Helgarpósturinn - 19.11.1987, Page 40

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Page 40
F I orstööumaður dagskrárdeildar sjónvarpsins, Hrafn Gunnlaugs- son, rak í vikunni Sonju B. Jóns- dóttur úr starfi sem umsjónarmann þáttanna Manns vikunnar. Sonja var umsjónarmaður þessara þátta í afleysingum fyrir Sigrúnu Stefáns- dóttur og átti enn eftir að gera nokkra þætti. Ástæða brottvikning- arinnar var sú að Sonja hafði ætlað að ræða við sr. Auði Eir og dætur hennar tvær sem báðar eru prestar. Hrafn heimtaði hins vegar að Maður vikunnar yrði Margrét Harðar- dóttir, sem er arkitekt hins um- deilda ráðhúss sem fyrirhugað er að reisa í Tjörninni. Margrét er dóttir Harðar Vilhjálmssonar, fjármála- stjóra RUV. Sonja taldi það hins veg- ar ekki við hæfi á þessari stundu, og sagði Hrafni að hún teldi að þar með væri sjónvarpinu misbeitt í pólitísk- um tilgangi. Hrafn viðhafði þá eng- ar frekari málalengingar og rak Sonju á stundinni. . . |k| ■ Wlýverið fóru fjórir menn fyr- ir hönd Islenskrar getspár til Van- couver í Kanada í þeim tilgangi að gerast aðilar að alþjóðasamtökum í happdrættisbissnessnum, lntertoto, um leið og setin var ráðstefna og skoðuð sýning um lottó og íþrótta- getraunir. Með þessari aðild að al- þjóðasamtökunum ætlar íslensk getspá að auðvelda sér að fylgjast með nýjungum á sviði happdrætta, en þar til fyrir skömmu var Island eina landið í Evrópu sem var með beinlínukerfi í lottóinu. Ferð þessi var greidd af fyrirtækinu enda telja lottómenn að aðild að Intertoto sé þeim bráðnauðsynleg. . . Góða helgi! Þú átt ■ þaö skiliö SSv\ ZZAHl'SIB Grensásvegi 10, 108 R. S: 39933 s ^^Wumir fjölmiðlar eiga vart orð til að lýsa hneykslan sinni á óförum Ríkisútvarpsins í ,,Stefáns Jó- hanns-málinu" svokallaða, enda þótt fréttastofan hafi þarna lent í máli sem allir fjölmiðlar hafa lent í og geta lent í. En þeir eru fleiri en fjölmiðlarisarnir sem hyggjast taka málið upp. Samkvæmt heimildum HP ætla þeir Eiður Guðnason og Guðmundur H. Garðarsson að taka málið upp í útvarpsráði, enda munu báðir vera saltvondir vegna fréttaflutningsins. . . |k| I ú er karpað sem fyrr um kvótann og halli er á fiskvinnslunni. Saltfiskverkendur landsins virðast þó áhyggjulausir. Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda und- irbjó ferð eina allmikla til Brasilíu, sem nú stendur sem hæst. Alls 120 manna hópur saltfiskverkenda og maka þeirra er nú ,,að sýna sig og sjá aðra“ í Brasilíu og notar auðvitað tækifærið til að fá þarlenda til að kaupa meiri saltfisk héðan. Ferðin er á kostnað ferðalanganna sjálfra, en til mikils er að vinna því á fyrstu 9 mánuðum þessa árs keyptu Brasii- íumenn af okkur aðeins 137 tonn af þurrkuðum saltfiski fyrir vesælar 26 milljónir króna. Hálf sú upphæð hverfur í ferðina miðað við hóflega áætlaðar 100.000 krónur á mann! Þess má geta að Alli ríki á Eskifirði afþakkaði að slást í hópinn. . . s kunnugt er hefur Frost- film verið að vinna að kvikmynd- inni Foxtrott og sem stendur er myndin í klippingu í Noregi. Eftir því sem heimildir HP herma hefur þeim sem vinna að klippingu mynd- arinnar ytra líkað myndin ákaflega vel, svo vel að fyrirtækið, sem heitir Filmeffect, hefur ákveðið að leggja miklu meiri áherslu á vinnslu mynd- arinnar en fyrirhugað var. Annar þeirra sem vinna að kiippingu myndarinnar er Bretinn Russel Lloyd, en hann hefur m.a. unnið sér það til frægðar að klippa margar af myndum hins kunna Johns Hus- ton, sem reyndar er nýlátinn. Auk þess hefur Lloyd þessi klippt stór- myndirnar Önnu Karenínu og Moby Dick þannig að Foxtrottið þeirra Frost-filmmanna ætti að vera í góðum höndum. M ■ W Wargir undrast þa kyrrð sem ríkir í Alþýðubandalaginu eftir að skipt var þar um forystu- menn. Skýringin gæti verið sú að formaður flokksins, Ólafur Ragn- ar Grímsson, brá sér til Bangkok í Thailandi strax að landsfundi lokn- um. Hefur HP fregnað að stuðnings- menn, en umfram allt andstæðing- ar, Ólafs Ragnars séu undrandi á tímasetningu utanfararinnar. . . Frá því að Victor VPC kom á markaðinn hefur hún verið mest selda einmenningstölvan á ísl- andi. Á tímabilinu frá ágúst 1986 til ágúst 1987 hafa hátt á þriðja þúsund Victor tölvur verið teknar í notkun hér á landi. Það segir meira en flest orð um vinsældir, ágæti og fjölhæfni Victor tölvanna. Snaggaraleg einmennings- Victor VPCIII er nýjasta einmenningstölvan í Victor fjölskyldunni. Hún er AT samhæfð og hentar því vel fyrirtækjum og stofnun- um. VPC III er með byltingarkenndri nýjung sem felur í sér möguleika á 30 mb færanlegum viðbótardiski, svokölluðum ADD-PACK, sem smellt er í tölvuna með einu handtaki. Sér- lega hagkvæmt við afritatöku og þegar færa þarf upplýsingar á milli tölva, s.s. fyrir endurskoðendur o.þ.h. Einnig fáanleg með 60 mb hörðum diski (samtals 90 mb með ADD-PACK). - nú fáanleg med byttingar- kenndri nýpgig! Victor tölvurnar eru nú í notkun í öll- um greinum atvinnulífsins og reynast einstaklega vel við erfiðar aðstæður. Helstu ástæður vinsældanna eru án efa afkastageta, stærra vinnslu- og geymsluminni, falleg hönnun, hag- stætt verð og síðast en ekki síst góð þjónusta. Bilanatíðnin er einhver sú lægsta sem þekkist, þrátt fyrir að Victor haf i rutt brautina með fjölmarg- ar nýjungar. Og nú fylgir MS-Windows Write & Paint forritið öllum Victor tölvum sem eru með harðan disk. Þrjár gerðir Victor einmenningstölva eru nú fáanlegar: Victor VPC Ile, Victor V 286 og Victor VPCIII. Victor þjónar stofnunum og fyrirtækj- um í iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði, verslun, þjónustu sem og mennta- stofnunum, námsmönnum og ein- staklingum. Victor getur örugglega orðið þér að liði líka. Athugaðu málið og kynntu þér Victor örlítið betur - þú verður ekki svikinn af því! EinarJ. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33 40 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.