Helgarpósturinn - 27.08.1987, Qupperneq 25
■ W ■örgum er ennþá í fersku
minni þáttur Onundar Björnsson-
ar um sumarbústaðaeign lands-
manna sem sýndur var í Sjónvarp-
inu fyrir fám vikum. í þættinum var
meðal annars rætt við Harald Snæ-
hólm flugstjóra í sumarbústað
nokkrum — æglfögrum — við Eyri
á Kollafjarðarströnd Barðastrandar-
sýslu. Ekki var annað að heyra á
Haraldi en hann ætti þennan bústað
sjálfur og kom heldur ekki annað
fram í umsögn umsjónarmanns
þáttarins um staðinn. Hið rétta mun
vera að Wathne-systurnar kunnu
eiga þetta sumarhús að stærstum
hluta, en Pórunn kona Haralds og
systurnar eru systkinabörn.
Wathne-systur munu vera heldur
gremjufullar yfir þessum misskiln-
ingi sem kominn er áleiðis í þjóðfé-
laginu, enda staðurinn fiottur sem
fyrr segir, og kunna þær að sögn
Onundi litlar þakkir fyrir innlitið í
bústaðinn. . .
|k|
■ ýjasta breiðskífa Stuð-
manna, sem heitir því ofursnjalla
nafni Á gæsaveiðum, hefur notið
eindæma vinsælda af sumarplötu
að vera. Nú fyrir nokkrum dögum
náði platan gullinu í sölu, það er að
segja fimm þúsund eintaka mark-
inu, og mun hugmyndin hafa verið
af hálfu dreifingaraðilans, sem er
Skífan, að afhenda Stuðmönnum
gullplötuna við opnun Kringlunn-
ar þann 13. ágúst síðastliðinn. Af
því gat þó ekki orðið vegna fjarveru
Valgeirs Guðjónssonar, eins liðs-
manna grúppunnar, sem á einmitt
ekki minnstan þátt í vinsældum
plötunnar. Hvenær af afhending-
unni verður vitum við ekki enn, en
látum lesendur vita...
U
■ Húsaleiga á Laugaveginum
hefur fram til þessa þótt svo mikil að
verslanir hafa gert hvað þær geta til
að auka söluna. Um síðustu helgi
brá hins vegar svo við að viðskipta-
vinir urðu heldur betur varir við að
húsaleigan í Kringlunni er mun
hærri. Að minnsta kosti hneykslaði
það heimildarmann HP þegar hann
kom að snyrtivöruversluninni
Clöru á Laugavegi, sem jafnframt
er starfrækt í Kringlunni. Clara hef-
ur fram til þessa haft opið á laugar-
dögum en nú brá svo við að við-
skiptavinurinn kom að harðlæstum
dyrum. Skýringuna fékk hann frá
stúiku sem kom hlaupandi úr næstu
verslun: „Það er opið í Kringlunni."
Viðskiptavinurinn sem hafði verið
tryggur Clöru í gegnum tíðina
ákvað með það sama að stíga ekki
fæti sínum framar inn í þá verslun,
einkum þegar haft er í huga að hann
er bíllaus og starfar í „gamla“ mið-
bænum. Segir hann það ósvífni af
verslunareigendum að vísa við-
skiptavinum bæinn á enda þurfi
þeir að versla á laugardagsmorgn-
um. Pess má geta að Clara er ekki
eina verslunin sem sýnir viðskipta-
vinum sínum slíka lítilsvirðingu,
fleiri verslanir hafa bent á opnunina
í Kringlunni...
| framhaldi af því er það verðugt
Shandmenntaskoli islands
I Sími 27644 box 1464 121 Reykjavík
• Við byrjum þann 31. ágúst
l
i
l
umhugsunarefni: Hvers vegna fær september, meðan verslanir í séu sjálfir við störf? Hvert er eig-
Kringlan að hafa opið á laugardög- „gamla miðbænum" eru skikkaðar inlega starfssvið Verslunarmanna-
um til klukkan fjögur fram til fyrsta til að hafa lokað nema eigendur félags Reykjavíkur?
Höfum til útleigu eínn glæsilegasta
veislu- og ráöstefnusal borgarinnar. Ut-
análiggjandi glerlyfta flyturgesti upp í
Norðurljósin. Salurinn hentar fyrir hvers
konarveislurog mannfagnaði, svo sem
árshátíðir, þorrablót, erfidrykkjur, hádeg-
isverði, ráðstefnur, brúðkaups- og
fermingarveislur, aukannarra mann-
fagnaða eða funda.
VEISLU- OG RÁÐSTEFNUSALUR
í Þórshöll, Brautarholti 20, símar: 29099, 23333 og 23335.
Sjón ersögu rikari
Veitingastjóri Norðurljós-
anna gefur allar nánari
upplýsingar.
GóÖ aðstaða til allra
veislu- og ráöstefnu-
halda oggreið aÖkoma
fyrir fatlaöa.
Útbúum allan matog
aðrarveitingar, allt eftir
óskum hvers og eins.
Hjá okkur færðu allt í matinn
Glæsilegt kjöt- og fiskborð
Tilboðsverð á eggjum og
Rómarpizzum
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9—19
Föstudaga kl. 9—20
Laugardaga kl. 9—16
Sunnudaga kl. 10—14
KAPPKOSTUM AÐ VEITA GÓÐA ÞJÓNUSTU.
REYNIÐ VIÐSKIPTIN, VERIÐ VELKOMIN.
HELGARPÓSTURINN 25