Helgarpósturinn - 19.11.1987, Page 13

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Page 13
RADSTEFNA UM STARFSMENNTUN Félagsmálaráduneytið hefur boðað til ráðstefnu þar sem leitað verður eftir hugmyndum um samhœfða starfsmenntun í atvinnulífinu. EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR Laugardaginn 28. nóvember efnir félagsmálaráöuneytiö til ráðstefnu um starfsmenntun í atuinnulífi, sem opin er öllu áftugafólki um þetta málefni. Fimmtán aðilar flytja er- indi og stutt ávörp á ráðstefnunni undir liðunum „áhrif nýrrar tœkni á vinnumarkaðinrí', ,,starfsmenntun í atvinnulífinu“ og „framtíðarfyrir- komulag". Síðan verður unnið í starfshópum og að lokum verða niðurstöður umrœðnanna rœddar í pallborðsumrœðu. Viö pallborðið munu sitja þeir Asmundur Stefáns- son, forseti ASI, Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneyt- inu, Stefán Olafur Jónsson, deildar- stjóri í menntamálaráðuneytinu, og Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvœmdastjóri VSÍ. Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, var inntur eftir tilgangi ráðstefnunnar. „Félagsmálaráðuneytið er ráðu- neyti vinnumarkaðsmála og því ber auðvitað skylda til að fylgjast með þeim hræringum, sem eru á vinnu- markaðnum og marka stefnu í vinnumarkaðsmálum. Markmiðið með ráðstefnunni er tvíþætt. Ann- ars vegar að reyna að átta sig á því, sem er að gerast á vinnumarkaðn- um — sérstaklega með hliðsjón af þeirri nýju tækni, sem er að ryðja sér til rúms í fjölmörgum starfs- greinum. Einnig viljum við reyna að gera okkur grein fyrir því hvaða breyttu kröfur ný tækni gerir til starfsmanna. Við vitum það svo sem, að ný tækni krefst meiri menntunar og betri þjálfunar starfs- manna og að nokkru leyti hefur ver- ið brugðist við þessu. Það sést t.d. á hinu aukna framboði á alls kyns námskeiðum." — Heyra starfsmenntunarmál ekki undir menntamálaráðuneytið? „Það eru í raun þrjú ráðuneyti, sem tengjast þessu máli með einum eða öðrum hætti: félagsmálaráðu- neytið, menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið. Einnig má benda á, að sjávarútvegsráðuneytið TIL SÖLU lítið notuð ritvél af gerðinni MESSAGE — Concept 11 upplýsingar gefur Jónína í síma 681511 FISHER REVkjavík. sími 622555 SJÓNVARPSBÚÐIN hefur m.a. beitt sér fyrir námskeiða- haldi fyrir fiskvinnslufólk." — Hefur þessum málaflokki verið sinnt eitthvað áður af félagsmála- ráðuneytinu? „Já, við höfum komið nálægt þessu verkefni áður. Það var skipuð nefnd árið 1983, sem fékk það hlut- verk að kanna áhrif nýrrar tækni á vinnumarkaðinn. Hún skilaði áliti 1985, en af ýmsum ástæðum hefur þessu nefndaráliti ekki verið fylgt eftir. Núna er semsagt ætlunin að taka þráðinn upp aftur og vinna að þessum málaflokki. Núverandi félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur mik- inn áhuga á málinu. Hún Iagði t.d. fram frumvarp árið 1984 um endur- menntun vegna tæknivæðingar í atvinnulífinu. Þetta frumvarp er mjög athyglisvert og þar er m.a. gert ráð fyrir því að félagsmálaráðherra skipi endurmenntunarráð og að stofnaður skuli sérstakur endur- menntunarsjóður, en hlutverk hans á að vera að veita styrki vegna end- urmenntunar, til námsgagnagerðar, námskeiðahalds og starfsþjálfunar." — Er ekki mikilvœgt að samhœfa endur- og starfsmenntun í ákveðið kerfi? „Við göngum til þessarar ráð- stefnu með því hugarfari að upplýsa ákveðna hluti og leita síðan eftir hugmyndum um framtíðarfyrir- komulag. Vissulega höfum við líka fyrirmyndir erlendis frá. Félags- málaráðuneytið er t.d. í mjög nánu samstarfi við vinnumálaráðuneytin á hinum Norðurlöndunum og þar höfum við fengið upplýsingar um reynslu annarra af þessum málum. En okkar aðstæður eru auðvitað nokkuð öðru vísi en hjá þjóðum eins Dönum, þar sem við töluverðan at- vinnuleysisvanda hefur verið að glíma. Hér er hins vegar eftirspurn eftir vinnuafli og kannski má láta sér detta í hug að lausnin liggi í því að auka framleiðnina með því að beita nýrri tækni. En til þess að geta það verða starfsmennirnir að vera í stakk búnir til að stjórna nýjum tækjum." — Verður þessi ráðstefna ekki bara skrautfjöður, án nokkurs hag- nýts gildis? „Ég er ekki í nokkrum vafa um hag- nýtt gildi þessarar ráðstefnu. Við munum a.m.k. leggja okkur mjög fram við að ná niður þeim tillögum og hugmyndum, sem fram koma. Síðan er meiningin að draga þetta saman og helst að reyna að birta það í einhverju riti. Við lítum tví- mælalaust á þetta sem lið í stefnu- mörkun stjórnvalda á þessu sviði og leggjum mikla áherslu á að launa- fólk og atvinnurekendur taki þátt í ráðstefnunni og hiki ekki við að viðra skoðanir sínar á þessu máli — sem er stórmál og verður það áfram í framtíðinni." FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA mÆatn er mismunandi viða Wr um heim. Pess vegna skiptir máli að nota sjampó með réttri efnasamsetningu fyrir íslenskt vatn. Man sjampó er unnið af vísindalegri ná- kvæmni af efnafræðingum okkar. Pað hefur rétt pH gildi fyrir íslenska notkun. Man sjampó er til í átta tegundum: • Milt • Balsam •Fjölskyldu • Flösu • Eggja • Barna • Húð og hár • Hárnæring Man-sjampó er fyrir allar gerðir hárs og fæst lika í heils lítra umbúðum. Rannsóknarstola FRIG6 iyngási 1 Garðabæ, simi 651822 'S HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.