Helgarpósturinn - 19.11.1987, Page 36
ÞJÓÐLÍF ER KOMIÐ
SYKURMOLARNIR „ÞETTA ER SLYS," SEGIR BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR UM
VELGENGNI HLJÓMSVEITARINNAR. FENGU ÞAU VINNU? ÞJÓÐLÍF LEITAR UPPI
FYRRVERANDI ÞINGMENN. LEYNIST METSOLUBOKIN Í ÞJÓÐLÍFI? 16
SÍÐNA VEGLEG BÓKAKYNNING. UNGIR HEIMSPEKINGAR Á NÁMSKEIÐI í
REYKJAVÍK. ÍSLENDINGURINN ÓLAFUR INGÓLFSSON VERÐUR MEÐ SÆNSK-
UM VÍSINDALEIÐANGRI Á SUÐURSKAUTSLANDI í VETUR. BRETUM ER SAMA UM
KJARNORKUNA. ÁSGEIR FRIÐGEIRSSON í LUNDÚNUM. GRÆNINGJAR í
KREPPU ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON RÆÐIR VIÐ OTTO SCHILY, TALSMANN
GRÆNINGJA í ÞÝSKALANDI. ÞJÓÐLÍF FYRIR ÞÁ SEM VILJA FYLGJAST MEÐ!
Þ
ingmennska þykir með ein-
dæmum eftirsóknarvert starf og
leggur fólk oft mikið á sig til að ná
þeim áfanga. Stundum kemur það
þó fyrir að þingmenn sækjast ekki
eftir endurkjöri, en það þykir mörg-
um afar undarleg hegðun. Þess
vegna fara yfirleitt fram töluverðar
vangaveltur um raunverulega
ástæðu þess að þingmaður hættir,
því enginn trúir því að menn geti
gengið út af hinu háa Alþingi af fús-
um og frjálsum vilja.
Þetta gerði þó m.a. Garðar Sig-
urðsson, sem þar til í vor var þing-
maður Alþýðubandalagsins.
Garðar hefur fengist við ýmislegt
þessa síðustu mánuði, en nú er hann
kominn í þjónustu sjávarútvegs-
ráðuneytisins sem svokallaður
veiðaeftirlitsmaður. Fyrrum hátt-
virtur 4. þingmaður Suðurlands er
sem sagt orðinn ,,tittateljari“, eins
og sjómenn kalla eftirlitsmennina.
Það hlýtur að vera nokkur tilbreyt-
ing frá ólgusjó stjórnmálanna.. .
VINSÆLASTA OG ÓDÝRASTA VERSLUNARFERÐIN
TE
■.H
LOMEIMl
• / v.s v ^ n
I um 20 km fjarlægð frá Lúxem-
borg eru lúxushúsin í Hostenberg.
Þau standa á háum ás milli ánna
Saar og Mosel, skammt frá hinum
aldagamla vínyrkjubæ Saarburg,
með stórkostlegu útsýni til allra
átta. Um það bii 20 mínútna
akstur er til hinnar 2000 ára gömlu
borgar Trier, sem talin er elsta
borg í Evrópu. Trier er einnig ein
vinsælasta verslunarborg í Evr-
ópu og fjölda íslendinga að góðu
kunn. Margirfara þangað árlega í
FLUG - BILL OG LUXUSHUS
í HEILA VIKU.
innkaupaferðir. Ýmsir aðrir
áhugaverðir staðir eru í næsta
nágrenni, og má sem dæmi nefna
Moseldalinn, en þar er m.a. hinn
sérkennilegi og fagri bær Bern-
kastel. Um ána Mosel sigla fljóta-
bátar sem skemmtilegt er að fara
með í stuttar ferðir.
HOSTENBERG
Húsin í Hostenberg bjóða upp á
1. flokks þægindi, eru rúmgóð, hlý
og vistleg, og ekki má gleyma
hinu vinsamlega viðmóti starís-
fólks sem er boðið og búið til að
aðstoða og leiðbeina gestum á
allan hátt. í öllum húsunum er stór
stofa með arni og að sjálfsögðu
sjónvarpi og síma, borðstofa, eld-
húskrókur með öllu tilheyrandi,
tvö svefnherbergi og bað.
Einnig er hægt að fá hús sem að
auki eru með Saunabaði, Ijósal-
ömpum og heilsuræktarherbergi.,
FERÐABÆR
vill sérstaklega benda á einstak-
lega hagstætt verð á haust- og
vetrarferðum með dvöl í Hosten-
berg. Sem dæmi má nefna að
vikuferð fyrir 4 í húsi og bíl kostar
frá kr. 19.396.-.
MUNIÐ
FARSEÐLABANKANN
með ótal ferðatilboð um allan heim.
Beint tölvusamband við
hundruð erlendra ferða-
skrifstofa.
FERÐABÆR
HAFNARSTRÆTI 2
SÍMI 623020
THAILAND - KANARI - FLÓRÍDA - SKÍÐAFERÐIR
||
■ ann Gorbatsjoff er á allra
vörum um allan heim í tilefni af út-
gáfu nýju bókarinnar. Skv. áreiðan-
legum heimildum HP í London eru
vestrænar bissnissaðferðir hans
ekki einskorðaðar við bókaútgáf-
una. Þegar Thatcher, gegn öllum
líkum og þrátt fyrir hnignun heims-
veldis, hrörnun iðnaðar í norður-
hluta Bretlandseyja og gífurlegt at-
vinnuleysi tókst að ávinna sér völd-
in þriðja kjörtímabilið í röð, var KGB
falið að komast að leyndardómnum
bak við sigurgönguna. Þeir komust
að því, að í upphafi ferils síns hafði
Járnfrúin falið heimsþekktu auglýs-
ingafyrirtæki, Saatchi & Saatchi, að
hanna pólitíska ímynd sína með
þessum þekkilega árangri. Það er
nú opinbert leyndarmál í Lundúna-
borg, að fyrirtækinu hafi nú hlotn-
ast nýr skjólstæðingur, og ekki síður
háttsettur, og jafnvirði þyngdar
sinnar í rúblum. . .
IFjölmiðlar hafa gert sér tíðrætt
um að menn Ólafs Ragnars hafi
tapað kosningunni í framkvæmda-
stjórn flokksins vegna ótímabærrar
sigurvímu eftir formannskjörið og
timburmennirnir því ráðið úrslitum
í þessari mikilvægu kosningu. HP
hefur hins vegar áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því, að eftir formannskjör-
ið fóru fram samkomulagsumleitan-
ir um skipan framkv. stjórnarinnar.
Var þetta mjög með sama_ sniði og
tíðkast hjá sáttasemjara; Asmund-
ur Stefánsson og Svavar Gests-
son í öðru herberginu og Baldur
Óskarsson í hinu og gengið á milli
með tilboð. Þegar samningar höfðu
tekist var þeim handsalað af þessum
þremur mönnum. Ólafsmenn
hringdu þegar í sitt lið og skýrðu frá
samkomulaginu og báðu menn
virða það. Lið Sigríðar Stefáns-
dóttur hlýtur hins vegar að hafa
fengið önnur fyrirmæli, því að engir
timburmenn hefðu getað verið jafn-
samstilltir í atkvæðagreiðslu og
raun varð á. Taldi heimildarmaður-
inn, að þetta mál ætti eftir að draga
á eftir sér langan slóða. . .
l dómsmálaráðuneytinu eru
menn farnir að verða langþreyttir á
því að aðalfulltrúi borgarfógetans í
Reykjavík, Ólafur Sigurgeirsson,
skuli alfarið neita því að fram-
kvæma vörslusviptingar. Ólafur tók
þessa ákvörðun í kjölfar skrifa Helg-
arpóstsins um vörslusviptingar hans
síðastliðið sumar. Síðan þá hefur
embættið ekki vörslusvipt og nær
engin uppboð á lausafjármunum
verið í Reykjavík. Ergelsi ráðuneyt-
ismanna beinist ekki síður að Jóni
Skaptasyni borgarfógeta fyrir að
leyfa undirmanni sínum að taka það
upp hjá sér að leggja niður þennan
nauðsynlega lið svo menn geti knú-
ið á um að fá skuldir sínar greiddar.
Jón mun hafa beint öllum fyrir-
spurnum ráðuneytisins til Ólafs,
með þeim orðum að þetta væri al-
farið hans mál. Af þeim sökum hef-
ur embætti Jóns ekki framkvæmt
vörslusviptingar í hartnær fimm
mánuði. ..
tímaleysi
í umferðinni.
Þaö ert ýcí sem
situr undir stýri.
36 ICLGARPÓSTURINN