Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 29
ist Leikið tveim skjöldum. Þar sveifl-
ar hann Vikivaka og Jólasveinasöng
þeirra Jóns Múla og Jónasar Árna-
sona og ýmsum öðrum ópusum auk
klassískra harmónikkuverka.
Svo er auðvitað alltaf jafngaman
að geta endað hverja grein svo:
Munið að létta andann og mæta í
Heita pottinum á sunnudagskvöld
þar sem íslensk sveifluljón láta
gamminn geisa.
Vernharður Linnet
Scandinavia
today í Japan
Menningarsamvinna Norður-
landa er um margt til fyrirmyndar.
Útávið kynna þau stundum sameig-
inlega menningu sína. Fyrir nokkr-
um árum fór fram umfangsmikil
menningarkynning í Bandaríkjun-
um, sem þótti takast vel. Nú átti sér
stað svipuð menningarkynning í
Japan. Ymsar sýningar voru settar
upp, listsýningar og listiðnaðar-,
hönnunar- og þjóðlífssýningar. Þá
voru bókmenntakynningar, kvik-
myndasýningar, danssýningar og
umfangsmikil tónleikaröð, sem
stuttlega verður fjallað um hér.
Haldnir voru fimm tónleikar, dag-
ana 1,—5. nóvember í Ginza Saison-
leikhúsinu í Tókýó, sem undirbúnir
voru af Nomus-nefndinni í samráði
við japanska aðila. Fór hópur u.þ.b.
30 músíkanta, flytjenda og tón-
skálda austur þangað. Var þar margt
úrvalsmanna: Kontra-kvartettinn
frá Danmörku, slagverkshópurinn
Kroumata frá Stokkhólmi, kammer-
hópurinn Clusters frá Helsinki,
kammerhópur Ny musikk frá Ósló,
norska söngkonan Anne Lise Bernt-
sen, sem aðallega syngur í Stokk-
hólmsóperunni, og einleikssnilling-
arnir Staffan Scheija og Einar Henn-
ing Smebye á píanó, og Einar okkar
Jóhannesson á klarinettu. Allur var
tónlistarflutningur frábær, og ekki
síst vakti snilldarleikur Einars mikla
athygli, sem mér kom ekkert á
óvart.
En fyrstu tónleikarnir hófust á
Choralis, hljómsveitarverki Jóns
Nordal, sem hann samdi fyrir Rost-
rópóvíts. Útvarpshljómsveitin í
Tókýó lék, og sjálfur Esa-Pekka Sar-
aste stjórnaði af miklum skörungs-
skap. Svo komu á eftir þekkt verk
eftir Síbelius, Nielsen, píanókonsert
Griegs, sem Staffan Scheija lék með
miklum bravúr, og Hugo Alfén.
Síðan komu í kjölfarið kammer-
tónleikar, einir á dag. Flutt voru
m.a. tvö verk eftir undirritaðan:
Vögguvísa Katrínar Mánadóttur um
Eirík konung XIV, við kvæði Zakar-
íasar Tópelíusar (hann ritaði m.a.
Sögur herlæknisins). Það verk var
samið fyrir finnska hópinn Clusters
á sínum tíma og hina miklu söng-
konu Dorothy Dorow, en nú söng
Anne Lise Brantsen. Þetta stykki
hefur aldrei heyrst hér heima. Hitt
verkið eftir mig var Fremur hvítt en
himinblátt, klarinettutríó, sem
heyrst hefur út um allar jarðir. Þá
lék Kontrakvartettinn Sex þætti fyr-
ir strengjakvartett eftir Karólínu
Eiríksdóttur af mikilli vandvirkni.
Einar Jóhannesson flutti Drift eða
Rek eftir Þorkel Sigurbjörnsson
með Staffan Scheija, en þetta stykki
er að finna á einleiksplötu Einars
sem út kom eigi alls fyrir löngu. Þá
flutti hann líka einleiksverk Askels
Mássonar, Blik, sem einnig er til á
hljómplötu. Og Einar var enn í eld-
línunni, einn eða ásamt Scheija.
Hann flutti líka verk eftir Paavo
Heininen, Sven-David Sandström,
Herman D. Koppel og Edvard Hage-
rup Bull.
Þetta var einkum það sem að okk-
ur íslendingum sneri, en margt
fleira eftirminnilegt má nefna: Tin-
tinabulari eftir Per Nörgaard, nýtt
verk um Tinna, svo og Repons IV
eftir Arne Nordheim, gamall „slag-
ari“, og Ancora eftir Jan W. Morten-
son.
Japanir fylltu salinn og hlýddu
spenntir á músíkina. Gestgjafi
þeirra var eitt þekktasta tónskáld
vorra daga, Toru Takemitsu, og
kynnti hann höfundana.
Það var mikið um veisluhöld og
stórmenni, enda Svíakonungur og
Danakrónprins viðstaddir ásamt
norrænum ráðherrum, þ.á m. Birgi
ísleifi og frú hans.
Hafliöadagar í
Norrœna húsinu
Skömmu eftir stórátak í bók-
menntamálum — alþjóðlegt rithöf-
undaþing — gerir Norræna húsið
myndarlegt átak í tónlistinni; stend-
ur fyrir ítarlegri kynningu á verkum
Hafliða Hallgrímssonar, sem fékk
tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
núna seinast. Knut Ödegárd, for-
stjóri Norræna hússins, er maður
smekkvís og fundvís á stóratburði,
enda maður há- og fjölmenntaður,
auk þess hið besta skáld. Tónlistarlíf
í Reykjavík er orðið svo umfangs-
mikið, og stundum fjörugt, að okkur
hættir til að verða sjálfum okkur
nógir: gleyma merkismönnum, sem
af tilviljun ekki eru á staðnum. Og
þetta hefur gerst á stærri stöðum en
i Reykjavík. Hafliði hefur alltaf verið
búsettur erlendis, sem í sjálfu sér er
engin listræn dyggð, og það hefur
orðið til þess, að við höfum ekki
gert okkur nægjanlega grein fyrir
mikilvægi hans, þótt sambandið
hafi aldrei rofnað. En nú hefur
Norræna húsið bætt úr þessu.
(Annað tónskáld sem við megum
ekki gleyma er Jónas Tómasson á
Isafirði, en sá staður er jafnlangt frá
Reykjavík og Edinborg.)
Eins og kunnugt er, og fram kom
á tónleikunum, er Hafliði prýðileg-
ur sellisti, hægt og sígandi haslaði
hann sér völl sem tónskáld. Þeir
tvennir tónleikar, sem upp á var
boðið, ásamt persónulegu spjalli
hans sýndu þennan feril glögglega.
Við fengum að heyra fíngerð
kammerverk, sem birtu okkur kosti
Hafliða; þau voru háljóðræn, gegn-
sæ, tæknilega vel unnin og nákvæm
í framsetningu.
Hafliði er mikill nostrari, sem
bæði er kostur og löstur hjá lista-
manni. Verkin vilja verða hvert
öðru lík, og það er ekki að sjá miklar
breytingar í stíl eða framsögn frá
elsta verkinu til hins yngsta. Hafliði
virðist hafa fundið sér ,,ídeal“, sem
hann reynir að nálgast með yfirlegu
og fínpússningu. Sumir höfundar
msmim
VINSÆLUSTU TOL VUR í EVRÓPU í DAG
Nú getum við boðið þessar frábæru tölvur með aukabúnaði og forritum
á verði og greiðslukjörum sem aðeins AMSTRAD getur boðið.
Clf If CDT I ITl “ VILDARKJÖR ALLT AÐ 12 MÁN.
CIVIVCIl I U I 1 1- SAMNINGUR ALLT AÐ 12 MÁN. EÐA
REST A 6-8 MAN.
Út, SKULDABRÉFI.
Kr. 47.400.-I |Kr. 56.900.-
mmmpiaa)
Kr. 87.590.-
—
Kr. 19.980.-
AMSTRAD PC 1512M
1. drif 14" sv/hv pergam. skjár.
Litaskjár auka kr. 17.900.-
AMSTRAD PC 1512M AMSTRAD PC 1512M AMSTRAD PRENTARI A4
2 drif. 14“ sv/hv pergam. skjár. Lita- 20 MB. HD. 14" sv/hv pergam.skjár. DMP 3160. Hraði 160 stafir pr.sek.
skjár auka kr. 17.900.- Litaskjár auka kr. 17.900.- NLQ gæöaletur, PC staðall.
Al ■ I I Hll ARJICTB An D/' 4C4 0 Mús-ísI. GEM forritin: Graphic, Desktop og Paint teikniforrit.
ULLUIVI MIVI9 I KMI/ IV 10l£ Abilityforritin: Ritvinnsla, súlu-og kökurit, Reiknivangur, Gagnasafn
TOLVUNUM FYLGIR:
og Samskiptaforrit.
4 leiklr: Bruce Lee, Dambuster, Wrestling og PSI 5T.C.
Kr. 86.570.- Kr. 95.980.- Kr. 126.870.- Kr. 32.500.-
IEEEI
AMSTRAD PC1640 ECD 14“ ECD hágæða litaskjár. EGA, Hercules, CGA kort. 1 drif. Mús og íslenskuö GEM forrit. AMSTRAD PC 1640 ECD AMSTRAD PC 1640 ECD AMSTRAD PRENTARIA3 14“ ECD hagæða litaskjár. 14“ ECD hágæða litaskjár. DMP 4000. Hraði: 200 stafir pr. sek. EGA, Herkules, CGA kort. 2 drif. EGA, Herkules, CGA kort. 20MBHD. NLQ gæðaletur. PC staðall. Mús og islenskuö GEM forrit. Mus og islenskuö GEM forrit.
ViÐGERÐARÞJÓNUSTA: Tækniverkst. Gísla J. iohnsen. MÓTTAKA: AMSTRAD verslunin v/ Hlemm. NÁMSKEIÐ: Tölvufræðslan, Borgartúni 56.
FYRIRTÆKJA TILBOÐ: DAH fiórha9sbókhald* AMSTRAD PC1512 M 20 MB HD. KR. 119.900.- |\MW sölu-og^ag^rkerfi. AMSTRAD PC1640 ECD 20 MB HD. KR. 159.900.-
HÖFUM OPNAÐ
STORGLÆSILEGA
éÍGQFERMETRA VERSLUN VIÐ HLEMM.
/' AMSTRAO er breskt fyrirtæki með utibú um allan heim!
AMSTRAD framleiðir 21 gerð af tölvum auk hljómtækja og myndbanda.
AMSTRAD tölvureru nú langvinsælustu tölvur í Evrópu.
AMSTRAD hefur tvöfaldað veltuna árlega siðan 1983.
AMSTRAD hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir framleiðslu og markaðssetningu.
AMSTRAD hefur nú opnaö útibú í Bandaríkjunum. 800 tölvuverslanir þar selja nú AMSTRAD.
AMSTRAD markaössetur nýja byltingarkennda feröatölvu á ótrúlega lágu veröi i jan.'88.
AMSTRAD hefur boðað 15-20 nýjungar á árinu 1988.
AMSTRAD framleiöir vöru, sem er tilbúin til notkunar, kostar lítiö en gefur mikiö.
Opið laugardaga kl. 10-16.
VERSLUN V/ HLEMM. S. 621122.
Bökabúð
TÖLVUDEILD
WKVSkCKk Laugavegi 116,
"5** 105 Reykjavík,
s: 621122.
Akranes: Bókaskemman / Keflavík: Bókab. Keflav.
Akureyri: Bókav. Edda / ísafj. Hljómtorg
ÖLL VERÐ MIÐAST VIÐ STAÐGR. OG GENGI GBP 5. NÓV. '87.
jaldió,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum!
Hreyfill býður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
UREúnil
68 55 22
HtLGAHFÓS I UHINN 2!i