Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 34
Skoðanakönnun meðal starfsmanna Landsbanka íslands leiddi í Ijós aö eldri starfsmenn bankans hefðu heldur viljaö
hafa gamla merkið hans áfram. Nýtt merki var hannað á 100 ára afmæli Landsbankans á síðasta ári og þykir það með-
færilegra í notkun en það gamla.
Gamli sjómaðurinn horfinn af braut og í staðinn komið nýtiskulegt merki. Margir tengdu gamla merkið við verstu kafl-
ana i sögu Útvegsbankans.
Pegasushestur Flugfélags íslands og hinn fljúgandi fálki Loftleiöa tilheyröu fortíðinni við sameiningu flugfélaganna
1973. Þá var hannað nýtt merki af bandarísku fyrirtæki og olli sú ákvörðun miklum úlfaþyt hér á landi, þar sem gengiö
var framhjá íslenskum auglýsingateiknurum.
VIRÐULEIKA KASTAÐ FYRIR RÓÐA
Rótgróin fyrirtœki breyta merkjum sínum
Nýtískuleg og ,,hressileg“ merki í fyrirrúmi
Merki fyrirtœkja eru nokkuö
sem fáir hugsa mikid út í. Samt
vita flestir hvaða fyrirtœki á í hlut
þegar merki þess blasir við, en
sjálfsagl finnst fólki litlu máli
skipta hvað merkið á í raun að
tákna. A síðustu árum hefur það
fœrst i vöxt að stór og gamalgróin
fyrirtœki breyti merkjum sínum.
Má þar til dœmis nefna að við
sameiningu Flugfélags íslands og
Loftleiða var hannað nýtt
Flugleiðamerki og þótti mörgum
eftirsjá að hinum gömlu merkjum
félaganna og hefðinni sem þau
báru með sér.
Nú á dögum á „léttleiki" að
hvíla yfir flestu. Rík áhersla er
lögð á einfaldan og hreinan stíl og
því ekki uiidarlegt að mörg
fyrirtæki noti tækifærið á
afmælisári og láti hanna nýtt fyrir-
tækismerki. Það gerði m.a. Lands-
banki íslands á 100 ára afmæli
bankans í fyrra. Áður en að
afmælinu kom var ákveðið að
efna til verðlaunasamkeppni um
merki fyrir afmælisárið sem og
minjagrip, en að sögn Brynjólfs
Helgasonar hjá markaðssviði
Landsbankans þótti við hæfi að
kanna hvort tillaga bærist um nýtt
merki á þessum tímamótum.
Ástæðu þess kvað hann einkum
þá að hið gamla merki Lands-
bankans hefði verið erfitt í
útfærslu, til dæmis þegar prenta
þurfti á plastkort og auglýsingar.
„Það var oft erfitt að eiga við
gamla merkið,“ sagði Brynjólfur
„Það var kannski svolítið gamal-
dags en mörgum þótti það
virðulegt. Það hafði verið notað í
yfir 30 ár og eðlilegt að mörgum
þætti eftirsjá að því.“
Brynjólfur segir hið nýja merki
Landsbankans einfalt í útfærslu og
sé auk þess nýtískulegra. Nýja
merkið er aðallega notað í
rauðum lit en það eldra var í
bláum lit: „Það var tilviljun sem
réð því að rauði liturinn ríkir,"
segir Brynjólfur. „Tillagan kom í
rauðu og þess vegna var merkið
haft í sama lit. Höfundur þessa
merkis er Tryggvi Tryggvason
auglýsingateiknari." Brynjólfur
segir engan aukakostnað hafa
fylgt því að taka nýja merkið í
notkun, þar sem það hafi verið
gert smátt og smátt og eldri
birgðir af bréfum, ávísanaheftum
o.s.frv. með gamla merkinu hafi
ekki verið eyðilagðar. Hvort allir
séu sáttir við nýja merkið segir
hann að gerð hafi verið könnun á
því meðal starfsmanna Lands-
bankans eftir að tillagan var verð-
launuð og þar hafi komið fram að
um 70% starfsmanna væru ánægð
með nýja merkið, en 30% fremur
óánægð: „Það var helst eldra
starfsfólkið sem hefði viljað hafa
gamla merkið áfram.“
Brynjólfur segir að allt
auglýsingaefni sé nú mun
ákveðnara en áður tíðkaðist og þá
sérstakt meðfærilegt merki
nauðsynlegt: „Það var næstum
verk fyrir listmálara að koma
gamla merkinu á skiltil," segir
hann. Þegar hann er spurður
hvernig honum sjálfum finnist
nýja merkið svarar hann: „Mér
finnst liturinn góður, það er stíl-
hreint og kemur vel út í mis-
munandi útgáfum. Það er vilji hér
í bankanum til að breyta ýmsum
hlutum og þótt bankinn sé auð-
vitað gamalgróin stofnun þurfa
hlutirnir ekki að vera gamaldags.
Einn þátturinn í að breyta þeirri
mynd er merki bankans. Þegar
vaxtafrelsið kom upp í ágúst 1984
fór samkeppnin á fleygiferð og þá
sást að ekki er hægt að hafa allt
eins og áður var."
Útvegsbanki íslands hefur líka
breytt sínu merki. Gamli virðulegi
sjómaðurinn er horfinn og í
staðinn er komið „nýtískulegt"
merki. Það má geta sér þess til að
merki bankans hafi tengt hann
verstu köflunum í sögu hans og
þegar nýir eigendur tóku við hafi
þeim þótt eðlilegt að minna á það,
meðal annars með hönnun á nýju
merki bankans. Það var
auglýsingastofa Ólafs Stephensen
sem hannaði merkið.
Flugleiðamerkið, sem var
hannað af bandaríska fyrirtækinu
Clinton E. Frank Inc. við sam-
einingu flugfélaganna 1973; leysti
af hólmi merki Flugfélags íslands
og Loflleiða. Þar sáu margir eftir
erninum fljúgandi og pegasus-
hestinum, en sitt sýnist hverjum.
Við birtum hér myndir af gömlum
og nýjum merkjum fyrrnefndra
fyrirtækja og þið getið leikið
ykkur að því að skoða þau gagn-
rýnum augum. Kannski finnst
ykkur sem í einhverjum tilvikum
hafi breytingar verið gerðar
breytinganna vegna og ekki
endilega verið til batnaðar?
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 20.-22.
NÓVEMBER
Þú gerir góð kaup á föstudag, ef þú ert á
annað borð í slikum erindagjörðum, en það
gaeti ýmislegt bjátað á í ástamálum. Bjart-
sýni þín og hressleiki kippa því þó fljótt í lið-
inn. A sunnudag gaetir þú staðið frammi fyr-
ir vandamáli, en það leysist blessunarlega.
NAUTIÐ (21/4-21/Sj
Þú ert einhverjum órétti beittur, en þú ættir
að læra af reynslunni. Nú er rétti tíminn til að
leita á nýjar slóðir, þar sem þú færð sjálfur
meiri fullnægju og fólk kann betur að meta
þig. Annars er fólkið í kringum þig að átta sig
á kostum þínum.
TVÍBURARNIR (22/5—21 /6)
Þér finnst eflaust tími til kominn að breyta
um á einhvern hátt og láttu bara verða af
því. Þú hefur ekki fengið mikið hrós síðast-
liðna mánuði, en þá sástu líka hvern innra
mann ákveðnir aðilar höfðu að geyma.
Reyndu að setja þig í spor annarra áður en
þú dæmir.
KRABBINN (22/6—20/7]
Láttu það eftir þér að kaupa hluti, sem veita
ánægju. Það er líka margt vitlausara en að
huga að jólagjafakaupum. Ef þú sýnir af þér
ákveðni og lætur ekki bugast eru þér allir
vegir færir. Þú ættir að taka lifinu með ró
þessa helgi, þó svo mikið sé ógert.
LJÓNIÐ (21/7-23/81
Nú átt þú að slaka á og njóta afraksturs erfið-
isins. Ymislegt gæti komið þér þægilega á
óvart og þú verður reynslunni ríkari eftir
þessa helgi. Kynntu þér forsögu nýrra sam-
starfsaðila áður en þú gengur endanlega frá
samningum.
MEYJAN (24/8-23/91
Ef þú ert dæmigerð Meyja finnurðu þörf fyr-
ir að tala af hreinskilni og hætta að sætta þig
við minna en réttlátt er, hvort sem það er í
einkalífinu eða vinnunni. Ekki halda áfram að
vera áhorfandi. Sýndu ákveðnum aðila að
þú látir ekki blekkjast. Fjármálin þróast i
rétta átt.
t'T.; c-nnjn-»T7rrc—■
Kannaðu fjárhaginn ef þú ætlar í verslunar-
leiðangur og varastu óþörf útgjöld. Ástvinur
þinn er eitthvað vansæll á laugardag, en það
lagast og viðkomandi hjálpar þér að takast
á við svipaðar tilfinningar á sunnudag.
SPORÐDREKINN (23/10-22/1)
Föstudagurinn hentar vel til hvers kyns
áætlanagerðar, þó enn sé langt í fram-
kvæmdina. Allt gengur betur í vinnunni, sér-
staklega það sem tengist fjármálum. Þú hef-
ur samt einhverjar fjárhagsáhyggjur á
sunnudag, en mundu að líta á björtu hliðarn-
ar.
Þú ert heldur betur á happaskeiði í lífinu
núna og allt ætti að ganga þér i haginn, ef þú
kannt að spila úr því sem þú færð í hendur.
Hlutirnir gerast ekki af sjálfum sér! Dettu
ekki i þá gryfju að velta þér upp úrfortíðinni.
Það hefur illt eitt í för með sér.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Það eru einhverjir erfiðleikar í ástamálunum,
en þeir vara ekki lengi. Treystu hugboðum
þínum og varastu að móðga fólk með van-
hugsuðum orðum. Þú ættir að vera svolitið
einn með sjálfum þér yfir helgina og hug-
leiða liðna tíð, þó hún sé auðvitað óum-
breytanleg.
Gerðu átak í að losa þig við hræðslu sem
þjakar þig. Lífið getur veriö bráðskemmti-
legt ef þú trúir á sjálfan þig, énda stendur allt
til bóta í vinnunni. Nú er mikilvægt að fá ætt-
ingjana á þitt band varðandi ákveðna breyt-
ingu, sem þú hefur í huga. Það sem eftir er
ársins verður stóráfallalaust.
FISKARNIR (20/2-20/31
Það er langt í að fjármálin komist í lag, en
með ýmsum ráðum má gera ástandið þol-
anlegt. Nú er rétti tíminn til að ganga frá
lausum endum, því áhrifamenn sýna þér
nauðsynlegan skilning. Um þessar mundir
er að hefjast mikilvægasta tímabil ársins
hvað varðar vinnuna.
34 HELGARPÓSTURINN