Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 11

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 11
lótmæli gegn nýja ráðhús- inu í Tjörninni hafa mikið verið í fréttum að undanförnu. Eins og kunnugt er hefur bæði verið gefið grænt ljós á bygginguna í borgar- kerfinu og hjá Skipulagsstjórn, en hins vegar er enn eitt stig eftir áður en hægt verður að hefjast handa við byggingarframkvæmdirnar. Skipu- lagsmál heyra nefnilega undir fé- lagsmálaráðuneytið og á Jóhanna Sigurðardóttir þvi eftir að fá málið inn á borð til sín til staðfestingar. Andstæðingar nýja ráðhússins munu nú setja traust sitt á ráðherr- ann, þó svo undirskrift hans sé venjulega ekki annað en forms- atriði í tilvikum sem þessum. . . lenn muna vafalaust eftir skrifum HP um Lúxemborgarann Jean Pierre Fettmann, sem barst hingað til Iands, eftirlýstur af Inter- pol í kjölfar vafasamra skartgripa- viðskipta í smáríkinu. Nú lesum við í Lögbirtingablaðinu að Jean Pierre hafi stofnað í Reykjavík fyrir- tækið B & B hf. og er tilgangur þess sagður vera „ráðgjafarstarfsemi á sviði alþjóðaviðskipta". Hann er ekki einn um stofnun fyrirtækisins, en er aftur á móti hvort tveggja stjórnarformaður og framkvæmda- stjóri. . . Þ eir urðu eðlilega nokkuð for- viða sláturhússtjórar lá'ndsins og kaupfélagsstjórar þegar Fram- kvæmdanefnd um búvörusamn- inga sendi laganna verði um land allt að telja kindaslírokka í birgðum sláturhúsanna. Ýmsir minntust bruggáranna þegar yfirvöld fóru um landið að passa upp á að menn væru ekki að brugga. Ekki gat Val- ur Arnþórsson, stjórnarformaður SIS, komið auga á sennilega skýr- ingu á þessari aðferð, en sagði við þetta tækifæri: „Sennilega hefur einhver trigger-happí maður sett öf- ugan fót fram úr rúminu einhvern morguninn eftir martröð og þá hef- ur þetta farið svona í gang. Líkt og henti rjúpnaveiðimann um daginn, að skjóta hænu í misgripum . . .“ I æstkomandi mánudag verður kosið í nefndir og ráð á AI- þingi, en þingflokkar innan og utan stjórnar koma sér yfirleitt saman um slíkar skipanir fyrirfram. Heyrst hefur, að Alþýðubandalagið hafi þurft að fórna manni sínum í trygg- ingaráði sökum þess hve Guðrún Helgadóttir sótti það fast að halda sæti sínu í Norðurlandaráði. Mun því ein kvennalistakona sitja í ráð- inu í stað allaballa, en þeir fá vara- mannssæti. Stefán Jónsson átti sæti í tryggingaráði fyrir Alþýðu- bandalagið á síðasta kjörtímabili, en það er hins vegar Helgi Seljan sem gerist varamaður kvennalista- konunnar. Finnst gárungunum það víst ansi hart fyrir Helga að ienda í þeirri stöðu að vera undir kon- unni. . . auðveldumVIÐ HVAR AUGLÝSIR SÁ sem vill ná eyrum fólks á aldrinum 20 til 35 ára? Útvarpshlustun: 20—35 ára 15. október 1987, svæði 4 stöðva. E e í n—i—i—i—n—i—i—n—r 11 12 13 14 15 16 Tími dags Rás 2 mmmm Bylgjan STJARNAN Á STJÖRNUIVNI. Stjarnan nær betur til þessa hóps en nokkur önnur útvarpsstöd*. Vinsældir Stjörnunnar eru slíkar aö réttmætt er aö tala um yfirburðasigur. Línuritið flytur auglýsendum skýr boð: Ef þú þarft að ná tii fólks á aldrinum 20 til 35 ára þá auglýsir þú á Stjörnunni. Auglýsingasími Stjörnunnar: 68 99 10 Alla virka daga .. 8.30 til 19.00 Alla laugardaga... 9.00 til 16.00 / FIVI 102,2 A 104 Sigtúni 7 105 Reykjavik Simi 91-689910 •FJölmlölakönnun Félagwlslndastofnunar H.í. frá 15. október sl. AMurthópurlnn 20—SS trm. Svaeöl fjögurra stööva. HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.