Helgarpósturinn - 27.08.1987, Side 4
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND JIM SMART
(Hálfkveöin)
Sjúkratrygging Visa á ad tryggja
heimför fjölskyldu, slasist eöa
veikist maki á erlendri grund. Fyrir
hálfum mánuöi var íslenskri fjöl-
skyldu sagt af neyöarþjónustu Visa
á Bretlandi aö þeir heföu aöeins
skyldum aö gegna viö þann slasaöa
— ekki fjölskylduna
Visa Island hefur um nokkurt skeið auglýst að sé helm-
ingur fargjalds greiddur með Visa-korti sé sjálfkrafa inni-
falin Visa-ferðaslysatrygging, þ.e. slysatrygging og
sjúkratrygging. I bæklingi þar sem þessar tryggingar eru
kynntar segir að neyðarþjónustufyrirtækið Europe
Assistance sjái um að koma sjúkum eða slösuðum til að-
stoðar og koma honum heim til íslands ásamt maka og
börnum undir 17ára aldri.
Fyrir hálfum mánuði brá hins veg-
ar svo við að hjón voru stödd á Bret-
landi með fjögur börn sín á aldrin-
um eins og hálfs árs til ellefu ára.
Konan varð fyrir því slysi að fót-
brotna þegar vika var eftir af sumar-
leyfinu og afleiðingin varð skurðað-
gerð. Eiginmaðurinn taldi sig
tryggðan fyrir óvæntri heimför, en
þegar fararstjóri þeirrar ferðaskrif-
stofu sem hann gerðaðist með hafði
samband við Eruope Assistance,
neyðarþjónustufyrirtæki sem Visa
skiptir við, sögðust þeir ekki bera
ábyrgð á fjölskyldunni, aðeins hin-
um slasaða farþega.
Reykvísk endurtrygging er trygg-
ingafyrirtæki Visa og skiptir við
- Europe Assistance. Þeir segjast þar
i aldrei fyrr hafa orðið varir við að
ekki væri staðið við skilmála Visa-
! tryggingar. Hvað gerðist eiginlega?
! Ferdaslysatrygging VISA er ókeypis
j og gildir fyrir korthafa, maka og
börn undir 17 ára aldri á feröalög-
um jafnt innanlands og utan.
; Hún tekur gildi ef a.m.k. helmingur
t 4 HELGARPÓSTURINN
[
►
l
f
af gjaldföllnum ferðakostnaði er
greiddur með VISA-korti fyrir brott-
för.
Slysatrygging nemur allt að fjórum
milljónum króna á fullorðinn...
Sjúkratrygging nemur allt að einni
milljón króna...
Hún felur í sér ókeypis lœknishjálp,
sjúkrahúsuistun og meðferð, sjúkra-
flutning og heimflutning skv. lœkn-
isvottoröi sem leiðir af því að hinn
tryggði veikist eða slasast á feröa-
lagi erlendis.
Sem sagt, trygging sem bætir tjón
af völdum slyss. Svo segir að
minnsta kosti í bæklingi um „Ferða-
slysatryggingu og viðlagaþjónustu"
frá VISA Island. Hljómar vel og eina
krafan er að ferðalangar greiði að
minnsta kosti helming fargjaldsins
með VISA-kortinu sínu. Það gerði
einnig Ingólfur Gísli Ingólfsson þeg-
ar hann keypti ferð í Skírisskóg í
Bretlandi fyrir sig og fjölskyldu sína,
eiginkonu og fjögur börn. Sumarfrí
sem átti að vera öruggt á allan hátt.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Þau hjónin höfðu dvalið í vikutíma
í Skírisskógi er þau ákváðu að heim-
sækja London, sýna börnunum þá
stórborg, vaxmyndasafnið, dýra-
garðinn og annað markvert sem
gaman er heim að sækja. Eftir
tveggja daga dvöl í London hugðust
þau halda aftur í Skírisskóg og
höfðu skráð sig út af hóteli því sem
þau gistu. Þá gerðist óhappið. Eigin-
kona Ingólfs, Helga Guðmundsdótt-
ir, slasaðist og brotnaði mjög illa á
fæti.
„Ekki skyldugir til að
sjjá um fjölskylduna,"
sagði neyðarþgónustan
„Helga var flutt í háskólasjúkra-
hús í London," sagði Ingólfur í sam-
tali við HP eftir heimkomuna, en þá
hafði Helgarpósturinn heyrt af mál-
um þeirra hjóna, og Ingólfur sam-
þykkti að segja okkur söguna frá
fyrstu hendi. „Strax eftir mynda-
töku af fótlegg kom í ljós að hún
þyrfti að gangast undir aðgerð þar
sem pípur voru báðar brotnar og
mér skilst að ökklaliður hafi verið
mjög skaddaður. Læknir á sjúkra-
húsinu ráðlagði okkur að reyna að
komast sem fyrst heim til íslands því
hún þyrfti að dvelja í sjúkrahúsi í
minnst 10—15 daga eftir aðgerðina.
Þetta gerðist klukkan 14 á föstu-
degi. Eg er illa talandi á ensku og
var því nær bjargarlaus þarna með
fjögur börn á aldrinum eins og hálfs
árs til ellefu ára. Ég hafði ekki síma-
númerið hjá fararstjórum Sam-
vinnuferða í Skírisskógi, svo ég leit-
aði til sendiráðsins, sem hafði sam-
band við Jónu Hjartardóttur farar-
stjóra og lét hana vita hvar við vær-
um niðurkomin. Jóna spurði mig
hvort við værum tryggð og ég var
sem betur fer með símanúmerið hjá
Europe Assistance, neyðarþjónustu-
fyrirtækinu sem Visa skiptir við. Ég
vildi að það yrði náð í þá fyrir klukk-
an fjögur svo þeir hefðu tækifæri til
að athafna sig, því svo virðist sem
fólk megi ekki slasa sig um helgar,
því þá næst ekki í þá sem á þarf að
halda. Jóna fararstjóri hringdi strax
í Europe Assistance og talaði þar við
stúlku sem lofaði að strax yrði geng-
ið í málið. Okkur var sagt að bíða í
sjúkrahúsinu eftir fyrirmælum þar
sem Jóna hafði einnig óskað eftir
því við neyðarþjónustuna að þau út-
veguðu okkur gistingu í London um
nóttina, enda hafði hún sagt mér að
það þýddi ekkert fyrir mig að reyna
sjálfur, útlendingar gengju ekki
fyrirvaralaust inn á hótel í London í
ágústmánuði. Hún lagði einnig ríka
áherslu á það að ég væri með lítið af
peningum á mér þar sem pening-
arnir mínir væru geymdir í öryggis-
hólfi í Skírisskógi, en hins vegar
væri ég með Visa-kort. Það næsta
sem gerðist var að það hringdi ein-
hver frá Europe Assistance í sjúkra-
húsið og fékk þar staðfest að við
yrðum að komast heim til íslands
Ingólfur Ingólfsson: Treysti á Visa-
tryggingu — endaði hjá Abyrgð. „Þeir
sögðust ekki bera ábyrgð á fjöl-
skyldu hinnar slösuðu."
eins fljótt og auðið væri því konan
yrði að komast í aðgerð. Klukkan
sjö um kvöldið hafði ekkert gerst.
Við sátum þarna og biðum, Helga
inni á þrjátíu manna stofu og ég
með fjögur börn, sem voru að von-
um orðin dauðþreytt. Ég hringdi þá
til Jónu og bað hana að ítreka við
Europe Assistance að þeir gengju í
að koma okkur inn á hótel eins og
lofað hafði verið og biðja þá að
senda einhvern til mín, því það er
hægar sagt en gert að rata um Lond-
on, nær mállaus á enska tungu og
með Iítið barn á handleggnum auk
þriggja annarra. Þeir svöruðu því til
að þeir veittu ekki slíka þjónustu.
Klukkan níu um kvöldið hafði enn
ekkert heyrsLfrá þeim og þá var far-
ið að þykkna í mér jafnt sem farar-
stjóranum. Þegar Jóna hringdi þá —
líklega í sjötta skipti eftir því sem
mér telst til — fékk hún það svar að
Europe Assistance kæmi í rauninni
fjölskyldan ekkert við, aðeins hinn
slasaði. Jóna gaf sig ekki og gerði þá
kröfu að þeir stæðu við að koma
okkur fyrir á hóteli yfir nóttina, sem
þeir gengu þá í. Okkur var útvegað
pláss á hóteli sem var í þannig
ástandi að maður varð skelfingu