Helgarpósturinn - 27.08.1987, Side 29
ÍÞRÖTTIR
EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON
ÚRSLITALEIKUR BIKARKEPPNINNAR
PÉTUR ORMSLEV
Maðurinn sem getur
unniö leikinn?
ÁGÚST MÁR JONSSON
PÉTUR PRÍMUSMÓTOR
HJÁ FRAMLIÐINU
Ég leitaði til Ágústs Más Jónsson-
ar, landsliðsmanns og fyrirliða KR
í meistaraflokki. Hann hefur oft
glímt við Pétur Ormslev í gegnum
árin. Ég innti hann álits á Pétri sem
leikmanni og því hvort hann gæti
ef til vill orðið sá leikmaður sem
skipti sköpum í bikarleiknum. Gef-
um Gústa orðið:
,,Pað er ljóst að Pétur er algjör
prímus mótor í Framliðinu. Leikur
liðsins gengur út á hann og í gegn-
um hann. Pétur fer aftur til að
sækja boltann og hjá honum hefj-
•ast flestar sóknir liðsins. Hann hef-
ur alla þá tækni sem leikmaður í
slíku hlutverki þarf að hafa og
veldur varnarmönnum yfirleitt
þungum áhyggjum.
Það sem er svo erfitt við að eiga
þegar Pétur er annars vegar er
hvernig hann „svindlar" oft á
dekkingum og kemur síðan á
blindu hliðina á varnarmönnum.
Þannig skorar hann mörg marka
sinna. Hann fær með öðrum orð-
um að leika lausum hala. Ég vil
benda á annan leikmann sem ger-
ir slíkt hið sama og það er Svein-
björn Hákonarson hjá Skaganum,
enda hefur hann gert okkur KR-
ingum margar skráveifur. Þessir
leikmenn gera andstæðingunum
erfitt fyrir séu þeir ekki hreinlega
látnir hafa „yfirfrakka". Þó gerðist
það í fyrra í bikarleik okkar KR-
inga gegn Fram að Gunnar Gísla-
son dekkaði Pétur mjög vel til að
byrja með og þá hafði hann sig lítt
í frammi. Síðan losaði Gunnar tök-
in á Pétri og þá fóru Frammarar að
bíta frá sér í gegnum Pétur.
Pétur hefur líka sína veikleika.
Hann „vælir" mikið í leikjum sé
hann tekinn fast og það bitnar
nokkuð á samherjum hans sem fá
að kenna á því að honum gengur
illa. Þetta er mikill galli hjá Pétri
og verður iðulega til þess að hann
hættir að einbeita sér að leiknum.
Þannig er örugglega best í mjög
mikilvægum leikjum að taka Pétur
fast og láta hann hafa yfirfrakka.
Þó er ég ekki viss um að Víðisliðið
geri það í bikarleiknum. Víðisliðið
er gjarnara á að reyna að loka öll-
um svæðum í vörninni og gefa eft-
ir vallarhelming andstæðingana
en treysta síðan á skyndisóknir.
Barátta Víðismanna er mikil og
þeir loka svæðum fljótar er flestir
aðrir.
Þá hefur það viljað brenna við
hjá Framliðinu að þeir fá á sig mik-
ið af mörkum og að hluta til stafar
það af því að Pétur „svindlar" á
varnarhlutverkinu og ef andstæð-
ingarnir ná að nýta sér það þá er
vörnin veik fyrir, svo ég tali nú
ekki um ef aðrir miðjumenn
Frammara klikka einnig á varn-
arhlutverkinu.
Leiki Pétur lausum hala í bikar-
leiknum á sunnudaginn og aðrir
leikmenn liðsins halda sínu, þá
ætti sigurinn að vera Frammara
þó allt geti gerst í bikarleik. Víst er
að frammistaða Pétur getur skipt
miklu.“
Það hefur ekki farid framhjá nein-
um sem fylgst hefur med íslensku
knattspyrnunni í sumar ad Framm-
arinn Pétur Ormslev hefur átt sér-
staklega gott knattspyrnusumar og
uerid potturinn og pannan í leik
Frammara. Um þessar mundir er
Pétur einnig markahœsti leikmaöur
í fyrstu deild Islandsmótsins og
ósennilegt annad en hann krœki í
gullskóinn í haust. Þá er líka margt
sem bendir til þess ad hann ueröi
kosinn knattspyrnumaöur ársins
þegar staðið uerður upp að mótum
loknum. Og nú um helgina fer fram
úrslitaleikurinn í bikarkeppni KSI,
en þar leika Frammarar gegn Víði í
Garöi. Það er Ijóst að frammistaða
Péturs Ormsleu kann að skipta
sköpum fyrir Framliðið í þessum
stœrsta leik sumarsins. Pétur
Ormsleu er einn fárra leikmanna á
íslandi sem geta unnið leiki upp á
eigin spýtur. Það hefur hann áður
gert, meðal annars í bikarúrslita-
leikjum. Nú er spurningin huort
hann endurtekur máski þann leik.
Pétur hefur ráðið úrslitum í nokkr-
um leikjum Framliösins í sumar og
uerið sérlega iðinn uið að skora
mörk. Þá er ekki langt síðan hann
leiddi Framliðið til sigurs í bikar-
keppninni í knattspyrnu með stór-
leik gegn Keflvíkingum árið 1985.
Mörgum er eflaust í fersku minni
mark sem hann skoraði gegn FH á
lokamínútu leiks þessara liða í síð-
ari umferð Islandsmótsins. Mikil-
uœgu mörkin hafa verið fleiri, enda
er hann langmarkahœsti leikmað-
urinn í fyrstu deild, með tólf mörk
sem hann hefur skorað á ýmsan
hátt — með sköllum, úr uítaspyrn-
um og beint úr aukaspyrnum. En
Pétur á ekki bara stórleiki þó hann
hafi leikið með afbrigöum uel ísum-
ar. Hann uar til að mynda alueg úti
á þekju í uiðureigninni gegn Val um
síðustu helgi. Þar tóku Valsmenn
það ráð að láta Hilmar Sighuatsson
fylgja honum sem skugga allan leik-
inn og það gekk upp. Pétur á l'tka
sína slœmu daga, þótt þeir hafi ekki
uerið margir í sumar, og þá helst ef
hann er tekinn ístífa gœslu og aldrei
litið af honum.
FERILLINN EKKI
DANS Á RÓSUM
Knattspyrnuferill Péturs Ormslev
hefur þó ekki alltaf verið dans á rós-
um. Barnungur var hann KR-ingur,
en síðan fór hann í Val þar sem hann
lék í unglingaflokkum. Með Fram
hefur hann leikið alla sína tíð í
meistaraflokki, utan árin 1982—84,
en þá freistaði hann gæfunnar með
Fortuna Dússeldorf í V-Þýskalandi.
Pétur vakti snemma athygli fyrir
lipra boltameðferð, góðar sending-
ar og næmt auga fyrir leiknum.
Sannkallaður knattspyrnuheili. Það
var á þeim árum þegar umboðs-
menn útlenskra stórliða streymdu
til íslands í leit að efniviði. 1981 átti
Pétur mjög gott keppnistímabil hér
heima og skilaði það Fram í annað
sæti fyrstu deildar. Eftir það var Pét-
ur keyptur til liðs við þýska fyrstu-
deildarliðið Fortuna Dússeldorf, þar
sem fyrir var Atli Eðvaldsson. Það
er skemmst frá því að segja að at-
vinnumennskuferill Péturs Ormslev
var hálfgerð sorgarsaga.
Hann kemur til liðs við Dússeldorf
þegar liðið er á blússandi siglingu í
deildinni, tapaði varla leik í fyrri
umferð Bundesligunnar. Því var
ekki nema von að Pétur ætti í erfið-
leikum með að komast í lið. Hann
kom inn á annað veifið en náði ekki
að sýna sitt rétta andlit, meðal ann-
ars vegna þess að hann spilaði ekki
þá stöðu sem honum er eiginlegust.
Mörk skoraði hann fá, og steininn
tók úr þegar hann meiddist. Þannig
má geta þess að fyrstu tvö keppnis-
tímabilin hjá Dússeldorf kom Pétur
ekki inn á í nema níu leikjum og
skoraði eitt mark.
Þessi meiðsl háðu Pétri lengi.
Þeim varð hann fyrir í landsleik Is-
lendinga gegn írum í október 1982.
Þessi leikur þótti allljótur, sérstak-
lega vegna þess hversu fantalega ír-
arnir léku. Þrátt fyrir meiðslin og
slakt gengi endurnýjaði Pétur samn-
inginn við Dússeldorf vorið 1983 en
bara til eins árs. Þá hafði hann kom-
ið inn á í leik og skorað mikilvægt
mark — klukkan f imm mínútur í tólf
á atvinnumennskuferli sínum, eins
og þýska fótboltablaðið Kicker orð-
aði það. Þriðja tímabil hans hjá
Dússeldorf var ekki miklu happa-
sælla. Meiðsl settu aftur strik í reikn-
inginn og vorið 1984 lýsir Pétur þvi
yfir að hann sé á leiðinni heim og
ætli að spila með Fram.
Hann var lítið með það árið, en
1985 er hann aftur kominn í bláa
búninginn. Það keppnistímabil var
varla nema í meðallagi gott hjá
Pétri, enda er það trú manna að at-
vinnumönnum gangi heldur illa
fyrsta árið eftir að þeir snúa aftur til
félagsliðanna íslensku. Þó var það
þá um haustið að Pétur gerir Fram
að bikarmeisturum með tveimur
mörkum gegn Keflvíkingum, eins
og áður var sagt frá.
AFTUR
ATVINNUMENNSKA
Síðastliðinn vetur fékk Pétur
ásamt Guðmundi Steinssyni tilboð
um að leika með v-þýska liðinu
Kickers Offenbach. Guðmundur sló
til en Pétur ákvað að fara hvergi.
Hann sagði m.a. í viðtali að tilboð
þýska liðsins væri ekki nógu freist-
andi til að hann vildi rífa sig upp og
fara. Pétur þekkir atvinnumennsk-
una af eigin raun og í sama viðtali
staðhæfir hann að atvinnutilboð frá
erlendu liði þurfi að vera mjög gott
til að hann taki því. Pétur er 29 ára
að aldri, orðinn fjölskyldumaður, en
á enn nokkur ár eftir á toppnum ef
vel gengur. Hvort hann fer út í at-
vinnumennskuna á ný er óvíst, en
líklegt er að fleiri félög fái augastað
á honum eftir þetta keppnistímabil,
bæði vegna þess hversu reyndur
hann er og vegna þess hversu fjöl-
hæfur leikmaður hann er.
Eins má spyrja hvort Pétur
Ormslev hljóti ekki að hafa unnið
sér tryggt landsliðssæti með
frammistöðu sinni í deildinni í sum-
ar. Hann hefur ekkert fengið að
spreyta sig að ráði í landsliði síðustu
tvö árin, enda er sagt að Siegfried
Held landsliðsþjálfari vilji frekar at-
vinnumenn sem leika með miðl-
ungsliðum úti en yfirburðaleik-
menn úr íslensku deildinni. En nú er
staðan sú að varla er hægt að ganga
framhjá Pétri...
HVÍ VINNUR
HANN LEIKI?
Það er víst einfaldast að svara
þessari spurningu með þeim orðum
að hann hefur litlar skyldur á leik-
vellinum aðrar en þær sem hann
skapar sér sjálfur. Pétur fær gjarnan
að leika lausum hala á miðju vallar-
ins en einstaka sinnum í framlínunni
þar sem honum gengur þó verr.
Varnarskyldur hans í leik eru litlar
sem engar og því „svindlar" hann
oftast á dekkingum en skýtur síðan
upp kollinum í hættulegum færum
ef andstæðingunum lánast ekki að
nýta sér veikleika miðjunnar eftir
að hann „svindlar". Pétur hefur
næmt auga fyrir samleik og það
hafa þeir félagar Guðmundur
Steinsson og Torfason fengið að
reyna, þeim til góðs. Tilkoma Ragn-
ars Margeirssonar í Framliðið í sum-
ar hefur hjálpað Pétri mikið þar sem
hann getur nú einbeitt sér að því að
leika lausum hala á miðjunni og
koma aftur til að sækja boltann í
stað þess að hanga í fremstu víglínu.
Það er raunar athyglisvert að nú í
sumar stefnir Framliðið í það að
eignast fjórða markakónginn á jafn-
mörgum árum. Tveir þeirra hafa
verið framherjar, Guðmundur Torfa-
son og Guðmundur Steinsson, og
tveir framliggjandi miðvallarleik-
menn, Pétur og Ómar Torfason.
Veikleika hefur Pétur þó alltaf
haft. Hann er skapmikill og þegar
illa gengur lætur hann það fara í
taugarnar á sér og dettur þá oft al-
gerlega úr takt við leikinn. Þessi
galli hefur fylgt Pétri um langa hríð
eða frá því að hann vakti fyrst at-
hygli sem ungur leikmaður í meist-
araflokki Fram. Sé hann dekkaður
stíft og aldrei gefinn friður á boltan-
um þá riðlast leikur hans og á því
fær Framliðið oftast að kenna. Þá er
hann kvartgjarn á velli og þrátt fyrir
að hafa róast mikið á hann enn við
það vandamál að stríða. Ennfremur
hafði Pétur orð á sér fyrir að vera
óstýrilátur utan leikvallar, nokkuð
sem þó er sagt hafa lagast hin síðari
ár, enda er Pétur hamingjusamlega
giftur Helgu Möller, söngkonu og
sjónvarpskonu, og eiga þau ungt
barn. Pétur hefur líka axlað þá
ábyrgð að vera fyrirliði Fram og á
hann í því hlutverki auðvitað að
vera fyrirmynd þeirra ungu leik-
manna sem skipa liðið.
Það er náttúrlega óvíst hvort Pét-
ur Ormslev nær sér á strik í viður-
eigninni við Víði á sunnudaginn.
Það veltur á mörgu og þá meðal
annars á þeirri taktík sem Víðis-
menn beita í leiknum. Þeir vita auð-
vitað mæta vel hvílíkur lykilmaður
Pétur er í Framliðinu. Nái hann sér
á strik getur það skipt sköpum fyrir
Framliðið. Hann getur verið maður-
inn sem skilur á milli sigurs og taps.
VÍÐIR GARÐI
MEÐ HJARTANU SPILA
ÞEIR OG VINNA
Á pappírunum virkar lið Víðis í
Garði ekki sem veruleg hindrun á
vegi Frammara í átt að bikarmeist-
aratitlinum. Liðið hefur á að skipa
jöfnum leikmönnum og fáum góð-
um. Víðismenn spila hinsvegar
með hjartanu og þar slær baráttan
hratt og örugglega. Víðismenn
verða því meira en lítilvæg hindr-
un á vegi Frammara þrátt fyrir að
þeir séu á leið niður í 2. deild. Það
er reyndar staðföst trú þess sem
þetta ritar að Víðir vinni leikinn. í
bikarleikjum vinnur Davíð jafn oft
og Golíat.
Á leið sinni í úrslitaleikinn hafa
Garðsbúar lagt að velli ekki lakari
lið en Val og KR svo þeir ættu að
geta átt í fullu tré við Frammara.
Það sem fyrst og fremst fleytir Víð-
ismönnum áfram er barátta og sam-
staða leikmanna inni á vellinum.
Liðið er drifið áfram af tveimur
leikmönnum sem spilað hafa sam-
an í áraraðir ef ekki -tugi. Daníel
Einarsson og Guðjón Guðmunds-
son skipta sköpum fyrir Garðsbúa.
Án þeirra væri liðið vængbrotið.
Daníel stjórnar mjög vel útfærð-
um varnarleik liðsins og á miðj-
unni er Guðjón iðnari en Japani.
Flestir aðrir leikmenn liðsins hafa
spilað með liðinu frá því það var í
3. deild og þeir þekkja allir hver
annan jafn vel og mæður sínar. í
bikarúrslitaleik er þetta mjög
mikilvægur þáttur.
Þá vil ég minna á þátt áhorfenda
í leiknum á sunnudaginn. Það er
víst að Garðsbúar munu fjöl-
menna á völlinn og ekki láta sitt
eftir liggja í hvatningarópum og
stuðningi við sína menn. Þá er það
grunur minn að ekki aðeins
Garðsbúar muni halda með lítil-
magnanum heldur meirihluti
áhorfenda. Það hefur ekki svo lítið
að segja, eins og Skagamenn hafa
oft fengið að njóta góðs af.
Og svo er það spáin: Víðir-Fram
1-0.
HELGARPÓSTURINN 29