Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Blaðsíða 7
Nýtur vinsœlda langt umfram adra stjórn- málamenn, langt út fyrir sinn flokk og langt umfram þad sem áöur hefur mœlst. STEINGRlMIIR FER Á FLUG Vinsœldir Steingríms Hermannssonar eru meö ólíkind- um. I skoöanakönnun Helgarpóstsins um stuöning viö einstaka stjórnmálamenn fékk hann rétt tœplega þau at- kvœöi er allir aörir formenn stjórnmálaflokka fengu samtals. Paö þarfaö leita langt til aö finna samjöfnuö viö þess- ar vinsœldir og ólíklegt veröur aö telja aö hann finnist í Islandssögunni. Þó aföörum toga sé má líkja vinsœldum Steingríms viö fylgi Stalíns, Elísabetar Bretadrottningar og Johns F. Kennedy, eftir aö hann var myrtur. EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON MYNDIR JIM SMART Þetta er þriðja könnunin sem Helg- arpósturinn gerir á fylgi einstakra stjórnmálamanna á þessu ári. Stein- grímur hefur verið efstur að stigum í þeim öllum, en það hefur ekki áður munað jafnmiklu á honum og öðr- um stjórnmálamönnum. í þeim tveimur könnunum sem gerðar voru meðan hann gegndi starfi for- sætisráðherra fékk hann 15 og 63 prósentum fleiri atvkæði en næsti maður á eftir. Nú fær hann hins vegar 229 atkvæði, eða 160 prósentum fleiri atkvæði en næsti 18 ÖVINSÆLIR STJÓRNMÁLAMENN Hér aö neðan eru nöfn þeirra alþingismanna er enginn aðspurðra i könnuninni sagðist styðja eöa vilja styöja. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir Alexander Stefánsson Danfríður K. Skarphéðinsdóttir Eiður Guðnason Friðjón Þórðarson Geir H. Haarde Guömundur H. Garðarsson Guömundur Ágústsson Hreggviöur Jónsson Jóhann Einvarðsson Jón Sæmundur Sigurjónsson Jón Kristjánsson Karl Steinar Guðnason Kristín Einarsdóttir Málmfriður Sigurðardóttir Ólafur Þ. Þórðarson Óli Þ Guðbjartsson Valgerður Sverrisdóttir maður, sem var Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. Þetta mikla fylgi Steingríms er því ekki hægt að skýra með ljómanum af embætti forsætisráðherra, eins og gert var eftir fyrri kannanir Helg- arpóstsins. ÞVERPÓLITÍSKUR STEINGRÍMUR Þegar niðurstöður þessa hluta skoðanakönnunar Helgarpóstsins eru bornar saman við fylgi flokk- anna í sömu könnun kemur í ljós að vinsældir Steingríms eru í litlu sam- ræmi við fylgi Framsóknarflokks- ins. I Reykjanesi, kjördæmi Stein- gríms, fellur þannig fylgi Framsókn- ar úr 19,8 prósentum atkvæða í síð- ustu kosningum niður í 11,1 prósent af þeim sem tóku afstöðu í könnun- inni. Um 145 prósentum fleiri sögðust styðja Steingrím en sögðust kjósa Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga. Albert Gudmundsson er eini formaður stjórnmálaflokks annar, sem fleiri sögðust styðja en sögðust myndu kjósa þann flokk sem hann er í forsvari fyrir ef gengið yrði til kosninga í dag. Samkvæmt þessu virðist Stein- grímur njóta þverpólitísks stuðn- ings. Slíkur stuðningur hefði á árum áður verið óhugsandi þegar kjós- endur voru fastheldnari fylgismenn einstakra flokka. Vinsældir Stein- gríms bera þess vott, að flokkakerf- ið hefur riðlast. VINSÆLIR RÁÐHERRAR Á eftir Steingrími fylgja fjórir stjórnmálamenn sem skera sig nokkuð frá hinum hvað fylgi varðar og eru allir ráðherrar. Næstur á eftir Steingrími er Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra og formaður Sjálf- stœöisflokksins. Þorsteinn fékk 88 atkvæði eða um 72 prósent af fylgi síns flokks í könnuninni. Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra varð númer þrjú með 79 atkvæði. Halldór hefur ætíð verið meðal allra hæstu manna í skoðanakönnunum Helgarpóstsins og virðist Framsókn því eiga verðugan arftaka Stein- gríms. I fjórða sæti varð Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra og formaður Alþýduflokksins, með 74 atkvæði, eða nær því það sama og flokkur hans fékk í könnuninni. Flokkssystir Jóns og samráðherra, Jóhanna Sigurdardóttir félagsmála- ráðherra, fékk 71 atkvæði og lenti því í fimmta sæti. Þessir ráðherrar hafa allir verið meira í eldlínu fjölmiðla en samráð- herrar þeirra í tengslum við kvóta- mál, fjárlög og húsnæðismál. ...OG ÓVINSÆUR FORMENN Á hæla ráðherranna koma tveir forystumenn stjórnarandstöðunnar, Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, með 46 atkvæði og Gudrán Agnarsdóttir Kvenna- listakona, með 38 atkvæði. Albert nýtur fylgis umfram Borgaraflokk- inn en Guðrún fékk ekki nema rúm 50 prósent af þeim atkvæðum er Kvennalistinn fékk í könnuninni. Sú útkoma er þó skárri en hjá Ólafi Ragnari Grímssyni, nýkjörnum for- manni Alþýöubandalagsins. Hann fékk 22 atkvæði, sem eru ekki nema 40 prósent af fylgi flokksins sem hann er í forsvari fyrir. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra er, sem fyrr, sá ráðherra er nýtur minnsts stuðnings. Hann fékk tvö atkvæði. Fjórði Framsóknarráð- herrann, Gudmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, nýtur lítillega meiri stuðnings. Aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins en Þorsteinn Pálsson eru allir á svipuðum slóðum á listanum. Jón Sigurösson við- skiptaráðherra fær nokkuð viðun- andi útkomu, níunda sætið. STUÐNINGUR ÚT FYRIR ÞINGSALI Af þeim fimmtíu og þremur stjórnmálamönnum sem hlutu at- kvæði í könnuninni voru fjörutíu og fimm aðalmenn á Alþingi. Þrír vara- menn komust á blað; Ólafur Ragnar Grímsson, Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýöusambandsins, og Árni Johnsen blaðamaður. Þrír borgar- stjórnarmenn fengu atkvæði; Davíö Oddsson borgarstjóri, Kristín Ólafs- dóttir og Sigurjón Pétursson, borg- arfulltrúar Alþýðubandalagsins. Þá fengu Gudmundur J. Gudmunds- son, formaður Dagsbrúnar, og Val- gerdur Bjarnadóttir, fyrrverandi varaformaður Baridalags jafnaöar- manna, sitt hvort atkvæðið. 23 VINSÆLUSTU STJÓRNMÁLAMENNIRNIR Spurt var: Getur þú nefnt einn til þrjá stjórnmálamenn, sem þú vilt styðja eöa sem þú styöur? Innan sviga eru sæti stjórnmálamannanna i kónnun Helgarpóstsins í mars a þessu ári. 1. Steingrimur Hermannsson 229 atkvaeði mars (1) 2. Þorsteinn Pálsson 88 atkvæði (3) 3. Halldór Ásgrimsson 79 atkvæði <4) 4. Jón Baldvin Hannibalsson 74 atkvæði (5) 5. Jóhanna Sigurðardóttir 71 atkvæði (8) 6. Albert Guðmundsson 46 atkvæði (2) 7. Guðrún Agnarsdóttir 38 atkvæði (17) 8. Svavar Gestsson 27 atkvæði (6) 9. Jón Sigurðsson 24 atkvæði (13) 10. Ólafur Ragnar Grímsson 22 atkvæði (8) 11. Birgir ísleifur Gunnarsson 18 atkvæði (29) 12. Davíð Oddsson 16 atkvæði (13) 13. Friðrik Sophusson 15 atkvæði (10) 14. Guðrún Helgadóttir 13 atkvæöi (13) Matthías Á. Mathiesen 13 atkvæði (12) 16. Kristin Halldórsdóttir 12 atkvæði (16) 17. Sverrir Hermannsson 9 atkvæði (7) 18. Þórhildur Þorleifsdóttir 7 atkvæði (-) Halldór Biöndal 7 atkvæði (-) 20. Eyjólfur Konráð Jónsson 6 atkvæöi (11) Guðmundur Bjarnason 6 atkvæöi (-) 22. Ólafur G. Einarsson 5 atkvæöi (29) 23. Matthías Bjarnason 4 atkvæði (17) 30 aðrir stjórnmálamenn fengu þrjú atkvæði eða færri í þessari könnun. í töflu hér til hliöar eru þeir alþingismenn sem engin atkvæði hiutu tilgreindir. VINSÆLDIR STJÓRNMALAMANNA EFTIR FLOKKUM Hér aó neóan er atkvæðum stjórnmálamannanna i könnuninni skipt eftir þeim flokkum er þeir fylgja. Fjöldi atkvæða % Fylgi flokksins í könnuninni Alþýðuflokkur 178 20% 16,3% Framsóknarflokkur 324 37% 19,9% Sjálfstæöisflokkur 193 22% 25,9% Alþýðubandalag 79 9% 11.6% Kvennalisti 57 6% 15,6% Borgaraflokkur 49 6% 7,0% HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.