Helgarpósturinn - 27.08.1987, Page 23
„Island normalt“
Matthew James Driscoll í Hafnargalleríi
LISTVIÐBURÐIR
Árbæjarsafnið
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 10—18. M.a. eru í safninu sýn-
ing á gömlum slökkviliðsbílum, sýn-
ing á Reykjavíkurlíkönum og sýning
á fornleifauppgreftri í Reykjavík.
Tónleikar í kirkju safnsins sunnudag
kl. 15.00.
Ásgrímssafn, Bergstaða-
stræti 74
Opið alla daga nema laugardaga frá
13.30 — 16.00. Yfir stendur sumar-
sýning á úrvali verka Ásgríms Jóns-
sonar.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar,
opið daglega frá 10—16.
FÍM-salurinn v/Garðastræti:
Birna Kristjánsdóttir með sýningu
sem heitir Litir og fletir og stendur til
30. ágúst. Sýningin er opin frá
14—19 daglega.
Gallerí Gangskör
Frjálst upphengi meðlima gallerís-
ins. Opið frá 12—18 virka daga og
14—18 um helgar.
Gallerí Grjót
Samsýning aðstandenda. Málverk,
grafík, skúlptúr, silfur o.fl.
Gallerí Svart á hvítu
Yfir stendur málverkasýning Sveins
Björnssonar sem lýkur um mánaða-
mótin.
Gallerí Langbrók Textíll
Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnað-
ur o.fl. á Bókhlöðustíg 2.
Gallerí Vesturgata 17
Sumarsýning Listmálarafélagsins.
Margir af okkar fremstu málurum
með sölusýningu á verkum sínum.
Opið virka daga frá 9—17.
Hafnargallerí
Matthew James Driscoll sýnir Ijós-
myndir hvaðanæva úr heiminum til
9. september.
Kjarvalsstaðir:
Margrét Elíasdóttir með sýningu í
vestursal en árviss Kjarvalssýning
stendur enn í öðrum sölum.
Krákan
Unnur Svavarsdóttir sýnir akrýl- og
pastelmyndir.
Listasafn ASÍ
Samsýning fjögurra Dagsbrúnarfé-
laga á vegum saf nsins og Dagsbrún-
ar, opnuð 29. ágúst og stendur til 13.
sept.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 13.30—16.00. Höggmynda-
garðurinn er opinn daglega frá kl.
10—17.
Listasafn íslands
Á sunnudaginn lýkur sýningu á úr-
vali íslenskra verka í eigu safnsins.
Safnið, sem er til húsa á efstu hæð
Þjóðminjasafnsins, er opið
13.30—16.00 daglega.
Norræna húsið
Frans Widerberg, norskur málari og
grafíker, sýnir málverk í kjallara og
grafík í anddyri. Sýningin verður
opnuð 8. ágúst og stendur út mán-
uðinn.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
Hallgrímur Helgason og Hjördís Frí-
mann opna einkasýningar í safninu
28. ágúst. Safnið er opið 16—20
virka daga en 14—20 um helgar.
Sýningunum lýkur 6. sept.
KVIKMYNDAHÚSIN
Hann œtlar að opna Ijósmynda-
sýningu í dag í Hafnargalleríi fyrir
ofan bókaverslun Snœbjarnar í
Hafnarstrœti 4. Myndirnar eru tekn-
ar víðs vegar um heiminn, alls í 10
löndum, en tuttugu þeirra eru frá ís-
landi. ,,Það eru víða fallegir staðir í
heiminum," segir hann og nefnir að
sennilega séu Þingholtin í Reykjavík
fegursti staðurinn.
Svolítið skemmtileg fullyrðing,
komin frá Bandaríkjamanni.
Matthew James Driscoll er fæddur í
Boston í Bandaríkjunum og lauk
námi sem bókmenntafræðingur frá
Skotlandi: „Vegna náms mins fékk
ég áhuga á evrópskum miðaldabók-
menntum og datt í hug að gaman
væri að læra íslensku. Hingað til
lands kom ég fyrst og fremst til þess
og dvaldi hér í þrjú sumur milli þess
sem ég var við nám í Skotlandi. Með
mér þar í skólanum var íslensk
stúlka og fyrir rest giftumst við og
komum hingað að námi ioknu, árið
1979. Við bjuggum í þrjú ár á Egils-
stöðum en erum nú búsett í Reykja-
vík þar sem ég er í kandidatsnámi í
íslenskum bókmenntum við Há-
skóla íslands."
Hann segist ekki hafa byrjað að
taka myndir fyrir alvöru fyrr en árið
1978, er hann var í heimsókn í
Bandaríkjunum: ,,Vinur minn einn
var blaðaljósmyndari þar en fékk
leið á starfi sínu. Hann gaf mér
myndavélina sína, tuttugu ára
gamla Nikon-vél, sem er blýþung
vél, og sneri sér sjálfur að tónlist. Eg
fór að æfa mig í að taka myndir,
bæði af fjölskyldunni og það sem ég
kalla ,,kúnstmyndir“. Það eru ein-
hver mótíf sem mér finnst spenn-
aijdi og áhugaverð. Flestar mynd-
irnar eru af landslagi eða húsum,
vegna þess að ég er sennilega ekki
nógu ákveðinn til að taka myndir af
fólki, nema þá vinum minum og fjöl-
skyldu! Ég hef ekkert lært að taka
myndir, aðeins lesið mér til í blöð-
um. Það gafst til dæmis vel að fletta
og skoða ljósmyndablöð í Máli og
menningu — en ég keypti mér hins
vegar aldrei blöð...“
Aðspurður hvers vegna hann tæki
svo margar myndir af húsum í
Reykjavík svaraði hann: „Ég er hrif-
inn af þessum bárujárnsþökum ykk-
ar. Það er fallegt hvernig skuggar
myndast í bárujárninu."
Auk þess að hafa búið um árabil í
Skotlandi bjó Matthew með fjöl-
skyldu sinni í eitt ár á Spáni og ann-
að í Þýskalandi, en þau hafa einnig
heimsótt mörg lönd: „Það er til
dæmis mjög gaman að mynda á
Spáni þar sem allt er nýtt fyrir
manni. í mínum augum er ísland
„normalt", mér finnst öll önnur lönd
vera útlönd." Hann bætir við að
bara það að mynda í Þingholtunum
sé nægilegt myndefni, þar séu svo
falleg gömul hús: „Mér finnst Þing-
holtin eiginlega með fallegustu
stöðum í heiminum til að mynda,"
segir hann.
Matthew játar það hiklaust að ljós-
myndun sé dýrt áhugamál: „Mig
hefur lengi langað til að halda sýn-
ingu og ákvað loksins að láta verða
af því,“ segir hann. „Hins vegar er
ekki hægt að neita því að ljósmynd-
un er geysilega dýrt áhugamál og
það er að minnsta kosti ein ástæða
þess að ég ákvað að halda sýning-
una. Þetta er sölusýning og ég er að
vonast til að fá eitthvað smávegis til
baka þótt þessi sýning sé auðvitað
fyrst og fremst sett upp til þess að fá
viðbrögð." Hann segist ekkert frek-
ar taka myndir í sólskini en rigningu
„og oft fer ég út seint á kvöldin með
myndavélina mína og mynda“ segir
hann. Hvort eigendur húsa hafi
aldrei hindrað hann í að ljósmynda
hús þeirra kveður hann aldrei hafa
gerst: „Ef ég sé húsráðendur bið ég
um leyfi, annars bara mynda ég.“
Það verður fróðlegt fyrir eigendur
gamalla bárujárnshúsa í Reykjavík
að sjá sýningu Matthews, því hver
veit nema húsið þitt hafi orðið fyrir
valinu sem gott myndefni? Sýningin
er opin á venjulegum verslunar-
tíma, kl. 9-18 virka daga og stendur
fram til 9. september.
★★★★
Um midnætti (Round Midnight). Kl.
5, 7.30 og 10 í Bíóhöllinni.
B/áa Betty (Betty Blue)
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20 í Bíóborg.
Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnd kl. 5,
7.30 og 10. í Bíóhöllinni.
Herbergi með útsýni (Room with a
View). Notalegur sjarmi kl. 7 í Regn-
boganum.
Neðanjarðarstöðin (Subway). Sýnd
kl. 7 og 11 í Stjörnubíói.
Herdeildin (Platoon). Nánast óþarfi
að dásama hana öllu frekar. Kl. 3,
5.20, 9 og 11.15 í Regnboganum.
★★★
Tveir á toppnum (Lethal Weapon).
Með Mel Gibson. Sýnd kl. 5, 7, 9 og
11 í Bíóhöllinni og Bíóborg.
Þrír vinir (Three Amigos). Hrein og
bein fyndni. Kl. 3, 5 og 7 í Regnbog-
anum.
Angel Heart
Yfirþyrmandi blóðstraumar og
galdraviðbjóður í einni mögnuðustu
hrollvekju síðari tíma. Sýnd kl. 5,7.30
og 10 í Bíóhöllinni.
Óvænt stefnumót (Blind Date).
Notalegur húmor í Stjörnubíói kl. 5,
7, 9 og 11 (og líka kl. 3 um helgina).
Logandi hræddur (The Living Day-
lights). Nýja James Bond-myndin.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 í Bíóhöllinni.
Ottó tOtto: Der Film) Endursýnd
mynd, full af fyndni og skemmtileg-
heitum. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.05 og
11.15 í Regnboganum.
Villtir dagar (Something Wild)
Bráðskemmtileg mynd sem er í senn
spennandi og fyndin. Ærslafull.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.15 í Regnbogan-
um.
★★
Folinn. Sýnd kl. 5,7,9 og 11 í Laugar-
ásbíói.
Wisdom. Hasarmynd, unglinga-
stjarnan Emilio Estevez farinn að
skrifa og leikstýra sjálfur. í Stjörnu-
bíói kl. 5 og 9.
Sérsveitin (Extreme Prejudice).
Plottið spillir fyrir annars ágætri
spennumynd. Kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíó-
borg.
Innbrotsþjófurinn (Burglar). Grín-
mynd með Whoopi Goldberg í Bíó-
höllinni kl. 7 og 11.
Vild'ðú værir hér (Wish you were
here). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
Kvennabúrið. Sýnd kl. 5, 7.20, 9 og
11.15 í Regnboganum.
★
Andaborð Hryllingsmynd kl. 5, 7, 9
og 11 í Laugarásbíói.
O
Lögregluskólinn 4 Langþreytt grin-
mynd í Bíóhöllinni kl. 5, 7, 9 og 11.
NÝJAR
Gínan (Mannequin). Gamanmynd í
Háskólabíói. Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Valhöll. Barna- og fjölskyldumynd í
Laugarásbíói. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Under the Volcano. Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11 í Bíóhúsinu.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
-AKM.
KVIKMYNDIR
eftir Ólaf Angantýsson
Þokkaleg spennumynd
Bíóhöllin/Bíóborgin: Lethal
Weapon (Tveir á toppnum).
★★/★?
Bandarísk. Árgerð 1987.
Framleiðendur: Richard Donner,
Joel Silver.
Leikstjórn: Richard Donner.
Handrit: Shane Black.
Kvikmyndun: Stephen Goldblatt.
Tónlist: Michael Kamen, Eric
Clapton.
Aðalhlutverk: Mel Gibson,
Danny Glover, Gary Busey,
Mitchell Ryan, Tom Atkins,
Darlen Love o.fl.
Þessa dagana gefst unnendum
góðra spennumynda að berja aug-
um í Bíóhöllinni og Bíóborginni
einn af betri smellum slíkrar teg-
undar er boðist hafa okkur reyk-
vískum á liðnu sumri. Þessi nýj-
asta afurð Richards Donner (The
Omen 1976, Superman '78, Lady-
hawk ’84 o.fl.) hefur þrátt fyrir
býsna ófrumlega ytri umgjörð
flest það til að bera er fullnægir
væntingum allra sannra spennu-
myndaunnenda: Hún er bráð-
skemmtilega skrifuð, full af nátt-
svörtum gálgahúmor og í ofaná-
lag temmilega sjúkiega fáránleg í
lýsingum sínum á jafnt grimmd og
óbilgirni höfuðskúrkanna sem og
þeim aðferðum er hið margfræga
lögreglulið Los Angeles-borgar
beitir við að koma þeim fyrir katt-
arnef.
Sjaldan hefur okkur gefist að líta
Ástralann Mel Gibson í viðlíka
ham. Hér fer hann á kostum í hlut-
verki Martins Rigg, er ku vera í
hópi ósérhlífnari lögreglumanna
innan morðdeildar LA-lögregl-
unnar. Leggur hann sig svo mjög
fram í starfi sínu að sálfræðingur
stofnunarinnar hefur af honum
stórar áhyggjur. . . álitur hann i
raun haldinn svo magnaðri sjálfs-
morðshyggju að jafnt samstarfs-
mönnum hans sem og hinum al-
menna borgara stafi stór hætta af.
Þennan mann fær hinn gamal-
reyndi Roger Murtaugh (Danny
Glover) sem vaktfélaga daginn
sem hann heldur upp á fimmtug-
asta aldursárið og er þeim félög-
um ætlað að grafast fyrir um
dauða vændiskonu nokkurrar
sem látið hefur lífið á nokkuð
vofeiflegan hátt nóttina áður.
Stúlkan reynist dóttir gamals vin-
ar Murtaughs og í ljós kemur að
auki að sá er kyrfilega flæktur i
net einkar harðsvíraðs og að sama
skapi vel skipulagðs eiturlyfja-
hrings, sem um árabil hefur stund-
að eiturlyfjasmygl með bein sam-
bönd í Asíu allt frá þeim tíma er
meðlimir smyglhringsins börðust
saman í Víetnam.
Það að skúrkunum er að sjálf-
sögðu um síðir komið fyrir kattar-
nef eftir mikið fum og fát, eldglær-
ingar miklar og bílaeltingaleiki
eins og þeir gerast bestir á hvíta
tjaldinu kemur í sjálfu sér engum
á óvart. Það sem á hinn bóginn
gerir þessa mynd öllu heilsteyptari
en margar aðrar svipaðrar teg-
undar er einkar vandvirknislega
unnið handrit Shanes Black,
nokkuð trúverðug persónusköp-
un mitt uppi í gegndarlausum fár-
ánleik sjálfs plottsins og umfram
allt afbragðsgóður leikur Mels
Gibson í hlutverki hins hálfbrjál-
aða Martins Rigg. Sem sagt: í alla
staði prýðisgóð dægrastytting og
hin ágætasta skemmtun hverjum
þeim er unun hefur af þokkalega
vel unnum afurðum amerískrar
spennumyndahefðar.
HELGARPÓSTURINN 23