Helgarpósturinn - 27.08.1987, Qupperneq 28
SKÁK
Skákhátíö í Biel
eftir Guðmund Arnlaugsson
Skákhefðir eru sífellt að verða
til. Þannig sá ég mér til undrunar
að skákhátíðin í Biel, sem haldin
er á hverju sumri, er orðin tuttugu
ára gömul hefð. Biel er borg í
Sviss, á stærð við Reykjavík eða
tæplega það, en mun eldri, hún er
talin vera stofnuð um 1220. Herir
Napóleons lögðu borgina undir sig
og tilheyrði hún Frakklandi um
rúmlega tveggja áratuga skeið, en
við Vínarfriðinn 1815 var hún aft-
ur sameinuð Bernarfylki í Sviss og
hefur verið það síðan. Biei er heil-
mikil menningarborg og þar hafa
menn reynt að halda góðu sambýli
milli nýs og gamals.
Skákhátiðin í Biel er fléttuð sam-
an úr mörgum skákmótum. í þetta
sinn voru þau tólf alls, og þátttak-
endur samtals 1110, en þá eru
sumir raunar tvítaldir: þeir sem
tóku þátt í fleiri mótum en einu.
Toppurinn var stórmeistaramót
þar sem átta keppendur telfdu tvö-
falda umferð. Næst má líklega
telja blandað heimsmót þar sem
sex alþjóðlegir skákmeistarar
kvenna reyndu sig við sex
svissneska karlmeistara og tefldi
hver tvær skákir við hvern kari-
anna. Fjölmennasta mótið í þess-
ari fléttu var opið meistaramót
með 208 þátttakendum. Þar sigr-
aði Gutman frá ísrael. Þarna voru
einnig unglingamót og öldunga-
mót, skammtímamót (þar sem
hvor hefur klukkustundar um-
hugsunartíma á alla skákina,
hvort sem hún verður löng eða
stutt) og hraðskákmót, skákmót
blaðamanna og fjöltefli.
Á blandaða mótinu kepptu þess-
ar konur: Pia Cramling, Barbara
Hund, Júdit Polgar, Jana Miles,
Lematsjkó og Muresan. Pia varð
hlutskörpust kvennanna, náði 7,5
vinningum í 12 skákum. Af and-
stæðingunum var Zueger sigur-
sælastur, náði 9 vinningum.
Svissnesku meistararnir unnu
kvenmeistarana með 44 vinning-
um gegn 28. Á stórmeistaramót-
inu urðu 32 af 56 skákum jafntefli
og var þó barist þar af mikilli
hörku.
Þar urðu úrslit þessi:
1 Boris Gulko 9 5 Hort 7,5
2 Rómanísjín 8,5 6 Húbner 5,5
3 Campora 8 7 Lobron 5
4 Chandler 7,5 8 Polgar 5
Zsusza Polgar sem þarna er síð-
ust nefnd er ungversk stúlka sem
vakið hefur mikla athygli. Yngri
systir hennar Júdit tefldi með
kvennaliðinu gegn svissnesku
meisturunum. Þær systur eru ald-
ar upp í skák, allt heimilislíf þeirra
er við skákina miðað, enda er það
yfirlýst ætlun föður þeirra að
Zsusza verði heimsmeistari í skák
— ekki aðeins kvenna heldur
kvenna og karla. Þær systur þykja
býsna efnilegar, Júdit vann til feg-
urðarverðlauna hátíðarinnar:
Costa — Júdit Polgar
01 d4 Rf6
03 Rf3 cd4
05 Rb5 d5
07 R5c3 0-0
09 e3 f5
11 h3 Rxf2!
13 Kel Hf2
15 Dd3 Ra6
17 Be4 Bxe4
19 Bxe3 Rc5
21 Dxd4 He8 +
og mátar.
02 c4 c5
04Rxd4 e5
06 cd5 Bc5
08 g3 Rg4
10 Bg2 f4!
12 Kxf2 fe3 +
14 Hgl Df8
16 a3 Bf5
18 Dxe4 Bd4!
20 Bxd4 ed4
22 Kdl Df3 +
Fyrsta skákin sem ég skoðaði frá
mótinu minnti mig á löngu liðna
tíð:
Hiibner — Hort
Aljekínsbyrjun
01 e4 Rf6 02 e5 Rd5
03 d4 d6 04 c4 Rb6
Aljekínsbyrjunin var á sínum
tíma einhver byltingarkenndasta
nýjung í skákbyrjunum: svartur
lætur hrekja riddara sinn um borð-
ið og býður hvítum að byggja upp
öfluga peðaborg á miðborði. Þá
var talið sjálfsagt að tefla eins og
Húbner gerir nú.
05 f4 de5 06 fe5 Rc6
07 Be3
En ekki 7 Rf3 vegna Bg4, hvítur
verður að gæta þess vel að dýr-
mæt peðaborgin riðlist ekki.
07 . . . Bf5
09 Rf3 Bg4
11 a3 Be7
13 Be2 0-0-0
15 Rg3 Bg6
08 Rc3 e6
10 Dd2 Bb4
12 Re4 Dd7
14 0-0-0 Bf5
16 h4
Óvænt atlaga!
Svartur hótar máti og riddarann
má ekki taka: 17 ab4 Da4 18 Bd3
Rxc4! eða 18 Dc3 Bxb4 19 b3 Da2
20 Hd2 Ba3+.
17 b3 Rc2 18 c5 Dc6
19 Bd3 Rxe3 20 Dxe3 Rd5
21 Df2 Bxd3 22 Hxd3 Da6
23 Hhdl Dxa3+ 24 Db2 Dxb2 +
25 Kxb2
Svartur á ekki aðeins peð yfir
heldur stendur hann einnig að
öðru leyti betur að vígi í endatafl-
inu, því að peð hans eru nær
heimabyggð sinni. Þetta nægir
honum til vinnings eftir nokkurn
þæfing.
25 ... f5
27 h5 g5
29 Hhl Hxg6
31 Hh3 Hg4
33 Kxc3 Kd7
35 Rd2 b5
37 Kdl f4
39 Ke2 h4
41 Re4 Hgl
43 Hh2 Hf8
45 Rf6 Bxf6
47 Hxh4 Hf7
49 Ke5 Hxb4
51 Kxe6 Kc7
53 Kf6 Hd7
55 Ke4 Hc4
26 Re2 h6
28 hg6 Hdg8
30 g3 h5
32 Rc3 Rxc3
34 b4 c6
36 Kc2 Kc7
38 gf4 Hxf4
40 Ke3 Hg4
42 Ha3 Kb8
44 Haa2 Hbl
46 ef6 Hxf6
48 Ke4 Hd7
50 Hd2 a5
52 Ke5 He7+
54 Ke5 a4
0-1
GÁTAN
Býður maður í banka?
■ • 'B>|ueq
QjÁ jngAq juuBUi 'jaN :jbas
SPILAÞRAUT
Það er næstum sjálfgefið að þeg-
ar Hrólfur Hjaltason kemur nærri
spilastokk spretta fram þrautir. Og
venjulega er hann svo vænn að
eftirláta andstöðunni vandann:
♦ 10763
O K4
O 102
+ ÁK986
♦ Á54
O DG872
O 652
+ 105
Hrólfur í suður opnar á 1-spaða
“a la natural", og norður stekkur í
fjóra. Hversdagsleg útspil eru ekki
við hæfi svo þú velur lauf-10.
Hrólfur á slaginn á ás og spilar tígli
á gosa. Þá ás og kóngur í tígli og
hjarta kastað. Síðan birtist tígul-
drottning (dæmigerð íferð).
Þú veist af afköstum að félagi
átti upphaflega 4 tígla. Meðan þú
nagar á þér öxlina og iðrast út-
spilsins, þá er þér deginum ljósara
að ætlunin er að fleygja hjarta-
kóng úr blindum. Svo þú dregur
fram tromp-4.
Ææ. Hrólfur yfirtrompar og hef-
ur skömmu síðar innbyrt 10 slagi.
Var þá rétt, eftir allt saman, að
leyfa Hrólfi að losna við hjarta-
kóng? Lausn á bls. 10.
LAUSN Á MYNDGÁTU
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum á verðlaunamyndgátu HP
sem birtist á þessum stað í blaðinu
fyrir tveimur vikum. Lausnin sem
leitað var eftir er íslendingar standa
sig vel á svidum íþrótta. Hver meist-
arinn á fœtur ödrum. Og vinnings-
hafinn að þessu sinni er Adam
Lipski, Hringbraut 71 í Keflavík.
Hann fær senda bókina Níu lykla
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sem
Vaka-Helgafell gaf út fyrir síðustu
jól.
Frestur til að skila inn lausn gát-
unnar hér að neðan er venju sam-
kvæmt til annars mánudags frá út-
komu þessa tölublaðs. Merkið
lausnina myndgáta. Verðlaunin eru
nú skáldsagan Þjód bjarnarins
mikla eftir Jean M. Auel sem Fríða
Á. Sigurðardóttir sneri á síðasta ári.
Bókin þykir lýsa lífi forfeðra okkar á
snilldarlegan máta.
Góða skemmtun!
28
HELGARPÓSTURINN