Helgarpósturinn - 25.02.1988, Blaðsíða 16
„Þegar vinstri handleggurinn var
oröinn stífur af snúningnum hélt
annar lögregluþjónninn mérá með-
an hinn barði handleggnum í borð-
brún..."
Sveinn Jónsson
tvítugur Eskfirðingur.
„Ég vissi ekki þá að eigandi bílsins
og lögreglan sem harðast gekk
fram voru feðgar." Sveinn Jónsson
tvítugur Eskfirðingur.
„Þegar konan í fatahenginu á lög-
reglustöðinni vissi að ég var frá
Eskifirði byrjaði hún að svívirða
mig og Austfirðinga almennt, sagði
alla sem þaðan koma hið versta
Sveinn Jónssoh
tvítugur Eskfirðingur.
Þeir standa ekki bara í slagsmálum í lögreglunni. Eins og sést á
myndinni stendur lögreglan sólarhringsvakt við hvalbátana jafnt á
nóttu sem degi og hefur gert þaö um nokkurra vikna skeiö. Sam-
kvœmt heimildum innan lögreglunnar óttast menn mjög aö hval-
friðunarmenn kunni ad grípa tilskemmdarverka á hvalbátunum og
því sé fylgst náiö meö mannaferöum á bryggjunni — meö œrnum
tilkostnaöi. Þegar Ijósmyndari HP mundaöi vél sína í fyrrinótt köll-
uöu þeir sem vöru á vaktinni umsvifalaust á liösauka og kröföust
þess aö fá aö vita deili á Ijósmyndaranum. Eins og sést af myndinni
voru tveir bílar á staönum...
„Ég vil ekki verda til aö spilla fyrir því aö
almenningur geti lagt fram fé til aö kaupa
klukkuna meö því aö ríkiö fari aö kaupa
hana!
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra.
„Þetta er röð mistaka og dæmi um
hvernig ekki á að fara að hlutun-
um." Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónn.
„Fundir eru aldrei tímaeyðsla en
min afstaða til deiliskipulagsins
breyttist ekkert."
Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra.
„Ég segi bara að sumt fólk er ansi
lengi að skrifa nafnið sitt."
Davíð Oddsson
borgarstjóri.
„Sé þetta satt eru yfirvöid Reykja-
víkurborgar búin að glata glórunni."
Sighvatur Björgvinsson
alþingismaður.
„Ég skora á leikhúsgesti að leggja
af þann ósið að fagna miölungs-
góðri frammistöðu með því aö
standa upp og klappa."
S.H. um sýningu á Vesalingunum.
„Þegar laxinn skilaði sér ekki úr
loninu í árnar fórum við út i það að
flytja hann upp."
Reynir Guðbjartsson
bóndi á Kjarláksvöllum.
„Þegar strákurinn sem var að setja
laxinn upp á vörubílspall spurði
okkur í hvora ána við vildum fiskinn
missti ég aila lyst á veiði. Þetta er
svipað og að selja veiðileyfi í fisk-
húð." Pálmi Gunnarsson
söngvari og stangveiðimaður.
„Eff Dallas væri ópera syngi ég
hlutverk Bobbys.##
Gunnar Guðbjörnsson tenór.
E
lins og flestum mun vera
kunnugt stendur leiklistarlíf hinna
svokölluðu litlu leikhúsa með
miklum blóma um þessar mundir.
Eitt slíkt leikhús er Gránufjelagið
og stendur til að á þess vegum hefj-
ist sýningar á Endatafli eftir Sam-
uel Beckett. Það hefur ekki gengið
þrautalaust að setja sýninguna upp,
fyrst var áætlað að hún kæmist á
svið fyrir jólin, en hún hefur tafist af
ýmsum orsökum það sem af er ár-
inu og ekki er enn séð fyrir endann
á því hvenær sýningin fer á fjalirnar.
Einn af aðalleikurunum, Arni Pét-
ur Guðjónsson, hætti nýlega við
þátttöku enda upptekinn í öðru litlu
leikhúsi, Frú Emelíu, þarsem hann
fer með eina hlutverkið í Kontra-
bassanum...
SVOLITIL SAMTIMAGATA
LARETT
1 Krefjandi bóta
5 Kveinkun
7 Kindahljóð
8 Mælitæki
9 Hús með draugi
10 Stæri sig
12 Stórveldi (erl. skst.)
14 Málvinur Steingríms
(stytt).
15 Umdeilt stórhýsi
LÓÐRÉTT
1 Svefngögn
2 Ógróðavænleg húsdýr
3 Fiskeldisstöð
4 Höfundur íslandselda
6 lllan grun
7 Hljóð kúa
11 Leifar kúa
13 Vonsvikinn lóðarkaup-
andi (skst.)
t 3
5 n 1 s
1 í
10 1
!
r
STJÖRNUSPÁ
Helgina 26.—28. febrúar
Það er nauðsynlegt fyrir þig að horfa fram á
veginn. Einhver þér nákominn leitar til þin
með fjárhagsvandræði sín og i þetta skipti
máttu ekki hika við að láta álit þitt í Ijós. Per-
sóna af hinu kyninu kemur þér í opna
skjöldu. Þú ættir að ve ra heima við á laugar-
daginn og sinna fjölskyldunni meira en þú
hefur gert. Þú færð lang þráð svör við málum
sem skipta þig miklu varðandi framtíðina.
NAUTIÐ (21 /4—21 /5|
Peningar virðast skipta þig miklu máli þessa
dagana. Þér virðist sem togað sé i þig úr öll-
um áttum en eina rau nhæfa lausnin er sú að
velja öryggið framar öllu. Varastu að gera
nokkuð sem getur sært fjölskyldu þina og
ræddu þau mál við hana, sem þér finnst
áhætta að taka afstöðu til upp á eigin spýtur.
Happatalan þín er fjórir.
Föstudagurinn verður óvenju góður og fólk
tekur meira mark á þér en þú hefur átt að
venjast. Vinur þinn snýr við blaðinu og sam-
þykkir áætlanir þínar, sem þú hefur löngu
borið upp. Vertu samvinnuþýður en haltu
þinum skoðunum á lofti. Ekki er ólíklegt að
þessar áætlanir muni tengjast ferðalagi. Um
helgina upplifirðu hvað það er að vera
staddur á réttum stað á réttum tíma.
KRABBINN (22/6-20/71
Þú færð hól fyrir vel u nnin störf og timabært
fyrir þig að fara fram á bætt kjör. Þú þarft á
sjálfsaga að halda til að fá málum þínum
framgengt. Einhver af gagnstæðu kyni hef-
ur mikla þörf á að ræða út um ástamálin við
þig. Það er þó ekki af þeim sökum sem þú
ferð skyndilega að leggja meiri áherslu á út-
lit þitt.
LJÓNIÐ (21/7-23/81
Svörin liggja kannski ekki í augum uppi, en
þú færð forvitni þinni eigi að siður svalað.
Ræddu út um málin við vin þinn, öðruvísi
geturðu ekki vitað hvað er að gerast hjá ykk-
ur. Sá eiginleiki þinn að eiga auðvelt með að
hlusta á aðra getur komið sér vel fyrir ein-
hvern nákominn. Einhver hvetur þig til að
nýta hæfileika þína betur en þú hefur gert til
þessa.
MEYJAN (24/8—23/9)
Það er tímabært fyrir þig að leggja drögin að
stóru samkvæmi sem lengi hefur verið beð-
ið eftir. Mesta vinnan lendir á þér og því
betra að vera vel undirbúinn. Þú ættir að
horfa á lífið af meira raunsæi, að öðrum kosti
verðurðu fyrir vonbrigðum. Það er ekki allt
sem sýnist. Persóna úr Fiskamerkinu gegnir
þýðingarmiklu hlutverk i í lífi þínu þessa dag-
ana.
VOGIN (24/9-22/101
Óþægiieg aðstaða kemur upp varðandi
starf þitt en þú munt eiga auðvelt með að
leysa úr flækjunni. Foreldri eða annar þér ná-
kominn mun hafa góð áhrif á þig varðandi
eitthvað sem þú hefur lengi þráð að fram-
kvæma. Hlustaðu vandlega á ráðleggingar
og farðu eftir þeim. Þiggðu boð þar sem þú
átt von á að hitta fólk sem þú hefur ekki séð
lengi.
SPORPPREKINN (23/10—22/11
Ráðagerðir varðandi atvinnu þína reynast
koma betur út en þú áttir von á. Hikaðu ekki
við að taka að þér verkefni sem krefjast mik-
ils af þér. Rómantíkin er á næsta leiti í lífi
þinu en þú verður að fara að taka ábyrgð á
hlutunum sjálfur. Persóna sem þú átt ekkert
sameiginlegt með hefur áhrif á þig til hins
betra.
BOGMAÐURINN (23/11—21 /12]
Þú ryður öllum hindrunum úr vegi og nærð
takmarki þinu. Árangurinn kemur í Ijós um
leiðog þú líturá málin frá öllum sjónarhorn-
um. Varastu að vera of fastheldinn á gamlar
hugmyndir sem nýtast þér ekki lengur.
Horfðu björtum augum fram á veginn og
láttu ekki svartsýni ná tökum á þér.
STEINGEITIN (22/12—21/1
Þú mátt alveg láta það eftir þér aö vera svo-
lítið eigingjam. Fólk hefur ekki nema gott af
því að sjá að þú ert ek ki háður neinum nema
sjálfum þér. Hugmyndirnarsem þúfærðeru
góðar og þú þarft ekki að óttast að bera þær
undir þann sem þú treystir. Njóttu lífsins og
þrátt fyrir að minningar úr fortíðinni sæki að
þér skaltu ekki láta þær hindra þig of mikið
í daglegu lifi.
VATNSBERINN (22/1-19/2]
Það er orðið timabært fyrir þig að hugsa
meira um heilsuna og reglubundnara liferni.
Gættu að skapinu og varastu að stilla sam-
starfsfólki þínu upp við vegg. Það sem helst
háir þér þessa dagana er að þú ert með of
mörg járn í eldinum. Óvenju margiróska eft-
ir nærveru þinni á næstunni en mundu að
stilla skemmtunum i hóf.
FISKARNIR (20/2-20/3!
Þérfinnst þú þurfa að vera á ferðinni næstu
daga og átt erfitt með að einbeita þér. Yngri
fjölskyldumeðlimir þurfa á athygli þinni að
halda. Haltu loforð þín. Breytingar verða á
högum þinum og munu þær koma þér
skemmtilega á óvart. Ástamálin taka
óvænta stefnu og þú átt von á að kynnast
nýjum aðila.
40 HELGARPÓSTURINN