Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 39
FRETTAPOSTUR
• Garri Kasparov, núverandi heimsmeistari í skák, keppir
á íslandi í október á næsta ári. Þá fer fram annað heimsbik-
armótið í skák, sem Stöð 2 stendur fyrir ásamt fleiri aðilum.
• Langt er liðið síðan jafnmargir áhorfendur hafa verið á
handboltaleik og þeim, sem háður var á miðvikudagskvöld-
ið í síðustu viku. Þar fór fram leikur Víkings og FH og voru
áhorfendur rúmlega 2.000 talsins.
• Það var bjartsýnt fólkið sem lagði leið sína á sorphauga
borgarinnar á miðvikudagskvöld í siðustu viku. Heil fjöl-
skylda var þar samankomin með vasaljós og leitaði dauða-
leit að einhverju. Starfsmenn öryggisgæslunnar Securitas
sáu ljósið og könnuðu hvað var um að vera. í ljós kom að
100.000 krónur sem f jölskyldan átti höfðu óvart lent í rusla-
tunnunni, sem síðan hafði verið tæmd daginn eftir. Fólkið
var ekki á því að sætta sig við að peningarnir væru með öllu
horfnir, lagði leið sína á haugana og fann þar 80.000 krón-
ur af hundrað þúsundunum!
• Öflug sprenging varð í spennustöð við Iðnskólann í
Reykjavík á fimmtudag í síðustu viku. Rammgerð hurð á
spennistöðinni þeyttist út og endaði úti á stétt. Enginn var
staddur nálægt stöðinni þegar sprengingin varð.
• Ný fríhafnarverslun fyrir komufarþega var opnuð í flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á laugardaginn. Verslunin er á neðri
hæð byggingarinnar og er um 400 fermetrar að stærð.
Bráðabirgðaverslunin á efri hæðinni var hins vegar 130 fer-
metrar.
• Um 300 þúsund króna hagnaður varð af rekstri Arnar-
flugs fyrstu níu mánuði ársins. Á síðasta ári nam tap félags-
ins 170 milljónum. Aukning farþega í millilandaflugi var
20% á fyrstu níu mánuðum þessa árs, eða alls rúmlega
34.000 farþegar.
• Tveir menn björguðust á giftusamlegan hátt þegar lítil
eins hreyfils flugvél nauðlenti skammt vestan flugvallarins
á Selfossi á föstudag. Eldur kom upp í vélinni skömmu eftir
flugtak og hún fylltist af reyk. Flugmanninum og farþega
hans tókst að komast út úr vélinni áður en illa fór og slösuð-
ust báðir lítið miðað við aðstæður.
• Á ráðstefnu Byggðastofnunar og Sambands íslenskra
samvinnufélaga, sem haldin var á Selfossi í síðustu viku,
kom m.a. fram í ræðu Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra
að víðast í hinum vestrænu ríkjum er nú unnið að því að losa
eignir ríkisins í atvinnufyrirtækjum og bönkum. Sagði for-
sætisráðherra eðlilegt að slíkar umbætur tengdust á einn
eða annan hátt hagsmunum almennings. Þorsteinn varpaði
fram þeirri hugmynd til umhugsunar, að andvirði af sölu
opinberra fyrirtækja eða stofnana yrði hagnýtt til að efla og
auka fjölbreytni atvinnulífsins um land allt.
• Ákveðið hefur verið að bæta við 400 nýjum bílastæðum í
Kringlunni._ Verða þau upp á þrjár hæðir.
• Framlag íslands til bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs 1988 verða bækur Steinunnar Sigurðardóttur, Tíma-
þjófurinn, og Thors Vilhjálmssonar, Grámosinn glóir. Dóm-
nefnd kemur saman í Færeyjum 26. janúar nk. og ákveður
hver hlýtur verðlaunin.
• „Tjörnin lifir“ eru samtök sem berjast gegn byggingu ráð-
húss við tjörnina. Á sunnudaginn héldu samtökin útifund
til að mótmæla fyrirhugaðri byggingu ráðhúss og var fund-
urinn afar vel sóttur að sögn Flosa Ólafssonar fundarstjóra.
Kvaðst Flosi einkum ánægður með hversu vel gamalgrónir
Reykvíkingar hefðu sótt fundinn.
• Á mánudaginn komst upp um smygl á 10,7 kílóum af
hassi til landsins. Tveir karlmenn, 44 og 39 ára, og kona, 30
ára, voru handtekin og gerð krafa um að þau sitji í gæslu-
varðhaldi næstu vikurnar. Hassið kom til landsins með
skipi og var skráð á tollskýrslum að um málningu væri að
ræða.
• Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur leitað eftir að-
stoð borgarráðs við að framfylgja lagaákvæðum um íslensk
heiti á fyrirtækjum í borginni. Davíð Oddsson borgarstjóri
segist sammála Jóni Sigurðssyni og kveður borgarráð hafa
óskað eftir þvi við Hjörleif Kvaran, framkvæmdastjóra lög-
fræði- og stjórnsýslunefndar, að kannaðar verði þær heim-
ildir sem byggingarnefnd hefur til að hafa afskipti af málum
sem ráðherra leggur til.
• Mikil reiði ríkir nú hjá smábátaeigendum um land allt
vegna þeirrar tillögu sjávarútvegsráðherra að setja kvóta á
báta undir 10 tonnum. Á fjölmennum fundi smábátaeig-
enda á Norðurlandi, sem haldinn var á Akureyri um helg-
ina, var kvótakerfi á smábáta harðlega mótmælt og því lýst
sem háskalegri aðför að lífskjörum smábátaeigenda og at-
vinnulífi víða á landsbyggðinni.
• Liðsmenn hljómsveitarinnar Stuðmanna hafa ákveðið að
spila ekki saman á næstunni og er hljóðver þeirra til sölu.
Flestir hljómsveitarmeðlimanna munu þó starfa áfram á
tónlistarsviðinu.
Afmæli:
Finnur Jónsson listmálari varð 95 ára sunnudaginn 15.
nóvember.
Tökum hunda í gœslu til lengri
eða skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags íslands og
Hundaræktarfélags fslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
y LJÓSASKOÐUN 'l
SKAMMDEGIÐ
FER í HÖND.
Viö aukum öryggi i umferöinni meö
þvi aö nota okuljosin allan
sólarhringinn. rétf stillt og i góöu lagi
Ljósaperur geta aflagast á skömmum tíma.
og Ijósaperurdofna smám saman við notkun
Þannig getur Ijósmagn þeirra rýrnað um
allt að þvi helming.
|JUfjtFERÐAR
y
BON- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÖS
veitir eftirtalda þjónustu:
tjöruþvott djúphreinsun teppa og
sœta, mótorþvott. Mössum lökk, '
bónum og límum ö rendur.
Opiö virka daga kl. 8—19.
Opiö laugardaga kl.
10-16.
Bón- og þvottastöðin Ös, Langholtsvegi 109 Sími 688177
Meðan takmarkað upplag endist
verður bók þessi
send þér
ÓKEYPIS
Aðeins að fylla
út og senda þessa
úrklippu strax
í pósti
Utanáskrift:
Loftur Jónsson
Pósthólf 7124
Reykjavík
Vinsamlega sendið mér auglýsta bók án kostnaðar
Nafn: Sími:
Heimilisfang: Póstnf. staður:
Ath. Tilboð þetta miðast við takmarkað upplag:
HELGARPÓSTURINN 39