Helgarpósturinn - 27.08.1987, Blaðsíða 36
II
tgafustjorn Þjoðviljans
fundaði á þriöjudaginn. Þar voru
rædd ritstjóramál, og ekki í fyrsta
sinn. Niðurstaðan var sú að Ottar
Proppé fyrrum bæjarstjóri á Siglu-
firði og framkvæmdastjóri Alþýðu-
blaðsins og Mörður Árnason,
blaðamaður og málfræðingar, voru
ráðnir ritstjórnarfulltrúar á Þjoð-
vilja, en sú nafnbót hefur ekki verið
til á þeim bæ um nokkurt skeið.
Þetta mun vera einhvers konar
málamiðlunarlausn, sem útgáfu-
stjórnin sætti sig við eftir nokkurt
þóf. Og bráðabirgðalausn er það
líka, því heimildir Helgarpóstsins
herma að ráðgert sé að gera þá fé-
iagana að ritstjórum Þjóðviljans í
vetur. Og þá hættir líklega
Ossur . ..
Í^\fÍ^ed almestu kostaklárum
á íslandi þykja bræðurnir Kjarval
og Otur, sem eru í eign hins góð-
kunna hestamanns Sveins Guð-
mundssonar á Sauðárkróki. Til
dæmis má geta þess að tvær millj-
ónir voru boðnar í Kjarval á lands-
móti hestamanna í fyrra, en Sveinn
vildi ekki selja. Nú höfum við frétt
að þeir bræðurnir hafi fyrir
skömmu lent í allsendis óbróður-
legu ati, þvílíku að hestaöt Hrafns
Gunnlaugssonar fölna við saman-
burðinn. Þannig var mál með vexti
að hestarnir tveir, sem samanlagt
eru metnir á að minnsta kosti fimm
milljónir, voru lánaðir suður á Snæ-
fellsnes. Þar voru þeir settir í girð-
ingu, sem hafði þann galla að klár-
arnir áttu ekki í minnstu vandræð-
um með að ná saman. Þetta þykir
ákaflega vond latína þegar stóð-
hestar eru annars vegar, enda fóru
leikar svo að þeim lenti saman með
þeim afleiðingum að Otur meiddist
á höfði og fæti og þurfti að vera í
umsjá dýralæknisins á Stykkishólmi
í hálfan mánuð. Er sagt að hesta-
menn séu yfir sig hneykslaðir vegna
þessa atburðar. . .
D
■ ^^ökstuðningur verslunareig-
enda fyrir erlendum nafngiftum á
búðarholur sínar er stundum bágur,
svo einkar varlega sé að orði kom-
ist. í Kringlunni eru 69 verslanir,
þar af 31 með útlensku heiti, þeirra
á meðal tískuverslunin Hanz, já
með z í endann. Eigandi búllunnar
sagði aðspurður um lokastafinn að
hann tæki sig svo flott út á skilti að
aukin viðskipti hlytu að stafa af. Nú
spyr maður hvort t.d. brennivínið
seldist betur breytti Höskuldur
Jónsson sínum skiltum í ÁTWR. ..
LAUGARDAGUR 15. AGUST 1987.
ALLS ENGIN
TOMMABORGARINN KOSTAR 87 KRÓNUR !
Fréttir TT af verðstríði á
skyndibitamarkaðnum hafa
vakið mikla athygli. Sam-
kvæmt heimildum lögreglunn-
ar var umferð út úr borginni
í.d. mikiu minni nú um helg-
ina 8. og 9. ágúst en helgina
þar á undan. Málsmetandi
menn, bæði i umferðarráði og
framleiðsluráði landbúnaðar-
ins, eru á einu máli um að hin
stórkostlega verðlækkun á
Tomma hamborgurum sé ein
helsta skýringin á þessu. Dr.
Hagbarður Eiríksson hag-
fræðingur sagði í samtali við
blaðamann að ljóst væri að
þessi efnahagsaðgerð Tomma
hamborgara hefði þegar spar-
að stórfé fyrir þjóðarbúið, þó
ekki væri nema í minni bensín-
eyðslu, minna sliti á bifreið-
um, hjólbörðum og marg-
hrjáðu vegakerfi. T.
,,Já það er rétt það fór allt í
steik eftir að fréttin um verð-
hrun á hamborgurum birtist i
Tomma Tíðindum á laugar-
daginn,“ sagði Gissur í
Tomma Hamborgurum þegar
TT hafði samband við hann
seinni partinn i gær. Gissur
sagðist hafa ætlað að fara í
merkilega bátsferð niður
Hvítá á laugardaginn en orðið i
að hætta við. Hann, fjölskyld-
an og allir sem vettlingi gátu
valdið hjá Tomma hamborg-
urum stóðu alla helgina og
framleiddu hamborgara og
höfðu vart undan. Hann sagði
þó að það væri langt frá því að
þau væru að gefast upp. „Við
stöndum við það að selja
Tomma borgarann á aðeins 87
krónur allt til 5. september,
svo fremi að nokkurt nauta-
kjöt verði þá eftir í landinu.“ Tomma hamborgarar fást á Grensásvegi 7, Hólmaseli 4,
Frétt Tomma Tíðinda hefur Laugavegi 26, Lækjartorgi og Reykjavikurvegi 68 Hafnar-
greinilega náð til fólksins. firði.
c
Di
KOSTLEG GETRAUN
Vinningshafi býdur fjölskyldunni meö sér í þriggja vikna
Sólarlandaferð
Samhliða hinni einstöku verð-
lækkun á hamborgurum efna
Tomma hamborgarar og
ferðaskrifstofan Polaris til
getraunar meðal gesta Tomma
staða 14 ára og yngri. Get-
raunin verður í gangi fram til
4. september nk. og eru verð-
launin óvenju glæsileg: Vinn-
ingshafi fær að bjóða nánustu
fjölskyldu sinni með sér í
þriggja vikna ferð til Sólar-
landa á vegum ferðaskrifstof-
unnar Polaris. Úrslit í getraun-
inni verða tilkynnt á sérstakri
útihátið sem haldin verður á
Lækjartorgi föstudaginn 4.
september. t.
SPRINGA?
Kenningin að hjöðnun á ein-
um stað leiti fram einhvers
staðar annars staðar, sem Dr.
Hagbarður Eiriksson hag-
fræðingur setti fram í Tomma
Tiðindum 8. ágúst sl., hefur
vakið alþjóðaathygli. Hið
annars virta tímarit, The
Economist, ræðst heiftarlega
á hana í nýjasta tölublaði og
segir þetta aðeins enn eitt
dæmi þess að á íslandi gangi
allir hagfræðingar af göflun-
um. Austur í Moskvu hefur
kenningin orðið tilefni mikilla
umræðna. Ökonomikoff,
einn helsti efnahagssérfræð-
ingur, framkvæmdanefndar
miðstjórnar sovéska
kommúnistaflokksins, sagði
t.a.m. í grein sem birtist í gær
í Prövdu, að kenning Dr. Hag-
barðar væri í aðalatriðum
alveg rétt, t.d. myndi verð-
lækkun á hamborgurum í
Moskvu lengja mjög biðraðir
þar í borg. Hann taldi þvi ekki
rétt að beita þessari kenningu í
bráð innan hins sósíalíska hag-
kerfis.
I íslenskir hagfræðingar sem
TT leitaði til vildu ekki tjá sig
um kenningu Dr. Hagbarðs.
Það virðist sem svo oft áður að
frægðin verði að koma að ut-
an. „Ég er alveg að springa, “
sagði Dr. Hagbarður þegar TT
spurði hann um þetta, „því að
ég er búinn að sýna það í verki
að kenning mín stenst. Þetta er
ekki lengur kenning — þetta er
lögmál!“ Dr. Hagbarður
sagðist vilja þakka Tomma
borgurum alveg sérstaklega
fyrir að honum hafi tekist að
sýna fram á tilvist Hagbarðs-
lögmálsins: „Ef ekki hefði ver-
ið þetta lága verð á Tomma
hamborgurum og ef þeir væru
ekki svona undurgóðir hefði
mér aldrei tekist ætlunarverk
mitt.“ Samkvæmt nýjustu
fréttum utan úr heimi er Dr.
Hagbarður nú mjög orðaður
við Nóbelsverðlaunin í hag-
fræði í ár. T.
mldas
36 HELGARPÓSTURINN