Helgarpósturinn - 25.02.1988, Blaðsíða 29
A
Egilsstöðum henda menn
gaman að mannaráðningum hjá
Pósti og síma á staðnum. Hafa
menn sett upp eftirfarandi spurn-
ingaleik með meðfylgjandi svörum:
Hver er umdæmisstjóri Pósts og
síma á Egilsstöðum. Svar: Reynir
Sigurþórsson. Hver er fulltrúi
umdæmisstjóra á Egilsstöðum?
Svar: Eiginkona Reynis umdæmis-
stjóra. Hver er stöðvarstjóri Pósts og
síma á Egilsstöðum? Svar: Þór
Reynisson, sonur umdæmisstjóra.
Hver er fulltrúi stöðvarstjóra á Egils-
stöðum? Svar: Kona Þórs og tengda-
dóttir Reynis umdæmisstjóra og full-
trúa umdæmisstjóra. Sannkallað
fjölskylduveldi sem þarna hefur
verið byggt upp. . .
Frá því var greint hér í Helgar-
póstinum að tónlistardeild RÚV
hefði orðið að hætta rekstri Stór-
sveitarinnar vegna fjárhagsörðug-
leika. Nú heyrast hins vegar þær
fréttir að starfsmönnum deildarinn-
ar hafi tekist að öngla saman nægi-
legu fé þannig að sveitin getur starf-
að a.m.k. í tvo mánuði á þessu ári.
Að auki hefur HP hlerað að til standi
að fá einkaaðila til að styrkja rekst-
ur sveitarinnr og standa starfsmenn
tónlistardeildarinnar í bréfaskrift-
um um þessar mundir, þar sem leit-
að er eftir stuðningi fyrirtækja og
einstaklinga svo hægt verði að
standa straum af kostnaði við sveit-
ina. Þetta mun vera fyrsta tilraun
sinnar tegundar innan stofnunar-
innar...
u
mferðarlögin nýju taka
sem kunnugt er gildi 1. mars og er
mörg nýmæli að f inna í þessum ítar-
lega 118 greina lagabálki. Höfundar
laganna hafa greinilega vandað
mjög til verka, en á hinn bóginn
vekur verðskuldaða athygli hversu
oft er vísað á dómsmálaráðherra
um nánari fyrirmæli í reglugerðum
og öðru slíku. Þannig er alls 27 sinn-
um að finna setningarnar „dóms-
málaráðherra setur..." og 26 sinnum
að ráðherrann „geti sett“ reglur.
Alls 16 sinnum segir ráðherrann
„ákveður" eða „getur ákveðið" hitt
og þetta og 10 sinnum er honum
gert að „skipa" eitthvað eða að
hann geti Ieyft, fyrirskipað eða und-
anþágur...
Þ
ingmenn Vestfjarðakjör-
dæmis héldu í síðustu viku fund
vestra með forsvarsmönnum í fisk-
iðnaði vegna bágrar fjárhagsstöðu í
greininni. Virtust þeir síðarnefndu
hafa gert ráð fyrir gengisfellingu
þegar „hlutaskiptasamningarn-
ir“ voru samþykktir ekki alls fyrir
löngu, jafnvel gengisfellingu upp á á
annan tug prósentustiga. Munu
þessar tilbúnu forsendur forráða-
mannanna hafa farið heldur fyrir
brjóstið á þingmönnunum, m.a.
Matthiasi Bjarnasyni og Sighvati
Björgvinssyni. Forráðamennirnir,
sem höfðu jafnvel í huga að hóta að
stöðva húsin, ef ekki kæmi til um-
talsverð gengislækkun, hafa nú
dregið eitthvað í land og búast við
„leiðréttingu gengis krónunnar" og
hliðarráðstöfunum. Það er ágætt að
semja upp á gengisfellingu, eða
hvað. . .
Nýr metsöliM með
fimm ára ábyigð.
Hyundai (borið fram hondæ) er í dag einn
mest vaxandi bílaíf amleiðandi heims og sel-
ur nú bíla í 65 þjóðlöndum. Hyundai Excel
heíur verið mest seldi innflutti bíllinn, bæði
í Bandaríkjunum og Kanada, síðustu 18 mán-
uði.*
Þennan árangur má þakka þeirri einföldu
staðreynd að Hyundai er rétt byggður og
rétt verðlagður.
Hyundai Excel er fyrsti bíllinn á íslenskum
markaði með 5 ára ábyrgð**. Hann er gerð-
ur til að endast, viðhaldið er í lágmarki og
þú getur verið áhyggjulaus í 5 ár.
Excel er sterkbyggður og hannaður til að
þola rysjótt veðurfar og misgóða vegi. Einnig
heíur verið séð til þess að bílarnir séu
aðlagaðir viðkomandi markaði, t.d. eru allir
bílarnir sem seldir eru hér á landi búnir
styrktu rafkerfi og með sérstakri ryðvörn.
Excel er með framhjóladrifi og sjálfstæðri
fjöðrun á hverju hjóli, 1,5 lítra kraftmikilli
vél og hægt er að velja um 4 eða 5 gíra bein-
skiptingu eða 3 stiga sjálfskiptingu. Öryggi
farþeganna gleymist heldur ekki. Hyundai
Excel er með styrktarbitum í hurðum og
öryggisstuðurum.
Hyundai Excel kostar frá 428 þúsund
krónum og er betur búinn en gengur og ger-
ist með bíla í sama flokki. Excel er bíll fyrir
skynsamt fólk sem vill eiga vel hannaðan,
öruggan og endingargóðan bíl, án þess að
þurfa að kosta allt of miklu til.
‘Wards Automativc Repons
' Kynnið ykkur ábyrgðarskilmála Iscan hf.
HYunoni
í Framtíð við Skeifuna. Sími 685100.
BÍLBELH ERU SKYNSAMLEG.
Gód f erð — Örugg ferð — Odýr f erð
H
1
‘Ueriól§ur
VESTMANNAEYJUM
SÍMI 98-1792 & 1433
REYKJAVÍK SÍMI 91-686464
—FERJA FYRIR ÞIG
HELGARPÓSTURINN 17