Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 21
DAGBOKIN HENNAR DÚLLU Kæra dagbók. Ég er alveg gasalega hrifin af þessum nýja þætti hans Hemma í sjónvarpinu, sérstaklega grettu- keppninni. (Addi bróðir sendi inn þátttökutilkynningu með nafni landafræðikennarans og nú þarf all- ur bekkurinn að gera tímaritgerð um bergtegundir á íslandi, af því kallinn veit ekkert hver af krökkun- um gerði þetta.) En ég hefði aldrei trúað því að löggur væru ekki kiár- ari að spyrja en þessi í síðasta þætti. Hann notaði ekki einu sinni allar spurningarnar, sem hann mátti spyrja. Algjör, maður . . . En náung- inn, sem hermdi eftir Ómari Ragn- arssyni, var æðislega frábær. Hann tók einmitt alla þessa takta, sem fara svo hryllilega í taugarnar á mömmu. Hún getur ekki verið inni í stofu, þegar Ómar fær krampa- köstin. Við pabbi og Addi bróðir höfðum það annars bara rosalega notalegt yfir helgina, maður. Alveg meiri- háttar! Mamma var náttúrulega á þessum landsfundi hjá Listanum sín- um, svo við urðum sjálf að sjá um matinn. (Ég er viss um að amma hefði ekki verið í burtu í heila helgi, án þess að hafa tilbúnar máltíðir í frystinum. En svona er allt á niður- leið.) Við borðuðum pulsur og pízz- ur, sem mamma segir að séu rusl- fæði. Svo föttuðum við æðislegt brauð — þekkingarleysi hjá Adda, sem við urðum auðvitað að kippa í liðinn. Sko, barnið hafði ekki hugmynd um hvað franskbrauö væri! Ég meina það... Pabbi fór út í bakarí á laugardaginn, keypti þessa harð- bönnuðu vörutegund, skar brauðið niður og setti á borðið, en þá gapti bara Addi. Barnið hafði aldrei á ævi sinni séð hvítt brauð, vegna þess að mamma kaupir það ekki og hann virðist af einhverjum ástæðum hafa augun lokuð í bakaríum. En krakk- inn hefur örugglega verið franskur í fyrra lifi, þvi annan eins sælusvip hef ég aldrei séð og þegar hann smakkaði brauðið. Þetta var nú ann- ars líkara kappáti, því bæði Addi og pabbi borðuðu trilljón sneiðar. Að Íokum hentist Addi út eftir öðru brauði og þeir kláruðu helminginn af því líka! Pabbi sagði, að hann hefði oft keypt franskbrauð í gamla daga og borðað bara þetta mjúka innan úr því. Hann sagði líka, að krakkar yrðu að fá hvítt brauð við og við og að kona í Noregi hefði skilið við manninn sinn af því að hann var sjúkur i franskbrauð. Kellingin var víst með rosa heilsuæði og kallinn þurfti að fela franskbrauð úti í bil- skúr og stelast þangað til að fá sér bita. Þegar konan hans komst aö þessu hélt hún að hann geymdi brennivín eða klámblöð i skúrnum, en það var þá bara brauð. Og henni fannst hann svo mikill aumingi að fela franskbrauð, að hún skildi við hann. Samt hefði hún aldrei leyft honum að kaupa brauðið og borða það eins og maður, svo hvað átti greyið að gera? Pabbi sagði, að kon- ur væru bara svona hryllilega ólóg- ískar! (Ég er nú ekkert fyrir þetta kvenréttindakjaftæði, en mér finnst nú eðlilegt að konur vilji skilja við svona rolur, sem pukrast með brauð! Þetta er svo ókarlmannlegt.) Bless, Dúlla. cner HITABLASARI Bensín og gasolíuhitablásarar, 12 og 24 volt, fyrir báta, bíla og vinnuvélar. Varahlutir og viðgerðarþjónusta. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VIÐGERÐARÞJÓNUSTA ■ I. Erlingsson h/f, varahlutir, Ármúla 36 (Selmúlamegin),isími 688843. Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f. RAFBRU SF. Helgi Sigurjónsson Helgalandi 1, Mosfellssveit 91-667073 ' ® ) LANDPÓSTAR .færir póstþjónustu í dreifbýli inn á heimilin! Á liönum árum hefur landpóstþjónustan aukist verulega. Landpóstarnir veita flesta þá þjónustu sem pósthúsin veita. Þeir koma þrisvar til fimm sinnum í viku eftir landshlutum og gera langan akstur á pósthús óþarfan. PÓSTFAX ...prent og myndefni landshluta eða heimsálfa á milli — á örfáum mínútum! Hægt er að senda texta, myndir og allt annað sem Ijósrita má í svart/hvltu. Þú getur farið á næstu póstfaxstöö og afhent þar frumrit sem senda skal. Hér innanlands kostar fyrsta blaðslðan 135 kr. og næstu slður 90 kr. hver (miöað við 01.07.87). Það tekur aðeins 1 mínútu að koma gögnum frá ísafiröi til Tokyo! Póstfax er nýjung sem öllum nýtist! ...undirstaða öruggrar og góörar póstþjónustu! Mikilvægt er að rétt og vel sé búið um sendingar. Til að koma á móts við viðskiptavini póstþjónustunnar eru boönar til sölu margvfslegar umbúðir, kassar og umslög sem tryggja hag— kvæmni og öryggi enn frekar. PÓSTURINN FYRIR ÞIG! Póst- og símamálastofnunin + HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.