Helgarpósturinn - 27.08.1987, Blaðsíða 35
FRÉTTAPÓSTUR
Útvegsbankamálið dregst á langinn
Sala ríkisins á Útvegsbankanum hefur mjög vafist fyrir
ráðamönnum þjóðarinnar allt frá því 33 aðilar í sjávarút-
veginum komu fram með tilboð í bankann i byrjun næstlið-
innar viku í kjölfar tilboðs Sambandsmanna. Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra hefur ekki enn gert upp hug sinn
hvaða tilboði beri að taka, eða hvort hafna eigi þeim báðum,
en sjálfstaeðismenn og framsóknarmenn i rikisstjórn hafa
þrýst fast á hann hvorir sínum tilboðsaðilanum til stuðn-
ings. í umdeildri skoðanakönnun sem Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra lét gera
i vikunni kom meira að segja fram hjá meirihluta miðstjórn-
ar að slíta bæri stjórnarsamstarfinu yrði bankinn seldur
Sambandinu. Sem stendur er Útvegsbankamálið í rökræð-
um lögfræðinga um hvort SÍS sé í reyndinni búið að kaupa
bankann samkvæmt túlkun útboðsgagna. íhugar SÍS nú
málaferli á hendur rikinu verði ekki gengið að tilboði þeirra
um kaup á bankanum, enda telja forráðamenn Sambands-
ins sig vera löglega kaupendur bankans. Hugmyndir um
sölu á Búnaðarbankanum til að leysa málið eru að mestu úr
sögunni.
Fréttapunktar
• Útvarpsstjóri hefur harmað fréttaflutning Sjónvarpsins
af svokölluðu Svefneyjamáli, þar sem maður er sakaður um
kynferðisafbrot á börnum, en sjónvarpsfréttir af málinu
þóttu fulltilfinningaþrungnar og of sterk orð látin falla í
garð ákærða undir nafnleynd.
• Samtökin Gamli miðbærinn vilja láta opna göngugötuna
í Austurstræti fyrir bilaumferð eftir að verslunartíma lýk-
ur. Davið kveðst ætla að skoða málið, enda skilji hann vel af-
stöðu verslunarmanna í miðbænum í þessu efni.
• Komið hefur í ljós samkvæmt skýrslu Iðntæknistofnun-
ar að framleiðni í islenskum fyrirtækjum er mun minni en
gerist og gengur í nágrannalöndum okkar. Iðnaðarráð-
herra, Friðrik Sophusson, hefur kynnt af þessu tilefni sér-
stakt átak rikisstjórnarinnar til að auka framleiðni hér-
lendis og lagt til verkefnisins þrjá milljarða.
• Nú virðist ljóst að erlent vinnuafl komi til starfa í landinu
á næstu mánuðum, enda hörgull á vinnuafli í mörgum
helstu atvinnugreinum landsmanna. Framkvæmdastjóri
VSÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, fullyrðir að erlent vinnuafl
komi hingað vegna hárra launa.
• Guðmundur J. Guðmundsson sagði í vikunni að Verka-
mannasambandið sem hann gegnir formennsku fyrir muni
ekki taka þátt i samfloti með ASÍ við gerð næstu kjarasamn-
inga.
• Mikil mengun hrjáir starfsmenn Álversins í Straumsvik
að þeirra eigin sögn og hyggjast þeir ganga út ef ekkert verði
að gert til úrbóta í þessu máli.
• Albert Guðmundsson alþingismaður er stiginn upp úr
veikindum sem hafa hrjáð hann um nokkurra vikna skeið.
Hann lét hafa eftir sér í DV i vikunni að hann væri mótfall-
inn hverskonar sölu rikisbanka.
• Aðilar í kaupmannastétt óttast mjög að skattur á erlend
lán muni renna beint út i verðlagið. Skatti þessum ákvað Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra að koma á til að
auka tekjur ríkissjóðs.
• Félagsmálaráðuneytið hefur sent frá sér upplýsingar
þess efnis að allt að 500 milljónum þurfi til aðstoðar þeim
íbúðarkaupendum og íbúðarbyggjendum sem verst fóru út
úr misgengi launa og lána á öndverðum þessum áratug.
• Þá hefur landbúnaðarráðuneytið hvatt bændur til að
hefja slátrun hið fyrsta svo forða megi því að mikill hluti
lambakjötsins í ár lendi í slakari gæðaflokkunum vegna fitu
á dilkum.
• Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum nam tap Út-
vegsbankans á síðasta ári um 183 milljónum króna.
• Athygli vakti á landbúnaðarsýningunni BÚ ’87 að þar var
seld smygluð skinka úr Danaríki. Bændablaðið stóð fyrir
sölunni til að almenningur fengi borið saman innlenda
skinku og hina sem menn leggja á sig að smygla til landsins.
• Sigurður Hallmarsson fyrrverandi skólastjóri á Húsavík
hefur verið settur fræðslustjóri í Norðurlandskjördæmi
eystra, en arftaki Sturlu Kristjánssonar, sem fyrrverandi
menntamálaráðherra rak úr embætti, staldraði stutt við á
fræðslustjóraskrifstofunni vegna óánægju starfsmanna og
fræðsluráðs umdæmisins um meðferð ráðuneytisins á mál-
inu.
• Guðrún Zoéga verkfræðingur hefur verið ráðin aðstoðar-
maður Friðriks Sophussonar iðnaðarráðherra.
• Þau Jón L. Arnalds og Kristjana Jónsdóttir hafa verið
skipaðir borgardómarar.
fþróttir
• Valur trónir nú á toppi fyrstu deildar fótboltans með fjög-
ur stig umfram næsta lið þegar tvær umferðir eru óleiknar.
• Margeir Pétursson, sem nýverið varð Norðurlandameist-
ari í skák, sigraði á skákmótinu i Gausdal annað árið í röð
með nokkrum yfirburðum.
• Reykjavíkurmaraþonið fór fram í fjórða sinn á sunnudag
í góðu veðri. Tveir Skotar komu fyrst í mark eftir 42 kiló-
metrana.
• Eðvarð Þór Eðvarðsson náði besta árangri íslendinga á
Evrópumeistaramótinu í sundi sem nú er nýlokið, setti m.a.
eitt Norðurlandamet.
Wagoeneer LTD 1988
komnir beint frá verksmiðju, ónotaðir, með öllum
þeim aukabúnaði sem þeir hugmyndaríku geta látið
sig dreyma um að hafa í bíl.
Árs ábyrgð.
Verð kr. 1680.000 m/ryðvörn og skráningu.
Aðalumboðið hf.
Tökum hunda í gœslu til lengri
eða skemmri dualar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags íslands
Arnarstoðum, Hraungeröishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
77EIÐFAXI&7
Tímarit hestamanna í 10 ár
í hverjum mánuði kemur Eiðfaxi út
stútfuliur af fréttum og fræðslu af
öllum sviðum hestamennskunnar.
Fylgist meö — gerist áskrifendur
IMI
Áskriftarsími
91-685316
HELGARPÓSTURINN 35