Helgarpósturinn - 25.02.1988, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 25.02.1988, Qupperneq 15
FRÉTTASKÝRING OFFIÁRFESf ING - ENDIIRNÝJUN Miklar fjárfestingar eiga sér staö í fiskiskipaflotanum Töluverö endurnýjun á sér nú stad á fiskiskipaflotan- um. Mörg skip eru í smídum erlendis og einnig er um aö rœöa breytingar og endurbœtur á þeim skipum sem fyrir eru. Þessar fjárfestingar hafa ekki veriö mikiö til um- rœöu opinberlega, þrátt fyrir aö þœr hljóöi upp á nokkra milljaröa. Menn hljóta þó aö velta fyrir sér hvernig aö þessum málum sé staöiö og hvort um eölilega og jafn- framt nauösynlega endurnýjun á fiskiskipum íslendinga sé aö rœöa eöa óraunhœfan fjáraustur, nú á tímum kvótafyrirkomulags og of fjölmenns fiskveiöiflota. EFTIR JÓN GEIR ÞORMAR MYND JIM SMART Heildarfjöldi íslenskra þilfarsfiski- skipa var 1. janúar 1988 899 skip, samtals að stærð um 117.500 rúm- lestir. Talsverð fjölgun varð á árinu ’87 á smábátum, 10 tonna og minni, sem að stórum hluta voru smíðaðir innanlands og ekki féllu undir kvótakerfið. Um þá verður ekki fjall- að hér heldur horft til stærri fiski- skipa. í raun og veru eru takmarkanir á innflutningi fiskiskipa til landsins. Það byggist á því að samkvæmt kvótakerfinu veitir sjávarútvegsráð- herra fiskiskipum veiðileyfi og þau mega einungis veiða það ákveðna magn sem leyfið hljóðar upp á. Fiskiskip án veiðileyfis er því lítils virði. Samkvæmt reglugerð nr. 51/1987, sem sett er með stoð í lögum nr. 97 frá 1985 um stjórn fiskueida 1986—87, koma aðeins til greina við veitingu leyfa til íslenskra fiskiskipa þau skip sem leyfi fengu á árinu 1985 og ekki hafa horfið varanlega úr rekstri síðan þá. Að auki fá ný og nýkeypt fiskiskip veiðileyfi ef önnur sambœrileg skip hverfa úr rekstri í staðinn. Sumir hafa vegna þessa haldið því fram að með tilkomu kvótans hafi núverandi útvegsmönnum verið veitt einkaleyfi á að nýta aðalauðlindir íslensku þjóðarinnar, fiskistofnana. Það sem átt er við með sambæri- legu skipi er að rúmtala hins nýja skips má ekki vera meira en 33% hærri en hins gamla. Með rúmtölu er átt við margfeldi hönnunarmál- anna, þ.e. lóðlínulengdar, mótaðrar lengdar og mótaðrar dýptar. Rétt er að taka strax fram að kvótinn eykst ekkert þó að nýtt og stærra skip komi í stað hins gamla. Talsverð óánægja hefur ríkt með að ekki mætti stækka skipin meira en um 33% til þess að þau teldust „sambærileg". Stækkunarheimildin er jafnan nýtt til fullnustu þegar skipin eru endurnýjuð. Þetta virðist annarlegt við fyrstu sýn vegna þess að kvótinn eykst ekkert. En á síð- ustu árum hafa kröfur um aðbúnað skipverja og meðferð afla aukist verulega, t.d. krefst kerjavæðing um borð í skipunum verulega meira pláss. Þetta er sögð ástæðan fyrir því að heimildirnar eru nýttar. Áður- nefnd reglugerð mun nú vera til endurskoðunar og þá sérstaklega með tilliti til stækkunarákvæðisins. LÁN FRÁ FISKVEIÐA- SJÓÐI Gangurinn í þessu, þegar menn vilja endurnýja fiskiskip, er sá að þeir sækja um lán til Fiskueidasjóds en hið almenna bankakerfi er lokað fyrir lánum af þessu tagi. Fiskveiða- sjóður veitir umsækjanda lán með þeim stærðarskilyrðum á nýja skip- inu sem þegar eru nefnd. Ef um nýtt eða notað erlent skip er að ræða getur lánið mest orðið 60% af verði þess. Síðan eru teikningarnar send- ar til tœknideildar Fiskifélags Is- lands sem skoðar þær og metur. Að því loknu fer málið til sjávarútvegs- ráðuneytisins sem staðfestir yfir- færslu veiðiréttinda milli skipanna eftir að hið eldra hefur endanlega verið strikað út af fiskiskipaskrá Siglingamálastofn unar. Fiskveiðasjóður lánar eins og áð- ur kom fram 60% af kostnaði nýrra skipa sem smíðuð eru erlendis. Lán- ið er þó ekki veitt fyrr en skipið er tilbúið, kostnaður liggur fyrir og gamla skipið strikað út af skipaskrá. Sjóðurinn aðstoðar kaupendur við að taka bráðabirgðalán á meðan á smíðinni stendur. Síðan opnað var á ný fyrir kaup og nýsmíði á fiskiskip- um 1986 hefur Fiskveiðasjóður veitt 40 lánsloford til kaupa á nýjum eða nýlegum skipum frá útlöndum, en ekki nema hluti þeirra hefur enn komið til afgreiðslu. Þegar gerðar eru breytingar á skipum, s.s. lengingar eða yfirbygg- ingar, er meðferðin í kerfinu svipuð en málið fer ekki til sjávarútvegs- ráðuneytisins nema um sé að ræða ný eða nýkeypt skip, sem fá veiði- leyfi í fyrsta sinn eftir 1. janúar 1986. Þeim skipum má ekki breyta nema með samþykki ráðuneytisins. Þetta er gert til þess að menn geti ekki komið með skip til landsins og farið síðan með þau beint í stækkun. Það liggur líka Ijóst fyrir að kvóti skipa sem lengd eru eða stækkuð á annan hátt eykst ekkert. Það er svo hlutverk Siglingamála- stofnunnar að fylgjast með því að öryggi þessara nýju og breyttu skipa sé í samræmi við reglur. FJÖLDI SKIPA í SMÍÐUM Það eru aðallega tvö fyrirtæki sem sjá um framkvæmd útboðs og samningsgerð vegna nýrra og breyttra fiskiskipa, ráðgjafarfyrir- tækin Skipatœkni hf. og Rádgarður. í samtali við HP sagði Bárður Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Skipatækni, að á þeirra vegum væru fjórir skuttogarar í smíðum erlendis, auk nokkurra smærri skipa. Ennfremur hefðu verið gerðir samningar um smíði á fleiri togur- um, en þeir ættu eftir að hljóta sam- þykki. Sem dæmi um skip í smíðum nefndi hann 50 m skuttogara frá skipasmíðastöðinni Flekkefjord Slip íNoregi, sem afhenda ætti í sumar til Útgerðarfélags Daluíkinga, 53 m skuttogara sem Símek t Noregi hefði í smíðum fyrir Stálskip iHafnarfirði og ennfremur línu- og togbát fyrir Norðurtangann á ísafirði sem af- henda ætti um áramót. Bárður sagði að ekkert væri um yfirbygg- ingar á þeirra vegum núna og lítið um lengingar. Hólmadrangur væri á leið til landsins úr lengingu í Þýskalandi, lengja ætti Guðbjörgina frá ísafirði um 10 m í Þýskalandi í mars og apríl og búið væri að bjóða út lengingu á Breka frá Vestmanna- eyjum. Steinar Viggósson hjá Ráðgarði sagði að árið 1986 og fyrri hluta ’87 hefði orðið mikil hreyfing í þá átt meðal útgerðarmanna að fara út í endurbætur og breytingar á göml- um skipum, m.a. loðnu- og báta- flota, enda væri flotinn gamall og þarfnaðist mikils viðhalds og endur- bóta. Þetta hefði breyst þegar líða tók á árið ’87. Áhuginn hefði þá beinst meira að nýsmíði, menn urðu bjartsýnir, hættu að setja pening í gömlu bátana og fóru að hugsa um að byggja nýtt. Síðan er tók að nálg- ast áramótin færðist þetta aftur í sama farið, menn voru óvissir um fiskveiðistefnuna og nú væri á nýjan teik meiri áhugi fyrir endurbótum. Steinar sagði að á þeirra vegum væri enginn togari í smíðum. Þeir hefðu meira haft með nýsmíði á bát- um að gera og stærst væri 30 m langt skutskip. FRAMKVÆMDIR FYRIR 6 MILLJARÐA? Þessar endurnýjanir á skipastól landsmanna fara svo til alveg fram erlendis. Steinar Viggósson sagði að verkefnin væru boðin út bæði inn- anlands og erlendis og besta tilboð- inu væri tekið. Ljóst væri að sam- keppnisaðstaða innlendra skipa- smíðastöðva væri erfið. Undir þetta tók Bárður Hafsteinsson. Hann sagði að innlendar skipasmíða- stöðvar væru ekki samkepnisfærar og þar munaði töluverðu. Það væri ekki til á einum stað í landinu það járniðnaðarmannalið sem þyrfti til að unnt væri að byggja skip á sam- keppnishæfu verði. Islenskar skipa- smíðastöðvar hefðu ekki einu sinni alltaf fyrir því að bjóða í verkin. Þess má geta að erlendar skipa- smíðastöðvar geta haldið verði niðri með lágum launum eins og í Fóllandi eða háum ríkisstyrkjum eins og t.d. í Noregi. Þeirri tölu hefur verið varpað fram að nú stæðu yfir og búið væri að semja um nýsmíðar og breyting- ar fyrir um 6 milljarða króna. Bárður Hafsteinsson sagði að ný- smíðar þær sem Skipatækni hefði með að gera kostuðu 1,9 milljarða og lengingarnar 100 milljónir. Hann taldi töluna 6 milljarða allt of háa, kvað 4 milljarða nær lagi. Steinar Viggósson vildi ekki nefna neina kostnaðartölu við þær framkvæmdir sem Ráðgarður væri með í gangi. Hann sagði að mest hefði verið að gera hjá þeim '86 og þá hefðu þeir verið með samninga upp á meira en milljarð. Hann taldi 6 milljarða ekki fjarri lagi sem kostnaðartölu framkvæmda nú. NAUÐSYNLEG ENDURNÝJUN? En er hér um að ræða nauðsyn- lega endurnýjun á fiskiskipaflotan- um eða ótímabærar fjárfestingar hjá atvinnuvegi sem um áraraðir hefur kveinkað sér undan slæmri stöðu? Bæði Bárður og Steinar, ásamt Jóni B. Jónassyni, skrifstofu- stjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, voru á því að um eðlilegar fjárfest- ingar væri að ræða. Steinar sagði að margir sem væru með rótgróna út- gerð stæðu frammi fyrir því að hætta eða fá sér nýtt skip. Bárður og Jón bentu báðir á að við lifðum að mestu ieyti á sjávarútvegi. Miðað við þensluna í þjónustugreinunum, s.s. verslun, væru fjárfestingarnar í skipum smámunir einir saman. HP sló á þráðinn norður til Dalvík- ur, til Útgeröarfélags Daluíkinga, sem fær 53 m togara í sumar frá Noregi, og spurði hvort útgerðin gengi svona vel að svona fjárfesting væri möguleg? „Það er nú betra að svara þessu þannig að við ætlum að láta útgerðina ganga það lengi að við þurfum að endurnýja skipin,” sagði Valdimar Bragason útgerðar- stjóri, „við erum að skipta út 15 ára gömlu skipi og það er ekki hag- kvæmt að reka það öllu lengur." Valdimar sagði að gerðar hefðu ver- ið rekstraráætlanir fyrir skipið og samkvæmt þeim ætti skipið að geta borgað sig. Aðspurður sagði hann að menn væru vissulega fjárfest- ingaglaðir en almennt séð teldi hann ekki að um offjárfestingu væri að ræða. HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.