Helgarpósturinn - 25.02.1988, Síða 30

Helgarpósturinn - 25.02.1988, Síða 30
PEWIWGAR & MARKAÐUR KREPPA Á ÍSLAWDI ER Kreppur á íslandi eru með einkennilegustu fyrirbær- um á jarðríki. Á sama tíma og sultur og seyra eru hlut- skipti þorra fólks — ef trúa á fjölmiðlum — vex bílainn- flutningur jafnt og þétt, sólarlandaferðir og aðrar utan- farir eru svo almennar, að segja má að aðeins séu það börn, gamalmenni og unglingar, sem halda uppi aðalat- vinnuvegum þjóðarinnar í landi yfir sumartímann, myndlyklaeign vex hér þrisvar sinnum hraðar en gerst hefur í öðrum löndum, farsíminn breiðist út eins og eldur í sinu, og sprengir kerfið örar en Póstur og sími hefur við að flytja inn stöðvar, nýir skemmtistaðir þjóta upp, og þótt þeir séu stærri en annars staðar á Norðurlöndum ná þeir þó ekki að þurrka upp biðraðirnar, sem við þá mynd- ast um hverja helgi. Var ekki komin kreppa fyrir jól? Ekkert virtist það draga úr jólakaup- sýslunni. Tísku- og lúxusvörubúðir 18 HELGARPÓSTURINN skjóta upp kollinum eins og gorkúl- ur og eru á hverju strái. Dansskólar og fyrirsætuskólar fyllast hverja önn og geta ekki annað eftirspurn. Einkaskólar, tölvuskólar og -nám- skeið, sjálfstraustsskólar, vaxtar- ræktarstofnanir, hugleiðinga- og jóganámskeið, öldungadeildir og námsflokkar virðast ekki vera í neinum vandræðum með að draga að sér nemendur og það eins þótt námsgjöld séu veruleg og oft óvíst um gagn eða starfsfrömun. Samt linnir ekki tali um svívirðilega vinnuþrælkun, óhóflega yfirvinnu, fólk í tveimur og þremur störfum samtímis til að sjá sér farborða. Var það ekki í síðustu kreppu, sem forsætisráðherrann gaf sína frægu uppskrift að grjónagraut á sama tíma og þutu upp matsölustaðir um þvera og endilanga Reykjavíkur- borg og alla stærri kaupstaði lands- ins, líklega til að skapa mönnum huggulegt athvarf til að ræða hung- ur náungans yfir Ijúffengum máls- verði og tilheyrandi eðalvíni? Pað heyrist talað um einhvern samdrátt á þessu sviði núna, en er það nokk- uð nema eðlileg aðlögun viðskipta- legrar tískusveiflu að veruleika markaðarins? Það eru fluttir inn nokkur hundr- uð tjónabílar og seljast eins og heit- ar lummur með óverulegum af- slætti, svo að Norðmenn hafa varla undan að þurrka úr þeim sjóinn til að koma þeim í hendur óþreyju- fullra íslendinga. Þjóðin er á þriggja milljarða króna happdrættis- og bingófylleríi árlega. Hún byggir sumarbústaði út um allar trissur. Hún er með stærsta húsnæði á mann á norðurhveli jarð- ar. Hún fyllir það húsnæði af fleiri heimilistækjum og dýrari húsgögn- um en nokkur þjóð önnur. Hún er með eitt dýrasta og virkasta heil- brigðiskerfi í veröldinni. Hún er með dýrt og viðamikið skólakerfi, þótt deila megi um, hversu virkt það sé til menningar- og efnahagslegs árangurs. Hún er með næsthæstu meðaltekjur á mann í heiminum á síðastliðnu ári. — Og í landinu er ekkert atvinnuleysi, heldur skortur á fólki til starfa nálega hvert sem lit- ið er. Samt heyrum við daglega í fjöl- miðlum, að ef — það er talið mjög vafasamt — hér hafi ríkt góðæri sl. hálft annað ár — þá hafi það farið framhjá þorra vinnandi fólks. Samt hefur meðaltalskaupmáttur fólks hækkað meira nú í þessu góðæri en nokkru sinni fyrr á svipuðu tíma- skeiði. Nú segja sumir verkalýðsfor- ingjar, að þetta sé haugalygi. Meðal- tölin Ijúga segir Gudmundur J. og

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.