Helgarpósturinn - 27.08.1987, Page 30
MATKRAKAN
Matskeið af
kynhormónum
„Ofboðslegt hormónarugl er nú á henni
þessari," segja karlmenn stundum þegar þeir
komast í tæri við æstar konur undir stýri í
umferðarhnút.
„Svei mér þá! hað er sama hvað ég borða
lítið og syndi mikið, ég léttist ekki um
gramm. Hormónastríðið ætlar að dragast á
langinn," hrýtur frjálslega vaxinni konu af
vörum þegar hún stígur niður af baðvigtinni
í Sundhöllinni.
Það færist mjög í vöxt að gera hormónin
að blóraböggii þegar eitthvað fer úrskeiðis í
lífinu. Þau komast m.a.s. býsna oft í heims-
pressuna núorðið: konur sem ákærðar hafa
verið fyrir að hafa barið menn og börn reyna
að fá sig sýknaðar á þeirri forsendu að þær
hafi ekki verið með sjálfum sér sökum fyrir-
tíðaspennu sem einkum stafar af jafnvægis-
röskun í framleiðslu kvenkynhormónanna
estrogens og progesterons; karlar fremja að
tiltölu flesta ofbeldisglæpi, á borð við nauðg-
anir og aðrar líkamsárásir, síðla hausts þegar
mest er af karlkynshormóninu testosteroni í
blóði þeirra; flúorljós á skrifstofum eru jafn-
vel sögð hafa áhrif á hormónaframleiðslu lík-
amans. Hvers vegna skyldu hormón vera
orðin svona vinsælt fjölmiðlaefni?
Meginástæðan er líkast til sú að innkirtla-
fræði, sú grein sem fæst við þá kirtla sem
framleiða hormón, er nú eitt líflegasta sviðið
innan læknavísindanna. Hormón voru ekki
uppgötvuð fyrr en skömmu eftir síðustu
aldamót og fram á 3. áratug aldarinnar vissu
vísindamenn nánast ekkert um innkirtla á
borð við nýrnahetturnar sem framleiða
adrenalínið fræga. í dag hafa sérfræðingar
uppgötvað ríflega 100 mismunandi hormón
og sífellt eru fleiri að bætast í hópinn.
HVAÐ ER HORMÓN?
En hvers konar fyrirbæri eru þessar dular-
fullu agnir sem skipta sköpum í lífinu?
Hormón er stýriefni sem myndast í innkirtl-
um, fer út í blóðið og berst með því á áfanga-
stað. Þar hafa hormónin áhrif á verkun ein-
hvers hvata og geta þannig örvað eða dregið
úr hraða tiltekinnar efnabreytingar. Helstu
innkirtlar eru skjaldkirtill, heiladingull, hóst-
arkirtill, nýrnahettur, briskirtill, heilabotn,
eggjastokkar, eistu og heilaköngull sem m.a.
er talinn framleiða hormón sem stýrir dæg-
ursveiflum.
Samtals vega þessir innkirtlar aðeins á
milli 110—200 g af mannslíkamanum, og
hormónin sjálf eru svo örsmá að t.d. fram-
leiða konur aðeins tæplega tvær matskeiðar
af kvenhormónunum estrogeni og progest-
eroni um ævina, þrátt fyrir það að framtíð
mannkyns velti á framleiðsiu þeirra og sam-
hæfingu. Karlar framleiða u.þ.b. sama magn
af karlhormóninu testosteroni um ævina
sem nægir til að útvega þeim skegg og djúpa
rödd, gera þá 10% stærri en konur og 17%
vöðvastæltari.
HORMÓN OG RÚSSÍBANI
TILFINNINGANNA
Helsta ráðgátan varðandi hormón er sú
hvort þau stjórni okkur eða hvort gerðir okk-
ar hafi áhrif á þau, nema hvort tveggja sé. Eitt
er víst að hormónaáhrif geta gert bæði kyn-
in ofsafengnari en eðlilegt má teljast. Rétt
fyrir tíðir fremja konur fleiri sjálfsmorð og
glæpi en ella. Einn þeirra sérfræðinga sem
hafa rannsakað fyrirtíðaspennu (PMS)
kvenna er hinn virti breski kvenlæknir
Katharina Dalton. í bók sinni Once a Month
setur hún fyrirtíðakvilla á borð við yfirmáta
skapstyggð og þunglyndi í samband við
ójafnvægi í hormónaframleiðslunni með því
móti að of lítið progesteron er til staðar til að
vega upp á móti auknu magni estrogens, að-
alsökudólgs vökvasöfnunar í líkamanum. Af
þessum sökum bólgna brjóst og fætur sam-
fara úttútnun í sjálfum heilanum sem teygir
á nærliggjandi taugavefjum. Þetta ferli kann
að vera skýringin á þeirri spennu og tilfinn-
ingalega ójafnvægi sem u.þ.b. þriðjungur
kvenna upplifir fyrir tíðir.
Sérfræðingar eru sammála um að fyrir-
tíðakvillar stafi af jafnvægisröskun kven-
hormónanna, en til að flækja málið hafa þeir
líka fundið út að tilfinningar viðkomandi
kvenna geti verið upphafsorsök ójafnvægis-
ins. Alag, t.d. af völdum þunglyndis, upp-
skurðar eða hjónaskilnaðar, getur ýtt undir
fyrirtíðakvilla með því að breyta tilteknum
amínósýrum í heilanum, svokölluðum
peptíðum, sem hafa svo aftur áhrif á horm-
ónin.
Orsakasamhengið er jafnvel enn þver-
sagnakenndara þar sem kynhormón karla
eiga í hlut. Um það mál hafa úti í hinum stóra
heimi verið skrifaðar margar lærðar bækur,
einkum byggðar á rannsóknum á öpum og
síbrotamönnum, sem leitt hafa í ljós forvitni-
leg tengsl á milli testosteronsmagns í blóði
annars vegar og þrepa í goggunarröð og
glæpahneigðar hins vegar. Ef mönnum (eða
öpum) svellur of mikið testosteron í æðum
geta þeir samtimis komist til æðstu metorða
og hneigst til glæpa.
Umfangi málsins samkvæmt og sökum til-
finnanlegs skorts á íslenskum samanburðar-
rannsóknum á t.a.m. axarskaftasmiðan3i al-
þingismönnum og taóískum öskuköllum
treysti ég mér ekki til að gera því viðhlítandi
skil á þessum vettvangi í bili. Þó þori ég að
fullyrða að aðgát skuli almennt höfð í nær-
veru frenjulegra frammámanna: þeir gætu
tekið upp á því að ræna, drepa, nauðga og
meiða, ekki síst þegar komið er fram í októ-
ber.
MIKILVÆGI LÝSIS í
HORMÓNALEGU TILLITI
Eftir því sem rannsóknum fleygir fram á
sviði næringar- og hormónafræði sér maður
æ betur mikilvægi aldalangrar mjólkur- og
lýsisdrykkju íslensku þjóðarinnar. Og er þar
af ærnu að taka. Lýsið hefur mjög verið til
umræðu undanfarið sökum fyrirbyggjandi
áhrifa þess gegn sjúkdómum eins og vöðva-
bólgu og liðagigt. En víkjum nú að mikilvægi
þess fyrir framleiðslu kvenkynhormóna.
Hormón eru ýmist gerð úr amínósýrum
eða eru steroíð eins og t.d. kólesteról. Nú
stjórnast tíðahringur kvenna sem vitað er af
ákveðnu jafnvægissamspili framangreindra
kynhormóna, og fyrirtíðakvillar svokallaðir
af of miklu estrogeni en of litlu progesteroni
í líkamanum. Kólesteról er síðan mikilvæg-
asta mólekúlið í progesteroni og til að breyta
kólesteróli í progesteron þarf nægt A-
uítamín að vera til staðar. E-vítamín sömu-
leiðis. Og nú berast þau ánægjulegu tíðindi
frá næringarfræðingum vestanhafs að A- og
E-vítamíninntökur hafi getað aflétt stórlega
fyrirtíðaspennu fjölda kvenna. Lýsi er ein-
mitt mjög ríkt að þessum vítamínum. Því segi
ég: Lýsi gegn fyrirtíðakvillum, spennu og
brjálæði!
En lýsið gerir það ekki endasleppt við kyn-
hormónin. Eins og hamrað hefur verið á er
það jafnframt mjög D-vítamínríkt. Og D-víta-
mín gegnir svo aftur mikilvægu hlutverki í
samspili kalks og estrogens með tilliti til
beinþynningar sem u.þ.b. fjórða hver kona
fær á efri árum, jafnvel miklu fyrr, og getur
kostað hana örkuml. Jafnvel lífið.
Eg er ekki í minnsta vafa um að íslenskar
konur eiga það að miklu leyti lýsis- og mjólk-
urþambi sínu að þakka hversu taugastyrkar
þær eru og seinþreyttar til vandræða, svo og
því að þær halda að tiltölu mun meiri reisn
— og lengur — en stöllur þeirra víða annars
staðar á Vesturlöndum.
Vilji konur því halda reisn og fyrirbyggja
„hormónarugl" er lýsið sterkasti bandamað-
urinn. Því næst kemur mjólkin, en þar næst
karlmaðurinn.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA?
FLOSI ÓLAFSSON
LEiKARI
Eg hef ekki afrádid hvaö ég tek mér fyrir
hendur um helgina, jafn spennandi og það
er nú. Mér er alveg fyrirmunaö aö hugsa svo
langt fram í timann. I mínum huga er nœsta
helgi íórafjarlœgö. Paö kœmi mér hinsvegar
ekkert á óvart aö þessa helgi tœki ég merar
mínar og riöi til fjalla. . .
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 28.-30.8. 1987
HRÚTURINN (21 /3—20/4'
Á föstudaginn máttu reikna með að samstarfsfólk
þitt verði eitthvað erfitt í skapinu og þess vegna þarf
að umgangast það með varúð. Einkum skaltu varast
að reita yfirboðara þinn til reiði. Laugardagurinn
hentar einkar vel til að hitta fólk sem þú þarft að leita
aðstoðar hjá. Þú ættir að nota helgina í að dytta að
heimilinu því það er aldrei að vita hvað orkan sem þú
ert hlaðinn núna endist lengi.
Fram til þessa hefurðu haldið aftur af þér og ekki
reynt að berjast fyrir þínum málum. Láttu til skarar
skríða núna, annars gengur ekkert hjá þér. Einhver
þér nákominn er farinn að skipta sér of mikið af þér.
Bentu honum á að lifa sinu lífi og láta þig í friði. Aldrei
slíku vant neyðistu til að viðurkenna að þér hafi orðið
á mistök varðandi góðan vin þinn. Kyngdu stoltinu
og biddu fyrirgefningar.
TVIBURARNIR (22/5 2D6j
Ef þú ætlast til að ákveðnir hlutir varðandi heimilið
verði framkvæmdir þessa helgi skaltu búast við
smárifrildi þar sem heimilisfólkið er ekki sammála
þér. Samt sem áður ertu i góðu jafnvægi og bjart-
sýnn á framtíðaráformin. Mundu að þeir sem spá
öllu illu varðandi framtíðina eru sjálfir eitthvað
óánægðir með lífið og tilveruna. Anaðu ekki að
breytingum á högum þínum næstu dagana.
Einhverjar breytingar eiga sér stað um þessar
mundir varðandi atvinnu þína og þær munu verða
þér til góðs. Vertu samt ekkert að smjaðra utan í fólki,
þú færð þínu framgengt þótt þú sýnir örlitla frekju í
þetta skipti. Þú mátt búast við skemmtilegu laugar-
dagskvöldi en ef þú stendur í alvarlegu ástarsam-
bandi getur brugðið til beggja vona. Þú ættir þess
vegna að tala hreint út um hlutina og gera þér engar
gyllivonir.
Loksins er kominn sá tími að þú getir lokað á mál
sem hrærðu í tilfinningum þínum og farið að takast
á við verkefni sem þú hefur lát ið híða af þeim sökum.
Bjartsýni og hugrekki einkenna allar gerðir þínar um
þessar mundir. Eitthvað sem gerist á næstu vikum
verður þess valdandi að þú sérð að þú átt ekki að láta
utanaðkomandi áhrif breyta skoðunum þínum.
Enzzaas
Kringumstæður sem þú hefur engin tök á að
breyta verða til þess að þú hugar betur að heimilinu.
Þessa dagana ertu svo upptekinn af spennandi áætl-
unum að þú lætur tilfinningarnar ekki hafa mikil áhrif
á þig. Ástvinir eru undir miklu álagi um þessar mund-
ir svo þú skalt ekki láta á þig fá hvað þeir segja eða
gera. Þótt þú teljist snillingur í að stjórna eigin tilfinn-
ingum virðistu þurfa stuðning núna.
Þú mátt búast við stuðningi frá áhrifamiklu fólki en
þú verður lika að muna að umgangast það á réttan
hátt. Það er rétt að bjóða góðum vinum heim um
þessa helgi og styrkja vináttuböndin því þú hefur
haft alltof litinn tíma til þess undanfarið. Á sunnu-
daginn muntu koma ýmsu í verk sem þú hefur trass-
að vegna vinnunnar en gleymdu ekki þeim sem þú
ættir að vera löngu húinn að heimsækja.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Óvænt happ fellur þér í skaut þegar einhver sem
þú átt inni hjá ákveður að launa þér greiðann. Vinur
þinn verður helst til of afskiptasamur og þið gætuð
lent í deilum vegna þess. Mikilvægar breytingar eiga
sér stað varðandi vini eða nágranna og nú njóta
skipulagshæfileikar Sporðdrekans sín til fulls.
Mundu að valdabarátta leiðir ekkert gott af sér og ef
þú vilt ná markmiði þínu skaltu fara varlega.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Það kemur ýmsum á óvart hversu mikill töggur er
í þér þegar þú þarft að berjast fyrir mikilvægum mál-
efnum. Þeim skilst núna að þú lætur ekki stjórnast af
öðrum. Þótt þig langi til að launa einhverjum lambið
gráa skaltu ekki segja meira en þú getur staðið við.
Einhverjar breytingar verða á stöðu þinni og ef þú
vilt ná árangri verðurðu fyrst og fremst að hafa trú á
sjálfum þér. Það er ekki nóg að aðrir hafi það.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Kröfur sem eru gerðar til þín núna eru of miklar og
ætlast til of mikils af þér á skömmum tíma. Leiðin
sem þú velur þér vekur athygli og verður þér til fram-
dráttar. Rómantikin vaknar að nýju og þú litur lifið i
allt öðru Ijósi. Þótt fjármálin hafi eitthvað farið úr
böndunum er það nokkuð sem þú getur lagað með
því að leggja hart að þér í stuttan tíma. Það er kominn
timi til að þú fáir endurgreidda peninga sem þú hefur
lánað.
VATNSBERINN (22/1-19/2'
Láttu ekki þagga niður í þér og segðu þína skoðun
afdráttarlaust. Óll vonbrigði og erfiðleikar síðustu
mánaða munu hverfa eins og dögg fyrir sólu og þú
leggur metnað þinn í aö standa þig vel i ölu. Þú verð-
ur þó að huga betur að fjármálunum og gera það
sem þú getur til að leysa vandamál varðandi þau.
Skrifaðu ekki undir nein skjöl nema að vandlega at-
huguðu máli.
FISKARNIR (20/2-20/3!
Ef þú hefur nægilega mikla t rú á sjálfum þér gerast
hlutir sem þig hafði ekki órað fyrir. Einhver hefur vís-
vitandi reynt að tefja fyrir mikilvægum breytingum
á starfi þínu og það kemur þér i rauninni ekki á óvart.
Stattu fast á þínu og þá mun vel fara.
Mundu að kynna þér lagaleg atriði áður en þú ræðst
í verkefni sem þú þekkir ekki.
30 HELGARPÓSTURINN