Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 15
önnur neyðartilvik, t.d. líkamsárás,
er öruggara að hafa eitt númer,
stutt og einfalt, sem öllum getur
reynst auðvelt að muna.“
Vert er að ítreka, að upptaln-
ingin í greinargerðinni á einungis
við um símanúmerin í Reykja-
víkurborg. Hvert neyðarnúmer
gildir einungis fyrir ákveðið og
afmarkað svæði og því er málið í
raun enn flóknara ,,á landsvísu"
en fram kemur í tillögu Katrínar.
í samtali við Helgarpóstinn
sagðist Katrín Fjeldsted telja mikið
óöryggi í því fólgið, að hafa ekki
eitt auðlært símanúmer fyrir alla
neyðarþjónustu. Um gæti verið að
ræða atvik, þar sem hver mínúta
skipti máli, og menn þyrftu ekki
annað en heilbrigða skynsemi til
þess að sjá hættuna, sem núver-
andi ástand býður heim. ,,Allt
annað en eitt neyðarsímanúmer er
fáránlegt," sagði borgarfulltrúinn,
en hún lagði fram fyrirspurn í
borgarráði sl. þriðjudag varðandi
afdrif tillögunnar frá því fyrir 16
mánuðum. Var Katrínu lofað svari
á næsta fundi, eða 24. nóvember,
en gífurlegar fjárhæðir hafa verið
nefndar í tengslum við þessa ein-
földun neyðarkerfisins — jafnvel
2—300 milljónir króna.
BÚIÐ AÐ VELJA
NUMERIÐ 000 EN...
Þegar tillaga Katrínar Fjeldsted
var lögð fram í borgarráði var hún
send eftirfarandi aðilum til um-
sagnar: Lögreglustjóra, slökkviliðs-
stjóra, framkvæmdastjóra al-
mannavarna, borgarlækni og Pósti
og síma. Helgarpósturinn hefur
undir höndum svarbréf allra nema
lögreglustjórans og eru þau öll
afar jákvæð.
í svari Pósts og síma segir, að
viðræður um eitt símanúmer fyrir
alla neyðarþjónustu hafi farið fram
fyrir nokkrum árum og þá hafi
stofnunin boðist til þess að koma
þessu á með þeim hætti, að öll
uppköll kæmu inn í skiptiborð
lögreglunnar. Engin ósk þar að
lútandi hafi hins vegar borist frá
lögreglu eða borgarstjórn. Slík
þjónusta hefur á hinn bóginn
verið starfrækt í mörg ár í Kefla-
vík og á Selfossi, eftir því sem
fram kemur í bréfinu, og er ekkert
að vanbúnaði að þessi háttur
verði hafður á alls staðar á
landinu. Samræmt símanúmer
hefur verið valið og er það 000.
Ennfremur segir í bréfi Póst- og
símamálastofnunar, að þá sjálfsala,
sem nú eru í pöntun, sé hægt að
forrita þannig að hringingar í 000
verði án greiðslu. Að lokum lýsir
stofnunin sig reiðubúna til við-
ræðna um málið og þeir geti gefið
Reykjavíkurborg tilboð í
000-neyðarþjónustu ásamt
skiptiborði, sé þess óskað.
Skúti Johnsen borgarlæknir
hvetur í sínu svari til þess, að
komið verði á fót sameiginlegu
neyðarnúmeri og minnist á að
þetta sé öryggisatriði, sem náð
hafi mikilli útbreiðslu erlendis.
Segir Skúli það ómetanlegt að
hægt sé að hringja í eitt númer í
hvaða neyðartilviki sem er, svo
fólk þurfi ekki að leita „með
erindi sín frá einum stað til
annars".
Almannavarnir eru meðmæltar
tillögu Katrínar Fjeldsted og
benda á, að brýnt sé að sama
númer sé valið á landinu öllu. í
bréfi sínu minnist Guðjón Petersen
líka á þau mótrök gegn sam-
ræmdu númeri að „svaraðili" geti
tafið framgang boða til „við-
bragðsaðilá*. Guðjón svarar þeim
rökum á eftirfarandi hátt: „Hins
vegar mun neyðarnúmer eitt og
hið sama sem fólk auðveldlega
man flýta stórlega upphafsboðun-
inni og spara þar á móti meiri
tíma, þar sem fólk þarf ekki að
fletta upp í símaskrá og leita að
mismunandi númerum."
Einungis slökkviliðið hafði ein-
hverjar efasemdir, en eftir nokkur
fundahöld varð niðurstaðan sú að
það teldi ekki rétt að leggjast
gegn einu neyðarnúmeri.
Það er því Ijóst, að öll rök virð-
ast hníga í þá átt að haft verði eitt
samræmt neyðarnúmer á landinu.
Hvort þetta öryggisatriði kemst í
framkvæmd í náinni framtíð er
hins vegar óljóst.
Laufdal verið hinn réttkrýndi
diskókóngur íslands, enda á maður-
inn tvo stóra skemmtistaði í Reykja-
vík og Sjallann á Akureyri. Nú er
annar diskókóngur að bætast við í
höfuðborginni. Það er Gunnar H.
Arnason, einn eigenda veitinga-
staðarins Evrópu, sem fyrir helgina
keypti Casablanca við Skúlagöt-
una. . .
A
siðastliðnum vetri var aug-
lýst laus til umsóknar staða pró-
fessors i almennri bókmennta-
frædi við Háskóla Islands. Um-
sækjendur voru fimm, dr. Álfrún
Gunnlaugsdóttir, sem gegnir
stöðu lektors við deildina, Ástráð-
ur Eysteinsson, sem nýlokið hefur
doktorsnámi í Bandaríkjunum,
Árni Sigurjónsson, doktor frá Sví-
þjóð, Halldór Guðmundsson,
mag. art. frá Kaupmannahöfn, og
Örn Ólafsson, sem lauk doktors-
prófi frá Frakklandi. Dómnefndin
skilaði áliti sínu fyrir skemmstu, en
í henni sátu Vésteinn Ólafsson,
sem er lektor við íslenskudeild há-
skólans, Þórhildur Ólafsdóttir,
lektor í frönsku, og Erik Sönder-
holm frá Hafnarháskóla, en hann
var hér lengi sendikennari og um
tíma forstöðumaður Norræna
hússins. Dómnefndin setti Ástráð
Eysteinsson í fyrsta sæti og Álf-
rúnu í annað, en dæmdi hina þrjá
óhæfa til að gegna stöðunni. Síðan
kom málið til kasta deildarfundar
heimspekideildar háskólans en þar
varð niðurstaðan önnur; Álfrún
hlaut yfirgnæfandi fjölda atkvæða,
og þess vegna mælir heimspeki-
deild með því að hún hljóti stöðuna.
Valdið er hins vegar í höndum
menntamálaráðherra. . .
Hentug jolagjöf
Níðsterkir trefjaplatkassar á bílinn
Taka t.d. 6 pör af skíðum og
6 pör af skóm.
Litir: Svart-rautt-hvítt.
Verðkr. 28.000,-
Einnig minni kassar á kr. 9.600,-
Gísli Jónsson & co hf.
Sundaborg 11. Sími 686644.
Vilt þú eitthvað alveg nýtt?
Vilt þú eitthvað mjög fallegt en samt öðruvísi?
Ef svo er líttu þá við í nýju versluninni
Barcelona
Top merki franskra og spænskra fatahönnuða.
Eitt er víst, ferðin til okkar verður öðruvísi fyrir þig.
CITY 91
LAUGAVEGUR 91
Síml 29903
HELGARPÓSTURINN 15