Helgarpósturinn - 27.08.1987, Side 15
*
A Katalóníutorgi meö Margréti
Arnadóttur, leikkonu hjá Els
Comediants-flokknum í
Barcelona
flokkast undir það sem kallað hefur
verið „alternatívt" eða öðruvísi
leikhús. En er tími þess ekki að líða
undir lok. Hið háborgaralega stofn-
analeikhús er aftur í sókn?
„Alternatívt leikhús er ekki bara
tíska, heldur líka viss lífsmáti. Upp-
dráttarsýkin í^lternatívu leikhúsi er
ekki bara áhorfendum að kenna,
heldur líka leikurum og leikhús-
fólki. Það eru þeir sem eiga að sjá
um að mennta áhorfendur. Þeir geta
ekki farið fram á að áhorfendur láti
sér leiðast á sýningu eftir sýningu.
Við höfum bíómyndir og sjónvarp.
Áhorfandinn hugsar: Hvers vegna
ætti ég að standa í langri biðröð og
sitja á vondum stað ef leikhúsið er
leiðinlegt. Það þýðir ekkert að segja
við fólk að það sé kúltúrsnautt þótt
það fari ekki í leikhús. Maður þarf
heldur ekki endilega að selja sig
þótt maður komi til móts við áhorf-
endur. Okkar markmið er það að
skemmta okkur og öðrum. Um leið
reynum við að segja eitthvað sem
okkur finnst mikilvægt. Það er ekki
endilega nein pólitík. Það gerist svo
mikið af sorglegum og vondum
hlutum í heiminum. Maður opnar
dagblað og fyllist óhugnaði. Við
reynum líka að fjalla um hina hlið-
ina á lífinu, gleðina. Það er óþarfi að
vera alltaf með eitthvert heims-
endatal; það eru svo margir sem
fara betur með slíkt en við.“
— Þú talar um ferðalög og heim-
komur, þið lifið mestanpart á vegin-
um, eins og það heitir á poppmáli?
„Stundum hálft árið eða meira. í
fyrra vorum við í tvo og hálfan mán-
uð í Belgíu og Frakklandi. Síðan fór-
um við í þriggja mánaða leikferð
um Ítalíu. Við erum nýkomin úr
mánaðarferð til Mexíkó. Þetta getur
náttúrlega verið slítandi. Það koma
stundir þegar ég hugsa með mér:
Ænei, nú er nóg komið. Ég tek bara
næstu vél heim. En það er reyndar
ekki oft. Mér finnst gaman að ferð-
ast og kynnast nýjum hlutum. Að
því leyti hentar það mér vel að
vinna með Els Comediants. Og
blessunarlega höfum við tekið þá
stefnu að reyna að kynnast ekki
bara börunum og því lífi...“
AÐKAST FRÁ
HÆGRI ÖFGAMÖNNUM
— En fast heimilisfang er samt
Barcelona?
„Já, og við erum fyrst og fremst
katalónskt leikhús. Innbyrðis tölum
við á katalónsku og hér í Katalóníu
sýnum við á katalónsku.”
— Eruð þið þá pólitískt leikhús?
„Við byggjum mikið á kúltúrnum
hér í Katalóníu, en án þess þó að
vera beinlínis pólitísk. Ánnar leik-
hópur, sem við höfum haft talsvert
samneyti við, Els Joglars, er til dæm-
is miklu pólitískari. Hann var lokað-
ur inni í tvö ár á tímum Frankós fyrir
að krítísera falangistastjórnina. Við
hneigjumst miklu meira tii anark-
isma, tilheyrum engum flokki og
styðjum ekki neinn. Við erum leik-
hús lífsins og gleðinnar, sem
kannski er ákveðin pólitík í sjálfu
sér. Við höfum til dæmis mátt sæta
aðkasti frá öfgasinnuðum hægri-
mönnum á Suður-Spáni og víðar.“
— Nú er flokkur sósíalista við völd
á Spáni. Hefur það einhver áhrif á
starf leikhóps á borð við Els
Comediants?
„Við erum betur inn undir hjá
kerfinu síðan sósíaiistarnir tóku við
völdum. Það er líka meiri kraftur og
líf hér í borginni en áður var. Kata-
lónía er náttúrlega eitt ríkasta svæð-
ið á Spáni og síðan sósíalistarnir
tóku við hefur mörgum boðum og
bönnum verið aflétt. Hér flæða yfir
kvikmyndir, listamenn og leikhús.
Inngangan í Evrópubandalagið hef-
ur líka haft sitt að segja, Spánn er
smátt og smátt að nálgast svipað
menningarstig og Frakkland. Mað-
ur finnur fyrir því að fólk er ekki
lengur hrætt eða agressívt. Þegar
við vorum í Mexíkó fannst okkur
stundum eins og við værum á Spáni
eins og hann var fyrir rúmum tíu ár-
um. Hér er allt að verða svo þróað,
en þar fengum við ekki frið til að
sofa. Það var alltaf verið að bjóða
okkur í veislur. Við dönsuðum salsa
allar nætur."
— Olympíuleikarnir verða í
Barcelona eftir fimm ár. Verðið þið
þar með?
„Ólympíunefndin hefur farið þess
á leit við okkur að við verðum með
í að skipuleggja kúltúrhlið leikanna.
Við höfum ekki ennþá gefið svar.
Það fer svolítið eftir því hvaða pól
þeir taka í hæðina. Kannski verðum
við með og kannski verðum við
ekki einu sinni á Spáni."
ÍSLAND í
HEIÐURSSÆTI
— Eru Els Comediants nokkuð á
leiðinni aftur til íslands?
„Ja, hópurinn spyr mig að þessu
annað veifið, hvenær við förum til
íslands. Ef boðið berst, þá held ég að
allir séu tilbúnir að fara. Þau voru í
mánuð á íslandi, heilan mánuð án
nætur. Það eru ekki nema þrjú lönd
sem skipa heiðurssæti í hjörtum
okkar allra. Island, frland og
Mexíkó. Samt höfum við komið til
hérumbil allra landa í Evrópu."
— En þú sjálf, gætir þú hugsað þér
að vinna á Islandi?
„Það er ekki svo gott að segja. Ég
þekki í rauninni ekki svo vel hvað er
að gerast á íslandi. Ég veit þó að það
er miklu meira en þegar ég fór, vor-
ið 1976. Það er meiri grundvöllur
fyrir öðruvísi leikhúsi. En Islending-
ar eru fámenn þjóð og kannski erfitt
að lifa á því að gera hluti, sem eru
ekki alveg eftir uppskrift. Hér höf-
um við alla Evrópu að leikvelli og
erum líka farin að seilast yfir hafið.
Aðalástæðan fyrir því að ég er ekki
tilbúin til að fara aftur er sú að ég
held að á íslandi sé ekki jarðvegur
fyrir þeirri vinnu sem ég hef áhuga
á. Ég er hrædd um að einangrunin
yrði fullmikil. Ég vil vera í hringið-
unni miðri. Svona líður mér a.m.k.
núna. En það getur vel verið að eftir
nokkur ár fái ég óskaplega heimþrá.
Það hefur náttúrlega komið fyrir
marga. Það getur svo sem vel verið
adég sé að missa af einhverju heima
á íslandi. En þannig er lífið. Maður
velur og hafnar. Maður kýs eitt hlut-
skipti og missir af öðru.“
— Eru íslenskir leikarar kannski
slakari en kollegar þeirra á megin-
landinu?
„Nei, ég held að íslenskir leikarar
séu ósköp svipaðir og annars staðar.
Þeir kvarta undan því sama og leik-
arar í París, Mílanó og Barcelona;
blankheitum, að þeir fái enga sénsa,
að verkefnin séu alltaf eins.“
— Hvað er svo í bígerð hjá EIs
Comediants á næstunni?
„Við erum að vinna að nýrri sýn-
ingu, sem fjallar um nóttina frá ýms-
um hliðum. Við fjöllum um það sem
gerist á nóttinni, veltum því fyrir
okkur hverjir eru á ferli á nóttinni,
hvaða lykt sé á nóttinni og ýmsum
mýtum sem tengjast nóttunni. í
raun er það þessi vinna sem mér
finnst skemmtilegust. Maður veit
ekki hvað gerist næst, hver útkom-
an verður. Þegar við erum að semja
sýningarnar verður maður hálfpart-
inn eins og vitfirringur, æðir um
gólf, borðar ekki, sefur ekki. Svo
förum við sennilega aftur að ferð-
ast..
Allt í
leik-
fimina.
Franskur,
þýskur,
ítalskur
leikfimifiatnaður.
Leikfimibolir,
leikfimibuxur,
samfestingar,
upphitunarbuxur,
legghlífar,
skór og fleira.
*
Póstsendum.
Barna-, unglinga-
og fullorðinsstærðir.
© fiSTUflD ©
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68 Austurver
Sími 8-42-40 i
HELGARPÓSTURINN 15