Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 2
Ertu úr járni?
Bjartmar Guðlaugsson
„Nei, nei ég held ég sé ekki úr járni. Ég er samansettur
úr miklu viökvæmari efnum."
— Hvernig veistu þá hvernig heyrist í járnkarli?
„Ég hef heyrt í mörgum járnkörlum — og járnkonum
reyndar líka."
— Heldurðu að það séu krakkar sem kaupa plötuna
mest?
„Ég vona bara að það séu börn á öllum aldri."
— Hvað um týndu kynslóðina, kaupir hún ekki iagið
um sig?
„Jú, það held ég að hljóti að vera."
— Hvenær samdirðu lag og texta við „Týndu kynslóð-
ina'?
„í desember 1986. Lagið flutti ég fyrst í beinni útsend-
ingu á Bylgjunni, úr betri stofunni hjá Hemma Gunn.
Ákvörðun um að setja lagið á plötu tók ég strax eftir að ég
samdi það."
—Hvernig stendur á því að þú hefur svona innsýn í
beyglaða munna og annað sem um getur í textanum?
„Eg hef alltaf verið mjög vakandi fyrir umhverfinu og er
með aðdráttarlinsuna á öllu í mannlegu fari."
— Og upplifað partí af þessu tagi?
„Ég hef upplifað allan andskotann!"
— Hvernig kom Eiríkur Fjalar inn í þetta dæmi?
„Eiríkur Fjalar er vinur minn og samherji, orðinn trúbador
að mér er sagt. Við frumfluttum þetta lag á þjóðhátíðinni
í Vestmannaeyjum nú í sumar og það var fyrirvaralaust
sem hann kom inn í málið og flutti lagið með mér. Eiríki er
margt til lista lagt og það þurfti ekki einu sinni að kenna
honum textann! Okkur fannst við hæfi að syngja þetta lag
saman á plötunni þar sem við erum báðir trúbadorar eða
öllu heldur skáld með gítar."
— Er ekki hætta á að Sumarliði gleymist og Árni taki
við vinsældunum?
„Ja, það er nú það. Sumarliði er þarna á plötunni og ég
held að hann gleymist aldrei. Hann lætur alltaf í sér heyra
annað kastið og sér um það sjálfur að hann gleymist ekki."
— Hvor karakterinn finnst þér sjálfum meira spenn-
andi?
„Vill nokkur vera eins og Sumarliði?!"
— Er fólk ekki á varðbergi nálægt þér þar sem það á
von á að enda sem „sögupersónur" í textum þínum?
„Það ber það alla vega ekki utan á sér en heimsóknum
hefur eitthvað fækkað."
— Ertu alltaf á vaktinni?
„Já, ég er ávallt viðbúinn og alltaf að skoða heiminn,
sjálfan mig og aðra. Þetta er allt svo fyndið."
Bjartmar Guðlaugsson er 35 ára Reykjavíkurbúi. Hann hefur feng-
ist við lagasmíðar í fimm ár. Nýjasta plata hans, „í fylgd með full-
orðnum", sem kom út á fimmtudaginn var, seldist i 2.000 eintök-
um á þremur dögum sem verður að teljast óvenjugott, og er plat-
an enn í bullandi sölu.
2 HELGARPÓSTURINN
FYRST OG FREMST
ÞEGAR Friðrik Þór Friðriksson
setti mynd sína Skytturnar á
markað hér á landi á síðastliðnym
vetri þótti íslendingum frekar lítið
til myndarinnar koma og létu ekki
sjá sig. Síðan þetta gerðist hefur
mikið vatn runniö til sjávar og
Friðrik orðinn viðurkenningum og
verðlaunum hlaðinn utan úr
hinum stóra heimi. Nú hefur hann
hafið endursýningu á myndinni í
Regnboganum og viti menn: Fólk
streymir í bíó. Það er eins og
venjulega. Fyrst þurfa
útlendingarnir að segja okkur að
þetta sé gott og þá látum við
okkur ekki vanta ...
MORGUNBLAÐIÐ er mikill
og góður auglýsingamiðill, ef
marka má auglýsingasíðurnar í
blaðinu, og tekjur þess af auglýs-
ingum gríðarlegar á ári hverju.
Svo mikill er ákafinn í birtingu
auglýsinga að oft finnst mönnum
efni vikja fyrir auglýsingu. Síðustu
útgáfu þess gat að líta í Mogga sl.
þriðjudag, en þá höfðu menn
skellt augiýsingu yfir hið ritaða
mál sem fyrir bragðið varð með
öllu óskiljanlegt, eins og hér sést...
DULARFULLAR fiugur
virðast hafa tekið sér bólfestu í
hinni nýju verslunarsamstæðu,
Kringlunni. Eru hér á ferð örlitlar
kringlóttar svartar flugur, sem
enginn veit hvaðan komnar eru.
Menn fullyrða þó að þær séu ekki
af íslenskum uppruna enda eitt-
hvað um gróður frá útlöndum á
staðnum.
ÍSLENDINGAR virðast með
kærulausari þjóðum á ferðalögum
erlendis. í síðustu viku gerðist það
á tveimur sólarhringum í Amster-
dam að stolið var gjaldeyri og
vegabréfum frá tveimur herrum
og veski með 19.000 krónum,
Visa-korti og öðru ómissandi var
rænt af konu í verslun þar í borg.
Fólkið var þar á ferðalagi á vegum
íslenskrar ferðaskrifstofu. Svo
virðist sem Islendingar noti sömu
aðferð við notkun „innanklæðis-
veskja" eins og bílbelta, þ.e. að
þykjast ekki vita að þessir hlutir
eru nauðsynlegir...
STJÓRNMÁLAFRÆÐIN er
stundum jafnsnúin og pólitíkin.
Ekki alls fyrir löngu birtist eftir
Svan Kristjánsson grein í Þjóðlífi
um Alþýðubandalagið. Niðurstaða
Svans var sú að Svavar Gestsson
myndi á síðustu stundu gefa kost á
sér til endurkjörs í formannsemb-
ætti, þrátt fyrir daglegar yfirlýs-
ingar um annað. Þótti þessi niður-
staða Svans svo merkileg að sjón-
varpið greindi rækilega frá í frétta-
tíma sínum og nú spyrja gárung-
arnir hvort ekki sé ástæða til fyrir
fréttastofuna að taka málið upp úr
því blaðið er komið út aftur...
ÓSKILGETIN börn áttu eitt
sinn á brattan að sækja og eiga
sjálfsagt að einhverju leyti enn. En
það hefur sem kunnugt er færst í
vöxt að börn fæðist utan hjóna-
bands og markaði árið 1986 viss
tímamót í því sambandi. í fyrsta
skiptið gerðist það, að óskilgetin
börn, þ.e. börn sem fæðast utan
hjónabarids, voru fleiri en hin skil-
getnu! Á því ári fæddust 1.976
óskilgetin börn en 1.932 skilgetin.
Til samanburðar má nefna að
1966—1970 voru börnin að meðal-
tali 3.035 skilgetin en 1.278 óskil-
getin...
w >M * *■ * ég haldi mig við vodkann, þá er Drukkin persóna, sem hefur neyzla Islendinga á hvem íbúa, af einn tvöfaldur 40X vtxiki 40%x6 óábyrgar samfarir í dag og smitast hreinum vínanda, er minnst ailra JÓHANNES L. L. Helgason for- -1 _ o A »1 t;i ,«,.<■« .... ... . „ . . — • - ■ •
ELFA SKÁPAREKKAR \ m
OG HILLUR ] — nýta plássið og koma á röð og reglu I r 'v- - fei' W $ í
Ótrúlega sniðug lausn á plássleysi. Á heimilinu, á / vinnustöðum og í bíIskúrum.Eigin smekkur ræður / laa® i ;.*• d
útliti en notkunarmöguleikar eru óteljandi. / . ÍR® / &
^ ~ VS'1 Viö Reykjavíkurtjörn... 1
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Andríki
Hér á aö rísa ráöhús nú rífast menn og karpa um þaö. En væri ekki notalegt náðhús mun nytsamlegra á þessum staö? Niöri „Ég er stjarna. Ég er med þaö á hreinu. Og hef veriö lengi.“ SJÓN, SKÁLD, í ÞJÓÐVILJANUM 14.11.