Helgarpósturinn - 25.02.1988, Síða 2
Eruð þið orðin
„antík"?
Þór Magnússon
þjóðminjavöröur
„Nei, við erum nú alltaf að reyna að yngja upp hugsunar-
háttinn hjá okkur og gæta þess að einblína ekki bara á það
sem elst er heldur horfa líka nær okkur í tímanum."
Finnst þér aðsóknin að safninu nógu góð?
„Nei, hún er nú ekki nógu góð. Það kemur m.a. til af því að
safnið hefur verið opið mjög stutt á degi hverjum og ekki
nema annan hvern dag á sumrin. Nú í vor ætlum við að
lengja opnunartímann og vonumst til að það verði til þess
að fleiri komi hingað, en það er eins með menningarstofn-
anir og aðrar stofnanir, þær verða að auglýsa sig til að fá at-
hygli."
Er ekki eðiilegt, nú þegar heimurinn er að minnka og
einkenni þjóða að mást út, að efla Þjóðminjasafnið?
„Jú og ekki bara Þjóðminjasafnið heldur öll menningar-
söguleg og náttú rufræðileg söfn, enda er það alls staðar að
gerast í heiminum. Það er liður í aukinni almennri menntun
að efla söfnin."
Finnst þér fjárveitingarvaldið hafa skilning á þessu?
„Það virðast nú allir hafa skilning á þessu, en siðan þegar
á að fara að reiða fram peningana sem þarf til að reka svona
stofnun verður minna um úrræði."
Safnið hefur undanfarið veriö að safna fyrir klukku.
Hvernig gengur söfnunin?
„Hún gengur vel. Það kemur hingað fólk á hverjum degi til
að leggja í söfnunina. Ég átti nú ekki von á því að söfnunin
hæfist fyrir alvöru fyrren klukkan væri komin, en hún kem-
ur í næstu viku. Nú þegar hafa safnast um hundrað þúsund
krónur."
Hvað þótti þér um þau ummæli menntamálaráðherra
að hann vildi ekki að ríkið spillti fyrir almennum sam-
skotum með því að kaupa klukkuna?
„Það var ekki farið fram á fjárveitingu úr ríkissjóði. Það stóð
ekki til að láta ríkið borga heldur að sjá hvort þjóðin vildi
ekki sjálf kaupa þetta. Við erum nú að biðja um ýmislegt úr
ríkissjóði, bæði aukafjárveitingar og annað, og ég þóttist
viss um að það væri torsótt að sækja andvirði klukkunnar
í ríkissjóð."
Heldur þú að gallabuxnasýningin í anddyri safnsins
laði fólk að?
„Það hygg ég. Hún er nýstárleg og þar er fitjað upp á nýj-
ung sem fólk á ekki von á að þjóðminjasafn sinni, en víða
erlendis eru menn farnir að gera samtímaminjum skil.
Þetta er farandsýning sem við fáum að láni um skamman
tíma og okkur þótti ástæða til að hrista svolítið upp í huga
fólks að þessu leyti."
Er þá rokksýning næst?
„Ég veit það ekki. Það er ekki búið að leggja neinar línur um
það."
Breytir þaö miklu að Listasafnið er flutt af efstu hæð-
inni hjá ykkur?
„Það mun gera það. Það er stefnt að því að endurskipu-
leggja allt safnið, en það hefur verið óbreytt í 35 ár og er
orðið svolítið gamaldags."
Er safnið góður vitnisburður íslenskrar sögu og menn-
ingar?
„Þetta er mjög gott safn á mörgum sviðum,Ul. hwaö srvert-
i r g a m I a r í s I e n ska r han diðnir &s. iút skiawSrogivefnaíð, og eins
er gott safn af kirkjugripum. Entþað erui llkateyóurá ýtrtsum
sviðum."
Hvernig stendur safnið varðandi skrárnngu v/mtíma-
sögu og samtímaminja?
„Ég verð að viðurkenna að lítið hefur verið gert í þeim efn-
um. Við höfum þó reynt að varðveita ýmislegt sem snertir
tækniöld. Vegna þess hve framleiðslan er ör í nútímanum
er erfitt að velja og hafna í þeim efnum."
I gær, miðvikudaginn 24. febrúar, varð Þjóðminjasafnið 125 ára. HP
ræddi við Þór Magnússon þjóðminjavörð á þessum tímamótum.
FYRST OG FREMST
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ er að
eignast níu hundruð ára gamla
Islandsklukku sem föl er á Eng-
landi fyrir 650.000 krónur. Aura-
ráð þjóðarsafnsins eru hins vegar
ekki meiri en svo að efna þarf til
sérstakra samskota vegna málsins.
Safnið þarf að leita beint til þjóð-
arinnar þegar mál sem þetta
kemur upp og ekki er ráð fyrir
gert í árlegri fjárveitingu. Óvæntar
fornleifar mega því alls ekki
dúkka upp nema eftir fyrirfram
ákveðnu ferli. Manni verður spurn
hvort hástemmdar yfirlýsingar um
menningarlegar skyldur og hlut-
verk Þjóðminjasafns séu meira en
orð á blaði. Svo er um fleiri geira
menningarlífs. Þegar síðast fréttist
hafði tæpur tíundi hluti upphæð-
arinnar safnast, eða rétt um
50.000 krónur. Mikið vantar því
enn...
ÞAÐ hefur.varla farið fram hjá
neinum að launum er misskipt í
þessu þjóðfélagi. Enda mun ekki
ein einasta eiginkona verkamanns
hafa litið inn á tískusýningu frá
Sævari Karli sem haldin var á
Hótel Sögu um síðustu helgi. Að
sögn var verð á fatnaði þar svim-
andi hátt og dæmi sem okkur var
nefnt var um verð á peysu, 37.000
krónur. Stór hópur gestanna mun
hafa verið eiginkonur lækna...
LOGIN úr söngleiknum Síldin er
komin, sem Leikfélag Reykjavíkur
sýnir um þessar mundir í Skemm-
unni, munu vera væntanleg á
hljómplötu sem út á að koma í
nœstu viku. Geta menn nú brátt
sungið hástöfum dónalegasta text-
ann í þessu nærri þriggja tíma
verki, „ungur og graður..." eða
hvernig sem þetta nú annars er!
REYKJAVIKURFARSINN
Ráöhús í Reykjavík er eitthvert
vinsælasta umræðuefni manna á
meðal. Sumt sem tínt hefur verið
til er bráðskemmtilegt, en einna
bestu hugmyndina gefur að líta í
Tímanum í gær. Þar skrifar Oddur
Olafsson kostulega grein og
kemur með tillögur að því sem
betur má fara í byggingunni.
Greininni fylgir teikning Sigurdar
Sigurdssonar, bráðskemmtileg
hugmynd Odds útfærð. í greininni
segir Oddur meðal annars:
,,Æskilegt vœri aö nota timbur í
stad steinsteypu í húsiö, en aöal-
atriöiö er að þaö veröi klœtt báru-
járni, sem gefur því þjóölegan og
menningarlegan svip. Auka má
reisn byggingarinnar meö
nokkrum reykvískum kvistum, eins
og þeim sem nú eru orðnir höfuð-
prýöi Bjarnarborgar. Vindskeiðar í
burstabœjarstí! ásamt kross-
gluggum með blúndugardínum
munu undirstrika heildarsvipinn
og minna á þá daga þegar hún
amma var ung. Þegar ráðhúsið er
risið úr timbri og með bárujárni
munu endurnar ekki fatta að líf-
ríkinu stendur ógn af því og hóp-
ast að því eins og Iðnó og Bún-
aðarfélagshúsinu og hornsílin una
glöð við sitt í leðjunni á botni
Tjarnarinnar."
EINS og fólk eflaust veit er mikill
hamagangur í öskjunni bak við
svið þegar tískusýningar fara fram.
Sýningarstúlkur verða að skipta
um fatnað á mettíma og tekst
oftast vel upp. Hins vegar bar svo
við fyrir skömmu að á tískusýn-
ingu einni gleymdi ein sýningar-
stúlkan að skipta um skó á báðum
fótum. Mætti hún inn á sviðið í
bláum og brúnum kjól, öðrum
skónum bláum og hinum brúnum.
Ahorfendur gerðu enga athuga-
semd og trúðu því greinilega að
þetta væri nýjasta skótískan. Að
minnsta kosti var afgreiðslustúlkan
í þeirri versiun sem sýndi spurð
daginn eftir sýninguna hvort „bláu
og brúnu" skórnir væru ekki
komnir í verslunina...
UT er komið nýjasta tölublaðið af
tímaritinu Nýju lífi. Eins og í fyrra
tekur starfsfólk fyrirtækisins það
að sér að dæma um best og verst
klœdda fólk þjóðarinnar. Umsjón-
armaður greinarinnar er titlaður
1Æ
íOHl'
s^htnt uð
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Ullarvörur „Þeir tala mest sem eru á móti bjórnum og oft af litlu viti og miklum fordómum."
Landsins hag það eflaust mundi efla ef ég fengi í Moskvu að selja trefla. GUÐRÚN HELGADÓTTIR ALÞINGISMAÐUR
En ef þann kost ég hefði að hafna og velja helst ég vildi föðurlandið selja. 1 UMRÆÐUM UM BJÓRFRUMVARPIÐ.
NIÐRI
2 HELGARPÓSTURINN