Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 4
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR KÉRASIASE Reykjavík 12.11. 1987 Heiöraði ritstjóri! í blaði yðar — útkomnu í dag — les ég eftirfarandi klausu um viðtals- bút sem Mattías Viðar Sæmundson hafði við mig í sjónvarpi á dögun- um, um íslenskukenslu í MR fyr og nú: „í þættinum lagði Þorgeir mikla áherslu á það, að hann hefði hreint ekkert lært í móðurmálinu í þessari stofnun og sagði frá því með nokkr- um gorgeir, að hann hefði aldrei fengið meira en 1 í stíl í MR.“ Það- sem ég raunar sagði í þessu sam- hengi var það að Magnús Finnboga- son íslenskukennari hefði gefið mér einkunina 1,0 fyrir skriflega ís- lensku á STÚDENTSPRÓFl. Og það er sannleikur en hitt náttúrlega arg- asta lygi að ég hafi skrölt í gegnum allan skólann með þá einkun á þessu framtíðaratvinnusviði mínu. Enda er það tilbúningur blaðsins að ég hafi skrökvað þessu uppá sjálfan mig. Og persónulegt vandamál við- komandi blaðamanns ef honum þykir einhver gorgeir fólginn í því- sem ég aldrei sagði, en hann þó lík- lega minnir að ég hafi sagt. Segið honum það frá mér. Nú er það að vísu gamall og góður siður blaða- snápa að falsa orð manna — þá sjaldan einhver glæpist tilað segja satt og rétt frá — tilað geta betur fært rök að því að viðkomandi sé nákvæmlegasami lygalaupurinn og hinir. Það er nú einusinni hlutverk blaðasnápsins í þágu mannkynsins. Og mikið líknarverk sé það vel unn- ið. Ég verð því mikillega að biðja af- sökunar á þessari leiðréttingu minni. En hún er vitaskuld gerð í þeim tilgangi einum að viðkomandi blaðamaður vandi sig betur í fram- tíðinni. Þá er honum borgið. Með vinsamlegri kveðju og bestu óskum. Þorgeir Þorgeirson HEMLÁHLUTIR í VÖRUBÍL4 • Hemlaborðar í alla vörubíla. • Hagstætt verð. • Betri ending. 0] Stilling Skeifunni 11,108 Reykjavík Símar 31340 & 689340 Ritaras Ritaraskólinn tekur til starfa 6. og 18. janúar. Kennt er alla virka daga vikunnar, þrjár klukkustundir í senn og hægt að velja á milli tveggja mismunandi dagtíma. Markmið skólans er að út- skrifa sjálfstæða starfskrafta sem hafa tileinkað sér af sam- viskusemi það námsefni sem skólinn leggur tii grund- vallar, en kröfur skólans til sinna nemenda eru ávallt miklar. Til þess að ljúka prófi ffá Ritaraskólanum þarf lágmarkseinkunn- ina 7.0 í öllum ’Uörg L námsgreinum. Námsefni: □ íslenska ............... 76 klst. □ bókfærsla ................ 72klst. □ bókfærsla eða enska ..... 90 klst. □ reikningur .............. 36 klst. □ tölvur .................. 39 klst. □ vélritun ................ 24 klst. □ tollur .................. 33 klst. O lög og formálar ......... 12klst. O skjalavarsla ............ 9 klst. O verðbréfamarkaður ....... 3 klst. Framhaldsbrautir í beinu framhaldi af námi í Ritara- skólanum getur þú valið um tvær framhaldsbrautir: fjármálabraut og sölubraut. Með þessum nýju brautum er námið í Ritaraskólanum orðið 2ja ára nám. Sérmenntun fyrir nútíma skrifstofúfólk. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR f SÍMA 10004 OG 21655 ÁNANAUSTUM 15 MÁtASKÓU rjtáháskóTi 'FRÁ L’ORÉAL PARÍS ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ. LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. FARARHEILL 87 EFNIR TIL SAMKEPPNI UM GERÐ HANDRITS AÐ MYNDBANDITIL NOTKUNAR VIÐ UMFERÐARFRÆÐSLU J/f Skila skal frumsömdu handriti að myndbandi, sem er 2x20 mínútur, til notkunar við umferðarfræðslu f þremur efstu bekkjum grunrtskóla, 7.-9. bekk. Handritum skal skila sem kvikmyndahandritum, þar sem fram kemur skýr lýsing á mynd, efnisatriðum og öðrum nauðsynleg- um upplýsingum. Mm Sérstök dómnefnd verður skipuð og er Sigurður Helgason, c/o Fararheill '87, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, sími 91-37320, trúnaðarmaður hennar og veitir hann allar nauðsynlegar upplýsingar. JB Veitt verða ein verðlaun kr. 150 þúsund fyrir besta hand- ritið að áliti dómnefndar. Verðlaunin framselja rétt til gerðar og sýn- ingar myndarinnar til Fararheillar ’87. Gera ber sérstakan samning um framleiðslu hennar. Jafnframt kemur til greina að nýta fleiri hug- myndir samkvæmt samkomulagi. Handritum skal skila ómerktum, ásamt lokuðu umslagi með nafni höfundar. Þau skulu send til Fararheillar ’87, c/o Samband ís- lenskra tryggingafélaga, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, í síðasta lagi 15. desember 1987. Þátttakandi samþykkir reglur samkeppn- innar með afhendingu handrits. ÁTAK BIFREIÐATRVGGINGAFÉIAGANNA

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.