Helgarpósturinn - 27.08.1987, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Halldór Halldórsson
Helgi Már Arthursson
Ritstjórnarfulltrúar:
Egill Helgason
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir,
Friðrik Þór Guðmundsson,
Garðar Sverrisson,
Gunnar Smári Egilsson,
Jónína Leósdóttir,
Kristján Kristjánsson,
Sigríður H. Gunnarsdóttir
Ljósmyndir: Jim Smart
Utlit: Jón Óskar
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Auglýsingar:
Bergþóra Sigurbjörnsdóttir,
Sigurrós Kristinsdóttir
Dreifing: Garöar Jensson
Guðrún Geirsdóttir
Afgreiösla: Bryndís Hilmarsdóttir
Sendingar: Ástríður Helga
Jónsdóttir
Ritstjórn og auglýsingar
eru í Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru í Ármúla 36, sími 68-15-11
Útgefandi: Goðgá h/f.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Þorsteinn
Þótt af skoðanakönnun Helgarpóstsins
megi ráða að Sjálfstæðisflokkurinn sé á
góðri siglingu er víst að Þorsteinn Pálsson,
flokksformaður og forsætisráðherra, hefur
ekki átt náðuga daga upp á síðkastið. Ung-
irsjálfstæðismenn kvarta undan flokksfor-
ystunni og vilja báknið burt líkt og fyrri
daginn. Kollegar Þorsteins í stjórnmálun-
um skopast að „krossaprófinu", skoðana-
könnuninni sem hann lét gera í flokksráð-
inu í tilefni af Útvegsbankamálinu. Flokks-
bróðir Þorsteins, Ellert B. Schram, spyr
hvernig það megi vera að Sjálfstæðis-
flokkurinn „væri allt í einu að sporðreisast
í krossaprófi í flokksráðinu og alla leið upp
í ríkisstjórn vegna þess að nokkrir pen-
ingamenn höfðu áhyggjur af því að þeir
fengju ekki að eiga Útvegsbankann"?
Gamall flokksbróðir, Albert Guðmunds-
son, kallar Þorstein „einhvern mesta axar-
skaftasmið frá stofnun lýðveldisins" og
segir hann þjóna undir „Sameinaða vald-
hafa". Jón Baldvin Hannibalsson hefurfar-
ið hamförum vegna óheyrilegs umfram-
kostnaðar við flugstöð Leifs Eiríkssonar,
sem var eins konar flaggskip Sjálfstæðis-
flokksins í kosningabaráttunni. Eins hefur
hann ekki legið á gagnrýni sinni vegna
aukafjárveitinga sem veittar voru í fjár-
málaráðherratíð Þorsteins. Og loks hefur
mörgum þótt það bera vott um pólitíska
fákænsku hjá Þorsteini Pálssyni að setja líf
spánnýrrar ríkisstjórnar í hættu vegna
vandræðamáls á borð við Útvegsbanka-
söluna. Honum er legið á hálsi fyrir að vera
gleymdur forsætisráðherra sem falli al-
gjörlega í skuggann af hinum kraftmiklu
samráðherrum úr Alþýðuflokknum.
Það hefur líka verið hérumbil einróma
hald fréttaskýrenda að Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra hafi líf ríkisstjórnarinnar
í hendi sér og þá jafnframt pólitískt líf Þor-
steins Pálssonar.
Eftir kosningar var það álitið sáluhjálpar-
atriði að Þorsteinn yrði forsætisráðherra,
með því einu gæti hann varið stöðu sína í
Sjálfstæðisflokknum. Af þessum sökum
væri það nær útilokað fyrir Þorstein að
sprengja ríkisstjórnina vegna þess eins að
Sambandið hreppti Útvegsbankann, auk
þess sem það hefði náttúrlega verið talið
bera vott um óbilgirni og ábyrgðarleysi.
Þorsteinn gat heldur aldrei gert sér vonir
um þá óskalausn að Jón Sigurðsson léti
kr-ingana svokölluðu einfaldlega fá bank-
ann. Þorsteinn eigi því allt undir því að Jón
taki ekki tilboði Sambandsins, eins og
kannski hefði verið eðlilegast, heldur finni
einhverja málamiðlun, sem gæti bjargað
Þorsteini úr þeirri sjálfheldu sem hann
setti sig í með krossaprófinu.
En það er stundum með stjórnmálin
eins og veðrið og fótboltann. Atvik eru oft
óvænt. Verða fréttaskýrendur kannski að
éta ofan í sig alla þá dálksentímetra sem
þeir hafa sett saman um vanda Þorsteins
Pálssonar? Skoðanakönnun Helgarpósts-
ins, sú fyrsta sem er birt um fylgi flokk-
anna eftir kosningar, setur vissulega strik í
reikninginn. Athafnasemi Jóns Baldvins í
fjármálaráðuneytinu virðist ekki hafa auk-
ið honum vinsældir, en Þorsteinn, þvert of-
an í allar forsendur — hann bætir við sig...
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Athugasemd frá Val Arnþórssyni
formanni stjórnar Sambands
íslenskra samvinnufélaga
I Helgarpóstinum frá 20. ágúst
síðastliðnum birtist „viðtal" við mig
undir fyrirsögninni „Ættarveldin
tryllast ef hróflað er við veldi
þeirra". Mér brá í brún þegar ég sá
þetta því Helgarpósturinn hafði
ekki átt við mig neitt blaðaviðtal,
sem svo væri hægt að nefna. Hall-
Helgarpóstinum er vafalaust annt
um mottó Ara fróða, að hafa skuli
það sem sannara reynist. Því vil ég
gera athugasemd við umfjöllun í
síðasta blaði um starfslaun lista-
manna, sem Reykjavíkurborg veitti
fyrsta sinni 18. ágúst sl. I kynningu
blaðsins á starfslaunaþeganum,
Sigurði Pálssyni, segir: „Á tvö
hundruð ára afmæli Reykjavíkur-
borgar 18. ágúst í fyrra var ákveðið
að efna til sérstakra starfslauna sem
úthlutað yrði reykvískum lista-
manni til þriggja ára.“
LAUSN Á
SPILAÞRAUT
Það er jafneinfalt að leysa svona
stöðu eins og að hirða epli af eik.
Allt spilið: ♦ 10763
K4
<> 102
+ ÁK986
♦ Á54 + KD
P DG872 Á1095
❖ 652 o 9874
+ 105 ♦ G982 + 742
63
<> ÁKDG
+ DG3
Þegar sagnhafi spilar 4. tíglinum
áttu aðeins eitt svar. Að spila eins og
byrjandinn: Þú leyfir Hrólfi að losna
við hjartakóng, með því að trompa
af kröftum. Með ás! Síðan spilar þú
laufi.
Framhaldið er létt. Vörnin fær 4
slagi á tromp núna!
10 HELGARPÓSTÚRINN
dór Halldórsson, ritstjóri, hafði hins
vegar hringt í mig og sagt mér að
hann væri að gera úttekt á „Útvegs-
bankamálinu" svonefnda og lang-
aði til að fá að heyra í mér um viss
atriði. í tóntegund og með orðavali,
sem gjarnan er notað í spjalli
tveggja kunningja, sagði ég honum
Mikið var um dýrðir 18. ágúst
1986, en þessi óður til listarinnar
var þó ekki sunginn þann sólskins-
dag. Blaðamanni Póstsins er þó
vorkunn að hafa skotist þarna, því
vel mátti misskilja borgarstjóra á
þennan veg er hann afhenti starfs-
Iaunin.
Hið rétta er að starfslaunin voru
ákveðin í byrjun þessa árs og komu
í kjölfar tillögu frá stjórnarandstöð-
unni í borgarstjórn um að fjölga
starfslaunum til listamanna. Þrír
listamenn skyldu hljóta árslaun frá
og með árinu 1987 í stað eins, sem
tíðkast hefur frá 1980. Meirihlutinn
lagði þessa tillögu í salt í tvo mánuði
en kynnti þá sína eigin, sem hljóð-
aði upp á 9 ára launapakka, sem
tengjast skyldi afmælinu og deilast
niður á 3 listamenn.
Auðvitað fögnuðum við fulltrúar
minnihlutans undirtektunum við að
setja aukið fé í starfslaun lista-
manna, þótt okkur þætti galli á gjöf
Njarðar að einungis var hér hugsað
um afmarkaðan tíma, tengdan 200
ára afmælinu. Okkur þótti líka rétt
að fleiri gætu notið, og lögðum til að
5 listamenn fengju tveggja ára laun
á umræddu tímabili. Sú tillaga var
felld.
Þannig var semsagt aðdragand-
inn að þeim starfslaunum sem veitt
voru á afmælinu um daginn og er
nú vonandi kröfum Ara fróða um
sagnaritun betur fullnægt. Það
verður svo verkefni borgarfulltrúa
að þrem árum liðnum að sjá til þess
að áhuginn á listsköpun dofni ekki
með minningunni um hið glæsta
afmælisár.
Með þökk fyrir birtinguna,
Kristín Á. Ólafsdóttir,
borgarfulltrúi
Alþýðuban dalagsins.
frá „ættarveldakenningunni", sem
menn höfðu helst uppi um þær
mundir sem skýringu á ótrúlega
heiftúðugum viðbrögðum ýmissa
aðila við kaupum Samvinnuhreyf-
ingarinnar á meirihluta hlutabréfa í
Útvegsbanka íslands hf. Ég læt þá
kenningu nú liggja á milli hluta og
sé ef til vill í dag aðra skýringu á
þessum ótrúlegu og yfirdrifnu við-
brögðum. En meginatriði þessarar
stuttu athugasemdar er það, að ég
tem mér ekki að hnjóða í fólk eða
fyrirtæki á opinberum vettvangi og
harma að birt sé blaðaviðtal við
mig, sem ekki hefur átt sér stað sem
slíkt.
Ef ég ætti að skrifa um „ættar-
veldin“ í Reykjavík mætti eflaust
finna þeim sitthvað til foráttu, því
fátt eða ekkert í mannlegri tilveru
er hafið yfir gagnrýni, en þá mætti
vafalaust líka skrifa um prýðilegt
fyrirmyndarfólk, sem á og rekur
ýmis ágæt fyrirtæki af forsjálni og
dugnaði og skapað hefur sér pólitísk
ítök. Ég ber alltaf virðingu fyrir dug-
andi fólki, hvar sem það fer, og jafn-
vel þótt það hafi aðrar skoðanir en
ég. En á sama hátt ætlast ég til að
allur dugnaður í Samvinnuhreyfing-
unni sé viðurkenndur og að hreyf-
ingin hafi sama svigrúm sem aðrir
þjóðfélagsþegnar til þess að gera
það sem hún telur skynsamlegt og
eðlilegt í viðskiptum og atvinnu-
rekstri innan ramma laga og eðli-
legrar réttlætiskenndar.
I framhaldi af ofangreindri at-
hugasemd vil ég taka það fram að
hún er sannarlega ekki ádeila á
Halldór Halldórsson, ritstjóra, held-
ur er mér fullkomlega ljóst að mis-
skilningur hefur verið milli okkar
Halldórs um það hvort um viðtal var
að ræða eða almennt spjall tveggja
kunningja um tiltekið málefni.
Við Halldór Halldórsson höfum
verið ágætir kunningjar allt frá
Akureyrarárum hans og ég ber hlýj-
an hug til hans. Við höfum oft spjall-
að saman og hann jafnan reynst
mér traustur og heiðarlegur í með-
ferð á öllu því sem okkur hefur farið
á milli.
Með þökk fyrir birtinguna,
Valur Arnþórsson.
herra, Jón Sigurdsson, stendur
orðið uppi sem einn sárafárra ráð-
herra í ríkisstjórninni sem ekki hafa
ráðið sér aðstoðarmann. Jón er
þekkt hamhleypa til verka og því
hafa menn velt því fyrir sér hvort
hann þurfi kannski ekki aðstoðar-
mann. Svo mun þó ekki vera. Jón
kvað enn vera að velta fyrir sér að-
stoðarmanninum og er einna helst
nefndur til sögunnar Birgir Árna-
son. Birgir er reyndar líka nefndur
til sögunnar sem eftirmaður Bolla
Þórs Bollasonar í embætti aðstoð-
arforstjóra Þjóðhagsstofnunar, en
þar er Birgir hagfræðingur. Það hef-
ur áður komið fram að Birgir er
frændi Jóns Sigurðssonar. . .
u
msóknarfrestur um stöðu
hæstaréttardómara rennur út á
morgun. Eftir helgi, þann fyrsta
september, mun Halldór Þor-
björnsson hætta störfum, svo Jón
Sigurðsson dómsmálaráðherra
verður að hafa hraðan á við að
skipa í embættið. Sú staðreynd að
dómsmálaráðherra er nú ekki í
Framsókn gerir þessa stöðuveitingu
dálítið annarlega. Hingað til hafa
framsóknarlögfræðingar verið dug-
legir að sækja um, en eitthvað mun
vera minna um þá meðal umsækj-
enda nú. Hins vegar hefur heyrst að
lögmenn tengdir Alþýðuflokknum
þyrpist nú með umsóknir sínar í
ráðuneytið. Meðal þeirra sem orð-
aðir hafa verið við umsóknir um
hæstaréttardómarastöðuna eru Jón
Finnsson lögmaður Sambands-
ins. Jón er sonur Finns Jónssonar
krataforingja. Hann er einnig bróðr
Birgis Finnssonar fyrrverandi
krataþingmanns að vestan. Þá hefur
heyrst að Hrafn Bragason borgar-
dómari ætli sér að sækja um stöð-
una. Hrafn sótti í vor um stöðu yfir-
borgardómara, en fékk ekki. Nú hef-
ur Hrafn kannski betri stöðu þar
sem hann er sonur Braga Sigur-
jónssonar fyrrverandi krataþing-
manns að norðan. Þá er einn krat-
inn enn ónefndur, Jón Þorsteins-
son, hæstaréttarlögmaður og fyrr-
verandi þingmaður krata. Jón varð
nú síðast frægur fyrir Útvegsbanka-
skýrslu sína. Þá hefur einn enn ver-
ið nefndur til starfans, en það er
Gunnlaugur Briem yfirsakadóm-
ari í Reykjavík. Gunnlaugur er ekki
krati, en hins vegar er hann saka-
dómari eins og Halldór Þorbjörns-
son var áður en hann fór í Hæsta-
rétt. Þegar Halldór víkur úr réttin-
um hverfur á braut síðasti hæsta-
réttardómarinn sem hefur reynlsu
af sakamálum í öðrum dómstigum.
Með því að ráða Gunnlaug yrði
stoppað upp í það gat.. .
M“' að verður mikið fjör í Heita
pottinum um helgina því á sunnu-
dagskvöld blæs Halldór Pálsson
þar með Árna Scheving, Krisjtáni
Magnússyni, Tomasi R. Einars-
syni og Birgi Baldurssyni. Þetta
verða trúlega hörkutónleikar. Hall-
dór hefur um langt árabil búið í Sví-
þjóð þar sem hann hefur leikið með
ólíkustu hljomsveitum, m.a. blés
hann alt-saxófónsóló með Abba á
skífu. Halldór var í hópi betri blás-
ara íslenskra og verður gaman að
heyra hvaða áhrif Svíþjóðardvölin
hefur haft á leik hans . . .
eru með alvinsælasta efni fjölmiðla
og haft fyrir satt að íslendingar séu
óðir í þvíumlíkt. Að minnsta kosti er
yfirdrifið af spurningakeppnum í
fjölmiðlunum, bæði þeim prentuðu
og þeim sem eru kenndir við ljós-
vakann. Undir lok septembermán-
aðar hefst á Stöð tvö spurninga-
þáttur sem við spáum vinsældum.
Hann hefur hlotið nafnið Ans-ans
og verða þátttakendur úr röðum
blaða- og fréttamanna. Það verða
sumsé fjölmiðlarnir sjálfir sem
keppa innbyrðis með útsláttarfyrir-
komulagi og mæta tveir starfsmenn
frá hverjum fjölmiðli. Stjórnendur
þáttanna verða Óskar Magnússon,
lögfræðingur og fyrrum fréttastjóri
DV, og Agnes Johansen, sjón-
varpskona. Sagt er að verðlaunin
verði vegleg. . .
|k|
■ ú mun vera afráðið að
Stefán Jökulsson komi út úr guf-
unni og setjist í morgunstól Bylgj-
unnar milli klukkan sjö og níu ...
Starfslaun Reykjavíkurborgar