Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 28

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 28
þess að stofnunin á tvo hina ágæt- ustjj þætti er aldrei hafa verið sendir út. Þátt með katalónska píanistan- um blinda Tete Montoliu og danska bassaleikaranum Niels-Henning 0rsted Pedersen og annan með tríói Jóns Páls Bjarnasonar. Þáttur Jóns Páls var tekin upp í haust en þáttur Tete og Niels í september 1985 — það er ekki oft að þeir tvímenningar halda saman tónleika og því er sá þáttur gulls ígildi. Djassdagarnir upphófust á leik Stórsveitar Ríkisútvarpsins á Hótel Borg. Hingað hafði verið fenginn sænskur hljómsveitarstjóri og út- setjari, Mikael Ráberg, til að æfa sveitina og fleiri íslenskar stórsveitir og hann kom, sá og sigraði. Það var eins og nýtt band hefði fæðst — slík- um árangri náðu drengirnir undir stjórn Svíans. Auðvitað hefði mátt æfa lengur og laga ýmsa smá- hnökra, eins og gengur, en þegar á heildina er litið var útkoman harla góð. Að vísu skil ég ekki fullkom- lega af hverju einn besti rafbassa- leikari okkar, Birgir Bjarnason, var ráðinn til að leika á kontrabassa þessa viku. Það kom óneitanlega niður á sveiflunni! Verkin voru ýmist sænsk eða fengin úr Ellington-bókinni, utan tvö. Þau sænsku nútímalegri en Rá- berg útsetti Ellington á sína vísu og mikið var farið að hitna í kolunum- þegar ópus einkasonarins, Mercers Ellington, var leikinn aftur í lokin og Bjössi R. stóð upp til að blása seinni hluta básúnusólósins. Bara þetta að standa á fætur skreytti mikið. Gamli stórsveitarjálkurinn Björn R. Einars- son kann brögðin. Það þarf ekki að kvíða framtíð- inni verði ekki fækkað í sveitinni og gestastjórnendur fengnir reglulega! Mikael Ráberg stjórnaði einnig Djassbandi Kópavogs í Heita pottin- um á mánudagskvöldið í síðustu viku. Þar var sama upp á teningnum — bandið blés betur en fyrr og síðar og bros lék um varir stjórnandans í daglega amstrinu, Árna Scheving. „Hingad haföi veriö fenginn sœnskur hljómsveitarstjóri og útsetjari, Mikael Ráberg, til aö œfa sveitina og fleiri íslenskar stórsveitir og hann kom, sá og sigraöi. Þaö var eins og nýtt band heföi fæöst — slíkum árangri náöu drengirnir undir stjórn Svíans.“ Sjá: Djassdagar og djassblómi SPÁSTEFNA 1987 VBTIRINNSÝN /FRAMTÍDINA HVER ERU ÁHRIF EFNAHAGSSTEFNU RÍKISSUÖRNARINNAR Á ATVINNULÍFIÐ? # HVERT ER SAMSPIL VINNUVEITENDA OG HAGSMUNASAMTAKA? HVER ERU ÁHRIF HRÆRINGA Á ERLENDUM MÖRKUÐUM? FÖSTUDAGINN 27. NÓVEMBER KL 13:30 í KRISTALSAL HÓTEL LOFTLEIÐA DAGSKRÁ: SETNING SPÁSTEFNU: Þórður Sverrisson, formaður Stjórnunarfélags íslands. ÁLITÁ EFNAHAGSHORFUM, M.T.T. STÖÐU ÞJÓÐARBÚSINS OG YTRI SKILYRÐA: Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Islands. ÁLITÁ EFNAHAGSHORFUM, M.T.T. FISKVEIÐISTEFNU STJÓRNVALDA, ERLENDRA MARKAÐA OG OLÍUVERÐS: Rögnvaldur Hannesson, prófessor við Norges Handelshoyskole. STAÐA SJÁVARÚTVEGS OG AFKOMUHORFUR: Ólafur B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Miðness hf. IÐNAÐUR IERFIÐLEIKUM: Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar hf. LANDBÚNAÐUR í KREPPU: Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ístess hf. VERSLUN & VIÐSKIPTI - HVER ER STAÐAN? Jón Ásbergsson, forstjóri Hagkaupa hf. ER PENINGASTJÓRNUN ÁVALLT OF SEIN Á SÉR? Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsbanka íslands. OPINBERU FJÁRMÁLIN - SKIPTIR HALLI ÞEIRRA MÁLI? Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra íslands. Fjármálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, skýrir stefnu stjórnvalda og gerir athugasemdir við fram komnar skoðanir. Þátttaka tilkynnist í síma 621066. 5tjórnuriarfélag íslands Ananaustum 15 • Sími; 6210 66 Hann stjórnaði nokkrum ópusum fyrir og eftir. Það er kannski fyrst og fremst þessi mikli kraftur sem Ráberg nær út úr sveitunum er gerir gæfumun- inn. Djass þarf snerpu til að sveiflan fari í gang. Flestir félagarnir í Djass- bandi Kópavogs eru áhugamenn en ryþmasveitin var góð og Þórður Högnason bassaleikari og Birgir Baldursson trommari í sveiflustuði. Að öðrum ólöstuðum kom Birgir mér mest á óvart þessa viku. Einn efnilegasti sveiflugaur er hér hefur lengi heyrst í. Það mátti heyra margt annað en stórsveitir á djassdögunum. Upptök- ur með hljómsveitum Árna Elfars, Kristjáns Magnússonar og sex pían- ista í Heita pottinum. Svo sannar- lega er margt að gerast á íslands- djassinum. Þó Djassdögum Ríkisútvarpsins sé lokið að sinni er margt framund- an. Á fimmtudagskvöld verða djass og blús á Hótel Borg. Þar leikur tríó Guðmundar Ingólfssonar og söngv- arar þrir taka lagið: Bubbi Morth- ens, Haukur Morthens og Megas. Þeir komu fram á djass- og blús- kvöldi í fyrra og var þá troðfullt út úr dyrum á Borginni. Ekki er ástæða til að ætla annað en svo verði einnig nú. Hinsegin blús nefnist skífa er var að koma út. Það er samnefnd hljóm- sveit sem leikur þar: Eyþór Gunn- arsson á píanó, Tómas R. Einarsson á bassa og Gunnlaugur Briem á trommur. Svo blása danski trompet- leikarinn Jens Winther og Rúnar okkar Georgsson í nokkrum ópus- um. í tilefni útgáfunnar bregður Jens Winther sér til íslands og blæs með þeim félögum í Iðnó á laugar- daginn klukkan tvö eftir hádegi. Það er líka að koma út skífa með lögum Jóns Múla Árnasonar og fyrir skömmu gaf Reynir Jónasson harmónikkuleikari út skífu er nefn- ALVÖRU STURTUKLEFAR Við höfum fengið nýja sendingu af ítölskum sturtuklefum og hurðum í ýmsum stærðum og gerðum. Hert öryggisghler í hvítlökkuðum ál- Hringbraut 120 sími 28600 Stórhöfða sími 671100 ramma. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.