist á hverju tíma við flug- vallargirðinguna.“ Hvað hefði þá slík breyting að segja? „Þetta þýddi t.d. varðandi nýju flugstöðina að fríhöfn, póstur og sími, tollamál, útlendingaeftirlit og skipulagsmál, svo eitthvað sé nefnt, yrðu beint undir viðkomandi ráðu- neyti, þar sem til staðar er fagþekk- ing á viðkomandi málaflokkum og sem aftur skapar samræmingu í ákvörðunum. Enda tel ég ákaflega mikilvægt að einn og sami dóms- Valtýr Sigurðsson, héraðsdómari IKeflavlk: ,,Ég tel mikilvægt að sú breyting verði gerð é lög- um að mörk varnarsvæðisins miðist á hverjum tíma við flugvallargirðinguna." 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.