Helgarpósturinn - 19.11.1987, Side 6
Og þaö er urxdantekningarlaust?
„Þau fara til lögfræðinga úti í bæ,
ef þau lenda í vanskilum."
Huaöa lögfrœöingar hafa séö um
þá Innheimtu?
„Það eru lögmenn Ármúla 3 sf
Hvenoer fóru slík skuldabréf
vegna greiöslu opinberra gjalda aö
berast þínu embœtti — var þaö fyrir
1983?
„Ég hef ekki lagt það á minnið og
ég vil því ekki tjá mig um það. En
þessi bréf eiga að koma frágengin
hingað, þinglýst og stimpluð. I fyrsta
lagi verður þó að hafa sérstaka
heimild til þessa.“
Pú átt viö heimild frá ráöherra?
„Já, eða frá fjármálaráðuneytinu.
Ef sú heimild er fyrir hendi skipti ég
mér ekki af því, heldur reyni að
vinna mitt verk í samræmi við
ákvæði bréfsins og heimildina."
Viö höfum heimildir fyrir því aö
ráöherra hafi veriö varaöur viö því
af embœttismönnum aö til þessarar
fyrirgreiöslu skorti stoö í lögum?
„Eg get engu svarað til um það. Ég
myndi ætla að það væru þeir sem
gæfu út þessa heimild eða væru ráð-
gjafar ráðherra í þessum málum.
Pappírarnir koma til mín klárir."
Og þaö er undantekningarlaust
búiö aö ganga fyllilega frá skulda-
bréfunum þegar þau berast þér?
„Það á að vera svo. Ég vil ekki full-
yrða hvort svo sé í öllum tilvikum,
en þá reyni ég að ganga frá því.“
777 hvaöa lagaheimilda er þá vís-
aö í þessum tilvikum?
„Það er ekki vísað í neinar laga-
greinar í heimildarbréfunum. En
hins vegar eru yfirleitt sett skilyrði,
meðal annars að skuldabréfin séu
tryggð með lánskjaravísitölu með
hæstu vöxtum, með bankatrygging-
um ef hægt er að ná þeim og al-
mennt er reynt að hafa fyllstu trygg-
ingar í þessum skuldabréfum sem
ég hef tekið við."
Fylgir þá almennt engin skýring
meö þessum heimildum á því af
hverju þessi leiö er farin?
„Nei, þetta er ákvörðun ráðuneyt-
isins. Hvað liggur að baki bréfunum
kemur ekki fram svo ég viti. Þú get-
ur væntanlega fengið upplýsingar
um það hjá ráðuneytinu."
FÞG
VALDNÍÐSLA EÐA VÆNTUMÞYKJA
Lögreglustjórinri setur strangari kröfur á Reiöhöllina í Víöidal en aöra samkomusali.
Böövar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, hefur tek-
ið þá ákvörðun að hafna öllu samkomuhaldi í Reiðhöll-
inrti í Víöidal eftir klukkan sjö á kvöldin á tímabilinu
október til apríl. Þessi ákvörðun var tekin eftir að Böðvar
hafði synjað hestamönnum um að halda „Uppskeruhá-
tíð“ sína í húsinu.
Rökin fyrir þessari ákvörðun eru um margt kostuleg.
Mál þetta virðist því bera keim af gerræðisákvörðun Iög-
reglustjóra frekar en að því sé unnið í anda þess að eitt
skuli yfir alla ganga.
EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON
Eins og kunnugt er var Reiðhöllin
í Víðidal tekin í notkun síðastliðið
sumar. Að sögn forsvarsmanna
hennar var í öllum áætlunum þeirra
gert ráð fyrir því að nýta hana til
sýninga- og skemmtanahalds þann
tíma er hún nýtist ekki hestamönn-
um sjálfum. í erindi þeirra til bygg-
ingarnefndar var sótt um leyfi til
hestasýninga og einnig til annars
konar samkomuhalds. Það töldu
þeir vera forsendu þess að fyrirtæk-
ið stæði undir sér.
„...SEM BITNAÐI Á
ÞEIM
LOGREGLU-
MÖNNUM..."
Ein af fyrstu slíku samkomunum
voru tónleikar með bandaríska
rokksöngvarnaum Meat Loaf. Eins
og fram kom í fréttum brutust út
ólæti tónleikagesta í strætisvögnum
er fluttu þá heim að skemmtun lok-
inni.
Um þetta atriði segir í skýrslu
Guömundar Guöjónssonar vara-
yfirlögregluþjóns, sem Böðvar
byggir synjun sína á:
„Talsverðar skemmdir voru unnar
á vögnunum af þeim unglingum
sem verið var að flytja í bæinn. Varð
„Þaö eru mörg dœmi þess aö bœndur fyrir
noröan og austan hafi fengiö styrk til aö
hœtta búskap og keypt sér smábát og hafiö
útgerö. Þessir menn hafa veriö leiddir úr
snörunni og bemt í höggstokkinn.“
Guðjón A. Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins.
„Fundurinn áréttar þá skoðun sína
vegna umræðna í þjóðfélaginu að
undanförnu um' skiptingu afla-
kvóta, að eðlilegast sé að skipta
aflanum á þau atvinnutæki, sem
ætlað er að sækja aflann."
Úr ályktun formannafundar Sjómanna-
sambandsins.
„Samkeppnis- og eiginhagsmuna-
kerfi karlveldisins sundrar konum."
Úr ályktun landsfundar Kvennalistans.
Sigurður Gunnarsson,
triHusjómaður á Húsavík.
i en við höfð-
um að myndu
ar aö
hofiir oáet
ináHli 9vSl
Flosi Ólafsson,
in forvígiemanna samtakanna
„Tjörnin Irfi".
hús verður líftrygging fyrir
Tjörnina og þegar borgarstjórn
verður komin í þetta fallega og lát-
lausa hús á bakka Tjarnarinnar má
bóka að borgarfulltrúar muni sjá til
þessað Tjörnin haldi reisn sinni og
verði fegurri en nokkru sinni fyrr."
Davið Oddsson,
borgarstjóri.
„Þetta samráð eggjaframleiðenda
brýtur í bága við verðlagslög."
Georg Ólafsson,
verðlagsstjóri.'
þetta til þess að vagnarnir komu
ekki aftur og greip um sig mikil
vonska meðal unglinga sem eftir
voru, um 300 talsins, sem bitnaði á
þeim lögreglumönnum sem lög-
gæslu önnuðust á staðnum, og
kröfðust unglingarnir þess að þeim
yrði ekið í bæinn eins og þeim virð-
ist hafa verið lofað þegar þeir
keyptu aðgöngumiðann. Varð lög-
reglan við erfiðar aðstæður að róa
unglingana og vísa þeim, sem hægt
var, leið í bæinn, en rútubifreið lög-
reglunnar var síðan notuð til að
flytja þá ca. 50 unglinga, sem eftir
voru.“
Síðan vitnar Guðmundur í upplýs-
ingaskýrslu lögreglunnar um þetta
kvöld: „Það sem bjargaði því að
ekki kom til teljandi vandræða var
hversu veðrið var í rauninni gott. Ef
eitthvað hefði hreyft veður má sjá
að til vandræða hefði komið."
VEÐURFRÆÐINGUR
DREGINN TIL VITNIS
Eftir þennan kafla fjallar skýrsla
Guðmundar að mestu leyti um mis-
mun á veðurfari í Reykjavík og á
Hólmi, sem er veðurathugunarstöð
í grennd við Reiðhöllina. Styðst
Guðmundur við rit Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings um veðurfar á
höfuðborgarsvæðinu.
Þar sem Hólmur liggur hærra en
Veöurstofan í Reykjavík er veðurfar
þar með nokkuð öðrum hætti.
Meðalhiti er þar lægri, frostdagar
fleiri, úrkoma meiri og snjólag þar
af leiðandi þyngra. Þetta skýrir Guð-
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík.
Til stuðnings banni sinu á sam-
komuhaldi í Reiðhöllinni í Viðidal eft-
ir klukkan sjö á kvöldin lagði hann
fram skýrslu sem meðal annars-
byggðist á veðurathugunum. Skíða-
skálinn í Hveradölum heldur samt
enn leyfi sínu til samkomuhalds.
mundur allt í skýrslunni og notar
töflur máli sínu til sannindaauka.
Auk þessa telur Guðmundur að
Reiðhöllin sé of afskekkt og of mikil
hætta á að fólk verði sér að voða
þegar það reynir að komast til
byggða drukkið. Bendir hann meðal
annars á nálægð við Elliöaárnar.
í lokin getur Guðmundur þess að
byggingarnefnd hafi einungis veitt
leyfi til hestasýninga, en ekki ann-
arrar starfsemi.
Á þessari skýrslu byggir Böðvar
ákvörðun sína, sem í stuttu máli
felst í því að allt samkomuhald í
Reiðhöllinni er bannað eftir klukk-
an sjö á kvöldin frá október til apríl.
Á öðrum tímum dags og aðra mán-
uði ársins er ýmiss konar samkomu-
hald hins vegar heimilt, en þó með
samþykki lögreglustjórans í Reykja-
vík.
Þessi undanþága frá banninu
kann að líta einkennilega út, þar
sem hluti af rökunum snerist um
það, að byggingarnefnd hefði ein-
skorðað heimild sína við hestasýn-
ingar.
MINNI KRÖFUR
GAGNVART ÖÐRUM
SAMKOMUSÖLUM
Eftir þennan úrskurð var „upp-
skeruhátíð" hestamanna að sjálf-
sögðu frestað. Þá fluttu Samtök um
byggingu tónlistarhúss fyrirhugaða
tónleika sína um síðustu helgi fram
til næsta árs verða þeir þá haldnir í
Háskólabíói. JC-hreyfingin frestaði
einnig fyrirhuguðu samkomuhaldi.
Forsvarsmenn Reiðhallarinnar
hafa sent lögreglustjóranum bréf
þar sem þeir mótmæla ákvörðun
hans og draga í efa þær niðurstöður
sem Guðmundur Guðjónsson komst
að í skýrslu sinni.
Varðandi samgöngur frá Reiðhöll-
inni benda þeir á að næsti viðkomu-
staður Strætisvagna Reykjavíkur sé
í 400 metra fjarlægð frá höllinni.
Það sé styttri vegalengd en sé vana-
lega milli viðkomustaða SVR. Þá
benda þeir á að skemmdir á vögn-
unum hafi verið að fullu bættar og
stjórn SVR hafi lýst sig reiðubúna að
taka að sér fólksflutninga frá Reið-
höllinni í framtíðinni.
Þá bentu forráðamenn Reiðhall-
arinnar á að samkomur hefðu verið
og væru leyfðar í samkomuhúsum,
bæði fjær byggð og eins ofar sjávar-
máli. Þeir tóku dæmi af Fáksheimil-
inu, sem er í næsta nágrenni Reið-
hallarinnar, Rafveituheimilinu, sem
er alveg við Elliðaárnar, Gólfskálan-
um í Grafarholti og Skíöaskálanum
í Hveradölum, sem er uppi á miðri
Hellisheiöi.
Það virðist því margt benda til
þess að Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri hafi beitt strangari kröfum á
Reiðhöllina í Víðidal en ofangreinda
samkomusali. Á meðan þeir fá
heimild til samkomuhalds verður
að telja að eitthvað annað en vel-
ferð samkomugesta vaki fyrir lög-
reglustjóra.
,,Paö er eins og ffólk megi ekki
vera að því að deyja/#
Kristín Davíðsdóttir,
hjúkrunarfræöingur.
„Stjórnin er aö gltma viö mörg erfið
verkefni og önnur eru framundan
vegna versnandi efnahags-
ástands."
Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra.
„Eitt verö ég aö segja aö ég er svo-
lítiö hissa á Jóni Óttari aö skíra ekki
stööina Stöð-1, því þaö er engin
sjónvarpsstöð meö þvi nafni."
Sigurjón Valdimarsson,
ritstjóri.
„Ég hef aldrei aetlað i forsetaemb-
aettiö og aldrei látiö mér detta það
í hug."
Steingrimur Hermannsson,
utanríkisráðherra.
„Borgarstjóri er fæddur á Stokks-
eyri eöa Eyrarbakka..."
Albert Guðmundsson,
formaöur Borgaraflokksins.
„Þaö er ekki auðvelt að koma
auga á farveg fyrir okkar mál á
Alþingi."
Þórhildur Þorleifsdóttir,
þingmaður Kvennalista.
„Með þeim búnaöi sem Slökkvi-
lið Akureyrar hefur yfir aö ráða get-
um viö ekki bjargað fólki úr eids-
voöa sem veröur hærra en á fjóröu
hæð"
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri á Akureyri.
„Ég þekki ekki starf Byggðastofn-
unar í smáatriðum en ég hef ekki
séö neitt sem réttlætir tilvist
hennar."
Þórhallur Pálssen,
arkitakt.
„Viö ætluöum andstæöingunum í
póiitík hér aldrei eins illt og þeir
sýnast núna hafa veriö að gera."
Einar Olgeirsson,
fyrrverandi formaður Sósíalistaflokksins.
„Þeir biöa nú bara eftir að hann
lygni, loönan er uppi, þó hún hafi
staðið djúpt. Þaö er eitthvert viö-
áttubrjálæði í henni, hún er óút-
reiknanleg."
Ástráður Ingvarsson,
starfsmaður loðnunefndar.
„Sem dæmi um minar efasemdir
hef ég aldrei haft trú á því aö for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins, Páll Pétursson, ætli aö
vínna meö Alþýðuflokknum af heil-
indum."
Karvel Pálmason,
þingmaður Alþýðuflokksins,
„Albert hefur margt sér til ágætis,
en meðal kosta hans hefur aldrei
veriö að fara rétt með staðreyndir."
Davið Oddsson,
borgarstjóri.
„Ég tel aö það þurfi aö opna vestur-
gluggann betur. Steingrímur mun
eflaust halda vel á þeim málum."
Jón Sigurðsson,
viðskiptaráðherra.
„Hversu góð sem tónlistin er er það
óieyfilegt siöferðislega séö að ætla
að allir séu tilbúnir að hlusta á tón-
list hvar og hvenær sem er."
Steingrimur Gautur Kristjánsson,
borgardómari.
„Framsóknarflokkurinn hefur veriö
mikið til stikkfrí í vandamálaum-
ræðunni."
Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra.
„Maður hefur ekkert á móti fallegu
kvenfólki frekar en fallegum körl-
um."
Þórhildur Þorleifsdóttir,
þingmaður Kvennalistans.
6 HELGARPÓSTURINN