Helgarpósturinn - 19.11.1987, Side 31

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Side 31
EFTIR GARÐAR SVERRISSON TÚLKUR HAMSUNS OG HITLERS SAGT FRÁ EMBÆTTISMANNINUM HOLMBOE SEM LÉST í REYKJAVÍK í FYRRASUMAR Frægur er sá viöburöur úr síöari heims- styrjöld þegar Knut Hamsun, hinn aldni norski rithöfundur, gekk til fundar viö Adolf Ilitler í Berghof, fjallasetri hans í bæversku ölpunum. Spennuþrunginn fundur þeirra varö sérstæöur fyrir þá sök aö túlkurinn Egil Holrnboe tök (Wenjulegan þátt í honum. Þessi háttsetti embættismaöur nasista kom í veg fyrir aö ýmsar athugasemdir Hamsuns næöu eyrum Hitlers. Þegar viöræöur komust á viökvæmt stig sveigöi hann þær út á aörar brautir. A viss- an hátt má segja aö lúgíl Holmboe liafi í senn veriö túlkur og fundarstjöri á hinum sögulega fundi Hitlers og Hamsuns eítirmiödaginn 26. júní 1943. I fyrrasumar lést í Keykjavík háaklraöur maöur, /:’g/7/ Fálkason aö nafni. Hann var vinfár og haföi sig lítt í frammi. Síöustu ár ævinnar var hann biísettur viö Háteigsveg í Keykjavík. Nafniö Egill Fálkason tök hann upp þegar hann fluttist til Islauds eftir stríö. Hans gamla nafn var l'.gil Holmboe. Á árum síöari heimsstyrjaldar var Egil Holinboe skrifstofustjöri í innanríkismála- ráöuneyti Quislings. I Noregi var liann mikils- metinn embættismaöur. Þegar Knut Hamsun hélt til fundar viö sjálfan foringjann sumariö 1943 var Holmboe látinn fylgja honum. Hamsun haföi þá um margra ára skeiö notiö gífurlegra vinsælda og viröingar í Þýskalandi. bæöi hjá almermingi og hinni nýju nasista- stjörn. Þjóöverjar sýndu hinum norska rithöfundi margvíslegan sóma og í þetta sinn var tekiö á móti honum eins og þjóöhöföingja. Hamsun og Holmboe voru komnir til Vínar þegar boö barst um aö Hitler myndi senda einkaflugvél sína til aö flytja þá á sinn fund. Auk skrifstofustjórans norska átti blaöafulltrúi Hitlers. l)r. Dietricli, aö vera skáldinu til leiösagnar. HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.