Helgarpósturinn - 23.04.1986, Side 15
íþróttir fyrr en að háskólanámi
loknu. Öfugt við flest fólk, sem
hættir einmitt íþróttaiðkun um leið
og námsárin eru að baki. Ég þurfti
hins vegar að passa vel upp á hend-
urnar á mér á meðan ég var enn við
píanónám. Það mátti ekki taka
neina áhættu, sem stefnt gat píanó-
leiknum í hættu."
— Heldurðu að þú srtúir einhvern
tímann heim til Skotlands aftur?
„Nei, ég finn ekki fyrir heimþrá
þangað og það er afar ólíklegt að ég
eigi eftir að búa þar aftur. Eg gæti
vel hugsað mér að fá íslenskan ríkis-
borgararétt, en það er hlutur sem
maður þarf að íhuga vandlega. Slíkt
gerir maður ekki umhugsunarlaust
eða jafnléttilega og að skipta um
föt.“
— Saknarðu þá einskis annars en
menningarlífsins? Hvað með bless-
aðan bjórinn?
„Það er ágætt fyrir mig að það
fæst ekki bjór hér á Islandi. Ég
drakk mikið af honum heima, enda
eru bjórkrár þar á hverju horni og
alltof mikið af freistingum. Þegar ég
hef farið í gegnum fríhöfnina núna
og á bjór, opna ég ekki bjórflösku
nema við hátíðleg tækifæri og á
„skammtinn" vikum saman. Ég er
sem sagt feginn því að hér fæst ekki
bjór, svona persónulega. Hins vegar
er auðvitað ekkert vit í því að leyfa
ekki bjórsölu hér á landi, ef maður
er bara að tala um „prinsipp“.“
— Ferðu út að skemmta þér, þó
hér séu ekki bjórkrár?
„Það eru ekki margir staðir, sem
hægt er að fara á og tala við fólk.
Yfirleitt er svo mikill hávaði alls
staðar, að maður getur ekkert spjall-
að. Það er helst í Þjóðleikhúskjall-
aranum. Þar líkar mér best.“
— Dregurðu nokkuð fram skota-
pils við slík tœkifæri?
„Nei, biddu fyrir þér. Ég er frá
Láglöndunum og þar er ekki venja
að karlmenn gangi í skotapilsum.
Hins vegar held ég að það endi með
því að ég verði að kaupa mér pils,
því það er alltaf verið að minnast á
þetta þegar árshátíðir eða annar
mannfagnaður stendur fyrir dyr-
um.“
Brotna höndin var greinilega far-
in að valda Douglas óþægindum og
hann var farinn að gjóa augunum
alloft á tölvuskjáinn, svo tími var
kominn til að þakka fyrir spjallið. Ég
skildi við þennan fjölhæfa Skota þar
sem hann sneri sér áhugasamur að
vinnu sinni, á skrifstofu með útsýni
yfir Faxaflóann og hina ljóðrænu
Esju.
Stöldrum við öndartak óg íhugum þd stað - xlj
reynd, að yfir 70% af öllum bifreiðaörekstrum í þétt-
býli eru „Aftdnökeyrslur', „Aðalbrautar- og umferðar-
réttur ekki virfur" og ekið er „Afturöbak 6 nœsta bíl". '
1 Öreifbýli er algengasta umferðaróhappíð „Útafakstur"
Brunabótafélagið vill minna þig ó þessar staðreyndir og biðja þig um
aðsýna óðrum vegfarendum kurteisi og tillitssemi og virða rétt þeirra í umferðinní,
en með því stuðlar þú að fœkkun tjóna og tiyggir þér um leið lœgri iðgjóld,
P
I \
U / r
r Umboðsmenr c 3 land all >
| |
REMAULT
ÞÚ KAUPIR ÞÉR EINTAK í LAUSASÖLU
OG SÍÐAN ERT ÞÚ ÁSKRIFANDI
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20 — SÍMI 686633
HELGARPÓSTURINN 15