Helgarpósturinn - 19.11.1987, Qupperneq 37
Atvinnumenn í Pýskalandi
SNILLDARTAPf
ÁSGEIRS
Lárus og Atli komast ekki í lið sín
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með
fótbolta að þeim Ásgeiri Sigurvinssyni, Atla Eðvaldssyni
og Lárusi Guðmundssyni hefur ekki gengið sem best í
vestur-þýsku knattspyrnunni það sem af er þessu keppn-
istímabili. Að vísu hefur Ásgeir leikið mjög vel þegar
hann hefur getað leikið en hann hefur verið meiddur
lengi. Atli hefur ekki náð að festa sér sæti í byrjunarliði
Bayer Uerdingen og Lárus hefur sáralítið fengið að spila.
EFTIR BJARNA STEFÁN KONRÁÐSSON MYNDIR EINAR ÓLASON
Venjulega tekur það Ásgeir svolít-
inn tíma að komast í gott form en á
þessu keppnistimabili byrjaði hann
strax mjög vel og kórónaði sína frá-
bæru byrjun með þremur mörkum í
tveimur fyrstu leikjunum. Tvö þess-
ara marka skoraði hann gegn Bor-
ussia Mönchengladbach og verða
þau ógleymanleg þeim sem sáu.
Hreint stórkostleg mörk sem ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur fengu
til allrar hamingju að sjá. Ásgeir átti
svo hvern stórleikinn af öðrum og
menn höfðu á orði að svona vel
hefði hann ekki leikið síðan hann
varð Þýskalandsmeistari með liði
sínu Stuttgart árið 1984. Eðlilega
voru allir farnir að hlakka til að sjá
hann í landsleikjunum gegn Norð-
mönnum í september sl. Þá kom
áfallið. Hann meiddist í læri í leik
gegn Frankfurt í lok ágúst. Vöðva-
þræðir slitnuðu og ljóst varð að
hann gat ekki leikið með á móti
Noregi.
SIGGI KOMINN AFTUR
Áður en hann var orðinn nægi-
lega góður af meiðslunum var hann
látinn spila en varð að hætta eftir 15
mín. leik. í næsta leik tóku meiðslin
m.Æ
Lárus Guömundsson: Kemst ekki í ís-
lenska landsliöið nema vegna for-
falla. Kemst ekki í lið hjá Kaiserslaut-
ern og kemst þar af leiöandi ekki í
leikæfingu sem verður til þess aö
hann kemst ekki í liðið. Fastur í víta-
hring.
sig upp að nýju eftir baráttu um bolt-
ann við einn andstæðinginn. Nú var
útséð um að Ásgeir gæti verið með
íslenska landsliðinu á móti Rússum
í lok október.
Um síðustu helgi gat hann svo
loksins leikið aftur. Tímaritið „Kick-
er“ tilkynnti lesendum sínum þetta
með fyrirsögninni: „Siggi er kom-
inn aftur." Enda var eins gott að
hann var tilbúinn í slaginn aftur því
næsti leikur var á heimavelli við
erkifjendurna Bayern Múnchen og
leikirnir gegn Bayern eru alltaf
mestu stórleikir ársins í Stuttgart.
Geysilega áríðandi var fyrir liðið og
hinn nýja þjálfara þess, Hollending-
inn Arie Haan, að hafa leikstjórn-
anda sinn með í þessum mikilvæga
leik. Enda var ekki að sökum að
spyrja; Stuttgart rassskellti Bayern á
Neckar Stadion og sigraði 3—0 fyrir
framan 70 þúsund áhorfendur.
Ásgeir átti stórleik og var maður
vallarins að sögn Bjarna Fel. „Kick-
er“ staðfesti þetta og fór lofsamleg-
um orðum um okkar mann. Ekki er
þó síður mikilvægt að hann kom
heill frá leiknum, reyndar varð að
gefa honum nokkrar sprautur við
bakeymslum fyrir leik, en nú er
ætlað Atla sæti í aðalliðinu þegar
hann stillti upp liði sínu fyrir tíma-
bilið. Má m.a. merkja það af því að
nú voru komnir nýir menn á miðj-
una hjá Uerdingen en þar hefur Atli
leikið undanfarið. Þar má t.d. nefna
sænska landsliðsmanninn Robert
Prytz, sem er geysisterkur leikmað-
ur. Atli átti því við ramman reip að
draga.
En allir vita að hann gefst ekki
upp þótt á móti blási og hann er ör-
ugglega ekki búinn að segja sitt síð-
asta orð í Þýskalandi. Það hefur
hann ekki heldur gert með íslenska
landsliðinu. Hann var fyrirliði þess í
leikjunum í haust og var einn af okk-
ar albestu mönnum að hinum ólöst-
uðum. Hann var sem klettur í vörn-
inni og hin mikla reynsla hans kom
að góðum notum og hjálpaði þeim
yngri. Einnig var hann hættulegur
þegar hann sótti fram á völlinn og
það var einmitt hann sem skoraði
sigurmarkið á móti Norðmönnum í
Osló á dögunum.
LÁRUS SELDUR
Lárus Guðmundsson hjá Kaiser-
slautern hefur verið mest í fréttum af
þessum þremur að undanförnu.
Kemur það ekki til af góðu. Hjá liði
hans virðist flest vera í upplausn og
nýlega var hinn ungi þjálfari félags-
ins, Hannes Bongarts, rekinn frá
störfum. Hann náði mjög góðum
árangri með lið sitt í fyrra, aðeins
munaði hársbreidd að hann kæmi
því í Evrópukeppni félagsliða, en nú
gengur allt á afturfótunum þrátt fyr-
ir svo til sama mannskap og á síð-
asta tímabili. Þegar svo er málum
komið er það oftast þjálfarinn sem
er látinn taka pokann sinn.
Undir svona kringumstæðum,:':;:;
Atli Eðvaldsson: Þessi fyrrum markakóngur f Bundesligunni kemst ekki í liðið hjá Uerdingen. Stendur
samt alltaf fyrir sínu í landsleikjum og leggur sig allan fram.
bara að vona að hann nái sér að
fullu af meiðslunum og sleppi við
slíkt í framtíðinni.
ATLI UTAN VALLAR
Atli Eðvaldsson hjá Bayer Uerd-
ingen hefur lítið fengið að spila
það sem af er þessu keppnistímabili.
Miklar breytingar urðu hjá liðinu í
sumar. Nýir menn voru keyptir og
nýr þjálfari var ráðinn. Sá er enginn
annar en Horst Köppel en hann
hafði verið aðstoðarþjálfari hjá
þýska landsliðinu í nokkur ár við
góðan orðstír og er mjög virtur sem
þjálfari. Áður var hann þekktur
knattspyrnumaður í Þýskalandi og
lék með landsliðinu á sínum tíma.
Svo virðist sem Köppel hafi ekki
geta leikmenn sjaldnast sýnt sitt
rétta andlit og Lárus er engin und-
antekning þar á. Það er meira að
segja svo slæmt að hann hefur varla
fengið að sýna neitt en í stað þess
hefur hann vermt varamannabekk-
inn lengst af. Ómögulegt er að segja
hvert framhaldið hjá Kaiserslautern
verður en víst er að nokkur tími
mun líða þar til ró og friður verða
komin á innan félagsins. Þangað til
verðum við að bíða og sjá hvað
verður um Lárus. Hugsanlegt er að
hann verði seldur frá félaginu en
óskandi er að svo verði ekki, heldur
að hann hljóti náð fyrir augum nýs
þjálfara, að hann nái að vinna sér
fast sæti í liðinu og fái að sýna hvað
í honum býr.
HELGARPÓSTURINN 37