Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 14
Viö spuröum 100 manns aö því, hvaöa númer þeir myndu hringja í ef þeir þyrftu skyndilega aö kalla til sjúkrabíl. Einungis fjórir mundu símanúmeriö! PEGAR MÐIN ER STÆRST.. EFTIR JÓNÍNU IEÓSDÓTTUR MYNDIR JIM SMART getur mannslíf oltid á því aö þú vitir hvert á aö hringja eftir hjálp. Skortur á þægilegu og samrœmdu neyöarsímanúmeri fyrir sjúkrabíl, lögreglu og slökkviliö veldur því hins vegar, aö dýrmœtar mínútur geta fariö til spillis þegar um líf og dauöa er aö tefla. Neydarsímanúmer eru breytileg eftir því hvada þjónustu er um aö rœöa og hvar menn eru staddir á landinu. 1 könnun, sem HP geröi á því hvort fólk þekkti almennt þau símanúmer sem grípa þarf til á neyöarstundum, kom líka í Ijós aö nœr enginn aöspuröra heföi getaö hringt umhugsunarlaust á sjúkra- bifreiö. Petta er óneitanlega afar alvarlegt mál, þar sem þaö getur oft skiliö á milli lífs og dauöa hve fljótt aöstoö berst á vettvang þar sem brotist hefur út eldur, slys hefur oröiö eöa einhver veikst alvarlega. Víðast hvar erlendis hringja menn í auðlærð neyðarsímanúmer þegar þeir þurfa á þjónustu sjúkra- bifreiða, lögreglu eða slökkviliðs að halda. Númerin eru þau sömu, fyrir alla þessa aðila og númerið er þar að auki hið sama hvar sem menn eru staddir á landinu. A Bretlandi hringja menn því t.d. í 999 hvort sem um er að ræða eldsvoða í Edinborg eða innbrot í Ipswich. Málið er ekki jafneinfalt á íslandi — jafnvel ekki innan stærsta byggðarkjarnans á suð- vesturhorni landsins. Ef þú þarft á sjúkrabíi að halda í Kópavogi hringirðu í 11100, en sértu spöl- korn þaðan, eða í Hafnarfiröi, er númerið 51100. Annars staðar á landinu er líka um gjörólík númer að ræða og vonlaust fyrir nokkurn mann að leggja það allt á minnið. Þurfirðu í snatri að ná í lögregl- una skiptir það líka öllu máli hvar þú ert staddur — jafnvel innan höfuðborgarsvæðisins. Númerið í Reykjavík er 11166, í Kópavogi 41200, í Hafnarfirði, Mosfellsbœ og Garöabœ 51166, en 611166 á Seltjarnarnesi. Sá einstaklingur, sem man öll þessi afbrigði, fyrir- finnst heldur eflaust ekki. Samt er fólk auðvitað sífellt á ferli á milli þessara bæjarfélaga og gæti lent í því að komast í hann krappan í hverju þeirra sem væri. 96% HEFÐU EKKI GETAÐ HRINGT UMHUGSUNARLAUST Á SJÚKRABÍL Blaðamaður HP skrapp í viku- byrjun í Kringluna í Reykjavík og spurði starfsmenn og viðskiptavini einfaldrar spurningar: „I hvaða númer myndirðu hringja, ef þú þyrftir skyndilega að kalla á sjúkrabíl?" Svörin voru á ýmsa lund, sumir fóru nálægt því rétta, en einungis fjórir höfðu síma- númerið á hraðbergi. Einn þeirra var raunar öryggisvörður í húsinu, svo segja má að það hefði verið óeðlilegt hefði hann ekki vitað númerið. Langflestir urðu eins og lifandi spurningarmerki í framan, þegar þeir heyrðu eftir hverju blaða- maður var að slægjast. Sumir urðu líka ofurlítið skömmustulegir. Eftir- farandi svör fengum við m.a.: ,,Ja, ég veit bara númerið á Ólafsfirði. Það er 62222.“ ,,Eg hef ekki glóru, en auðvitað ætti maður að hafa miða með þessum númerum á símtækinu." ,,Ég veit ekkert um þetta, enda er ég heldur ekki með sírna!" ,,Er það ekki 69000? Nei annars, 11000?" ,,Ég held að það sé 81200..." ,,Það veit ég ekki, en ég hef alltaf verið stórhneykslaður á því að það skuli ekki vera eitt einfalt númer fyrir svona neyðar- þjónustu." „Ég veit það ekki... Heyrðu, gefðu mér upp númerið svo ég viti það héðan í frá.“ „Hef ekki hugmynd, en á ég að fletta því upp fyrir ykkur?" „Ég held, að það sé 11000." „Guð, maður á að vita svona ef eitthvað kemur fyrir, en ég hef bara ekki grun!" „Ég veit að það er 23222 á Akureyri." „Getur verið að ég viti þetta ekki?" „Ég hef nú sko ekkert pælt í því." „Ég myndi hringja í lögguna í 11166 og láta hana redda sjúkrabíl." „Er það ekki 11166? Nei, bíddu... Það er víst löggan. Æ, ég veit þetta ekki." Við hringdum einnig í Brynjólf Mogensen, lækni á slysavarðstofu Borgarspítalans, og spurðum hvort læknar þar yrðu eitthvað varir við að sjúklingarnir kvörtuðu undan því að hafa átt í erfið- leikum með að hringja á sjúkrabíl. Ekki sagðist Bryjólfur minnast þess, en hann sagðist sjálfur hafa unnið erlendis þar sem öll neyðar- þjónusta er tengd einu símakerfi. Sagði hann það vera til mikils hagræðis og ekki efast um, að einfalt neyðarnúmer gæti skipt sköpum, þegar koma þyrfti sjúkl- ingum í flýti undir læknishendur. I júlímánuði árið 1986 lagði Katrín Fjeldsted fram tillögu í borgarráði Reykjavíkur, þar sem hún leggur til að „einfaldað verði símakerfi neyðarþjónustu í borg- inni. Þannig verði almenningi veittur aðgangur að slökkviliði, almannavörnum, lögreglu og sjúkrabifreið með einu síma- númeri, t.d. 999". í greinargerð með tillögunni segir síðan: „Á neyðarstundu er mikilvægt að símanúmer neyðarþjónustu sé einfalt og auðvelt að muna. Núverandi kerfi er þannig, að lögreglan hefur síma 11166, almannavarnir 22040 eða 11328 og slökkvilið og sjúkraflutningar 11100. í brennandi húsi eða við 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.