Helgarpósturinn - 27.08.1987, Síða 5
lostinn að koma þar inn. Mér var til-
kynnt þar að ég yrði að greiða fyrir
nóttina fyrirfram og tók upp Visa-
kortið mitt, enda varla með nokkra
peninga á mér. En nei, hótelið tók
ekki Visa! Það var í rauninni grát-
broslegt, hótel sem neyðarþjónusta
Visa útvegar tekur ekki Visa-kort!
Starfsmaður hótelsins hringdi til
Europe Assistance og bað um stað-
festingu á að hótelið yrði greitt þar
sem slys hefði borið að höndum, en
var neitað. Europe Assistance neit-
aði að tryggja að hótelið yrði greitt!
Ég er í eðli mínu afskaplega þrár og
hringdi enn einu sinni til Jónu, sem
hringdi enn einu sinni í neyðarþjón-
ustuna. Þar var ítrekað við hana að
um sérstaka þjónustu við okkur
væri að ræða, þeir væru ekki skyld-
ugir að sjá um fjölskyldu og maka
hinnar slösuðu. Þeir sögðust jafn-
framt skyldu sjá um að koma Helgu
heim, en ekki okkur, því fjölskyldan
kæmi þeim ekkert við. Aður höfðu
þeir sagt við Jónu að það væri ekk-
ertpláss laust með flugvélinni heim
til Islands á laugardeginum og við
tókum það gott og gilt."
„Þegar hér var komið sögu var
Jóna búin að fá nóg af viðskiptum
sínum við Europe Assistance þar
sem allt gekk svo hægt fyrir sig og
spurði mig hvort ég vaeri hvergi
tryggður annars staðar. Ég sagðist
til allrar hamingju hafa tekið með
mér SOS-tryggingu frá Ábyrgð, því
þar er ég með Al-tryggingu sem fel-
ur í sér sjálfkrafa SOS-tryggingu.
Jóna hringdi til SOS í Kaupmanna-
höfn því það var lokað í Englandi og
þar fékk hún allt önnur viðbrögð og
mun skjótari. Það var staðfest að við
yrðum öll fiutt heim, okkur að
kostnaðarlausu. Helga var flutt í
sjúkrabíl út á flugvöll, með sjúkra-
börum heim í flugvélinni og á Kefla-
víkurvelli beið hennar sjúkrabíll
sem flutti hana í Landspítalann. Að
vísu kom í ljós þegar ég hringdi
heim til íslands á laugardeginum að
það hafði verið laust far með vélinni
þann dag og einnig á sunnudegin-
um. En við komumst sem sagt heim
á mánudegi og Helga fór strax í að-
gerð í Landspítalanum þar sem hún
er enn. Það má vera að einhverjir
álíti að ég sé að ráðast á Visa fsland
með þessu viðtali. Það er ekki
markmiðið heldur það að mér
finnst rétt að benda fólki á að það
þarf að kynna sér vel hvaða trygg-
ingu það er að kaupa. I þessu tilviki
reyndumst við illa varin þegar slys
henti. Þegar þeir sögðu að þeim
kæmi „fjölskyldan ekkert við“
hugsaði ég með mér: „Hvað gera
þeir ef einstæð móðir með fjögur
börn slasast hér? Senda hana heim
og láta börnin sjá um sig sjálf í
London?"
Ingólfur vildi fá að koma á fram-
færi þakklæti til fararstjóra Sam-
vinnuferða-Landsýnar í Skírisskógi,
Sverris Guðjónssonar og Jónu
Hjartardóttur: „Jóna lenti mest í
þessu og reyndist okkur alveg
hreint einstök," sagði Ingólfur.
„Þelta gekk hægt ffyrir
sig,"
segir fararstjórinn
Helgarpósturinn hafði samband
við Jónu Hjartardóttur fararstjóra
hjá Samvinnuferðum-Landsýn i
Skírisskógi og bar undir hana sögu
Irigólfs. Hún tók undir að hlutirnir
hefðu gengið hægt fyrir sig en taldi
einnig að tafið hefði fyrir málinu að
ekki var ljóst hvenær unnt yrði að fá
sjúkrabörur til að flytja Helgu heim.
Þó fannst henni nokkuð kyndugt að
hótel sem útvegað væri af Visa
neyðarþjónustu skyldi ekki taka
Visa-kort, þegar tekið hefði verið
fram að viðkomandi gestir væru
peningalitlir og hefðu aðeins undir
höndum Visa-kortið. „Mér skildist
að það væri ekki neinum vand-
kvæðum bundið að hjálpa konunni
að komast heim, en hins vegar litu
þeir ekki á það sem neina nauðsyn
að hjálpa fjölskyldunni. Þeir töldu
sig hafa skyldum að gegna við þann
slasaða, ekki aðra.“
„Hrinpið i
Reykviska
endurtry ggingu! "
sagði Visa
Hjá Visa Island náðum við sam-
bandi við Margréti sem gaf þær upp-
lýsingar að Visa-ferðatrygging ætti
að fela í sér allt það sem tekið er
fram í bæklingnum. „Europe As-
sistance á að sjá um að koma þeim
slasaða, maka hans og börnum und-
ir 17 ára aldri heim til íslands," sagði
Margrét, en vildi ekki frekar tjá sig
um málið. Sagðist vera hissa á að
heyra um þetta fyrst frá Helgarpóst-
inum og vísaði á Magnús Jónsson
hjá Reykvískri endurtryggingu sem
sæi um samninga við Europe As-
sistance.
„Svena laqað heffwr
aldrei gerst ffyrr," segir
Reykvísk
endurtrygging
„Ég hef ekki heyrt orð um þetta
fyrr," var svar Magnúsar þegar HP
bar undir hann sögu Ingólfs. „Ég
skil ekkert i manninum að hafa ekki
samband við okkur." Við bentum á
að slysið hefði átt sér stað um helgi
þegar lokað væri hjá Reykvískri
endurtryggingu, og það gæti verið
ástæðan fyrir að ekki hafi verið haft
samband við þá. Að auki hefðu við-
brögðin hjá Europe Assistance verið
á þann veg að engin ástæða hefði
þótt til að treysta á Visa-trygginguna
og því hefði SOS-tryggingin verið
tekin: „Við höfum flutt heim marga
sem hafa veikst eða slasast á ferða-
lögum erlendis. Mér er ekki kunn-
ugt um annað en að Europe As-
sistance framkvæmi það sem um er
samið. Annars get ég ekki tjáð mig
um þetta mál á nokkurn hátt, ég er
fyrst að heyra af þessu núna. Við
höfum greitt mörgum útlagðan
kostnað við heimferðir og það hefur
aldrei neitt þessu líkt gerst fyrr. Ég
get auðvitað ekkert svarað fyrir
þjónustu Europe Assistance á þess-
ari stundu, ég verð fyrst að kynna
mér málið frá þeim. Mér finnst ein-
kennilegt að þessi maður skuli ekki
ræða þessi mál fyrr en hálfum mán-
uði eftir slysið og þá á þessum nót-
um. Það hefði verið nægilegt fyrir
þau að kaupa sér farseðla út á Visa
og koma með reikninginn til mín og
ræða málin.
Við hefðum
endurgreitt þeim
Það er alveg ljóst að þau hefðu
fengið það endurgreitt. Við höfum
samninga við ákveðna aðila erlend-
is, þar á meðal við Europe As-
sistance, og það kemur greinilega
fram í þeim skilmálum að um er að
ræða korthafa, maka og börn undir
17 ára aldri. Það virðist sem einhver
starfsmaður þeirra hafi gert mistök
þarna. Það gerast oft mistök, það
vitum við öll, en það er yfirleitt
hægt að laga þau. Þau mál sem ég
hef haft vitneskju um hafa leyst
mjög farsællega og þetta mál er al-
veg örugglega undantekning. Mað-
urinn hefði getað komið til okkar
með reikningana í stað þess að fara
til þín. Europe Assistance hefði átt
að hafa samband við okkur, þeir
eiga að gera það, annaðhvort
hringja í okkur eða senda telex, og
það má vel vera að það hafi spilað
inn í að þetta gerist um helgi. Það
hefði verið fararstjóranum í lófa lag-
ið að hringja til okkar. Simanúmerið
okkar er á kortinu."
Þetta var um helgi. Er ekki lokað
hjá Reykvískri endurtryggingu þá?
„Jú, að vísu. En Europe Assistance
er þjónustufyrirtæki fyrir okkur en
það erum við sem höndlum öll tjón
og þeir eiga aö hafa samráð við okk-
ur þegar slys hendir. Það var ekki
gert í þessu tilviki. Hins vegar þætti
mér vænt um að þessi maður hefði
samband við okkur hérna svo við
getum fengið að vita hvað gerðist
þarna. Eitthvað fór úrskeiðis, það er
alveg ljóst vegna þess að Visa-trygg-
ingin bætir það sem tekið er fram.
Það á auðvitað að gefa okkur tæki-
færi til að kynna okkur hvað gerð-
ist. Staðreyndin er sú að korthafi,
maki hans og börn undir 17 ára aldri
eru tryggð fyrir öllum nauðsynleg-
um kostnaði sem hlýst afþessu slysi.
í þessu tilviki þurftu þau að komast
heim vegna þess að ferðalagið var
ónýtt, konan þarf að fara heim í
sjúkrabörum og við hefðum að sjálf-
sögðu leyst það mál. Ég vil hins veg-
ar ekki svara fyrir hönd Europe As-
sistance fyrr en ég hef haft samband
við þá.“
Europe Assistance
svarar f yrir sig
Um það leyti sem HP fór í prentun
hringdi Magnús Jónsson hjá Reyk-
vískri endurtryggingu. Hann sagðist
hafa haft samband við Europe As-
sistance og hefðu þeir gefið eftirfar-
andi skýringu: „Þeir segjast hafa
fengið símhringingu um þetta slys
kl. 16 á föstudeginum og komið kon-
unni fyrir í sjúkrahúsi þar sem hún
hafi fengið aðhlynningu. Síðan
höfðu þeir samband við sjúkrahúsið
kl. 18 og fengu staðfest að sjúklingur
þyrfti að komast í aðgerð. Síðar um
kvöldið útveguðu þeir fjölskyldunni
hótelherbergi rétt hjá sjúkrahúsinu.
Þaðan var hringt vegna þess að
hótelið tók ekki Visa og Europe As-
sistance sagðist tryggja að hótelið
yrði greitt. Því vildi starfsmaður
hótelsins ekki una og vildi fá pen-
inga fyrirfram. Þeir töluðu þá við
Ingólf og segja mér að þær samræð-
ur hafi verið afar vinsamlegar. Þeim
skildist að Ingólfur ætlaði að leggja
út fyrir hótelkostnaðinum og fá síð-
an endurgreitt þegar heim væri
komið, annaðhvort hjá okkur eða
Visa. Daginn eftir hringdu þeir í
sjúkrahúsið og var tjáð að eiginkon-
an óskaði eftir að komast heim til ís-
lands og láta gera aðgerðina þar.
Þeir segjast þá hafa pantað flugfar
fyrir alla fjölskylduna heim ásamt
sjúkrabil til að sækja Helgu á sjúkra-
húsið, en hafi ekki getað haft upp á
Ingólfi til að tilkynna honum það.
Næst gerist það að þeim er sagt að
fjölskyldan kjósi frekar að nota SOS-
trygginguna sína. Þeir hjá Europe
Assistance héldu að allt væri í góðu
gengi og allir væru sáttir. Að vísu
hefur mér ekki borist skrifleg
skýrsla, hún kemur ekki fyrr en í
fyrramálið, en þetta er það sem ég
hef eftir þeim úr símanum fyrir
augnabliki síðan. Ég vil ítreka það
að við höfum fengið hátt í eitt
hundrað mál til meðferðar og það
hefur aldrei staðið á því að staðið
væri við skilmála trygginganna. Við
höfum aldrei fengið eina einustu
kvörtun. Ég vona að þetta sé eins-
dæmi.“
„Ég mun haffa
samband," segir
Ingólfur
Ingólfur fékk að svara fyrir sig á
endanum: „Auðvitað mun ég hafa
samband við Visa eða Reykvíska
endurtryggingu. Ég er búinn að
vera einn með fjögur börn síðan við
komum heim og er þar að auki í
fullu starfi. Það var aðeins vegna
þess að þið voruð ekki með alveg
réttar upplýsingar í höndunum og
sóttuð svo fast að fá rétta hlið á mál-
inu að ég féllst á að ræða við ykkur.
Þið hringduð ekki fyrr en undir há-
degi í dag svo ég hef ekki haft mik-
inn tíma til að ræða við aðra. Hins
vegar vil ég benda á tvennt: Upplýs-
ingarnar um að þeim kæmi aðeins
sjúklingurinn við voru fengnar frá
tveimur yfirmönnum hjá Europe
Assistance. Ég rengdi auðvitað ekki
þau skilaboð. í öðru lagi hefði ég
aldrei getað keypt sjálfur farseðla út
á Visa og fengið þá síðan endur-
greidda vegna þess að það voru
skýr fyrirmæli frá báðum neyðar-
þjónustunum, Europe Assistance og
SOS, að ef ég færi að taka konuna
mína út af sjúkrahúsinu upp á eigin
spýtur og koma henni heim gætu
þeir ekki gengist lengur í ábyrgð
fyrir okkur. Eg hlýddi eingöngu
þeim fyrirmælum sem ég fékk og
tók það tryggingafyrirtæki sem
bauð betri og skjótari þjónustu,
enda var tekið fram af báðum aðil-
um að aðeins annað þeirra gæti
annast þetta mál, ég gæti ekki farið
fram á bætur hjá báðum, eins og
eðlilegt er. Ég er ekki að reyna að
skaða Visa, ég vildi bara að sagan
mín kæmi rétt fram og fá skilgrein-
ingu á því hvað gerðist í raun og
veru. Ég fagna því að sjálfsögðu að
Reykvísk endurtrygging staðfesti að
tryggingin á að ná yfir allt það sem
ég taldi og ég vona svo sannarlega
að mitt dæmi eigi aldrei eftir að end-
urtaka sig.“
Opnunar-
tilboð 3.
1000 vatta
hörkutól
frá
Panasonic
PANASOIMIC kynnlr
nýja áhrifamikla
ryksugu í baráttunni
við rykið.
1000 vött.
Tvískiptur veltihaus.
Hólf fyrir fylgihluti
í ryksugunni.
Inndraganleg snúra.
Stiglaus styrkstillir.
Rykmælir fyrir poka.
Og umfram allt
hljóðlát, nett og
meðfæranleg.
TILBOÐSVERÐ
AÐEIIMS KR. 6.980.
JAPtSS
BRAUTARHOLT 2 KRINGLAN SiMI 27133
HEti
‘URfNN 5