Helgarpósturinn - 25.02.1988, Page 32
PENINGAR & MARKAÐUR
Ny loggjöf um fjarmógnunarfyrirtækin miðar aö aukinni neytendavernd,
auknum upplysingum og eftirliti — og bættri hagstjorn Verður Steingrim-
ur einn að berjast við grau „ofreskjuna"
FJÁRMÖGNUNARFYRIRTÆKIN TVÖFÖLI
NÝRRI LÖGGJÖF EKKI ÆTLAÐ AÐ HAMLA STARFSEMI ÞEIRRA SEGIR VIÐSKIPTARÁÐHERRA
Verðtrygging fjárskuldbindinga gerði mögulega stofn-
un, starfrækslu og frekari þróun verðbréfamarkaðar hér
á landi. Síðustu árin hefur þessi geiri fjármagnsmarkað-
arins vaxið með ævintýralegum hraða uns í lok síðasta
árs var svo komið að þeir fjármunir, sem renna gegnum
þessi nýju fjármálafyrirtæki, eru orðnir um 10% af heild-
arinnlánum bankakerfisins. Hefur mörgum staðið stugg-
ur af þessum vaxtarhraða og er skemmst að minnast yfir-
lýsinga utanríkisráðherra um stjórnlausan „gráan mark-
að“, „ófreskju" sem verði að stöðva, áður en hún leggur
efnahagslíf landsins í rúst.
Sjálf hafa nokkur stærstu fjár-
mögnunarfyrirtækjanna komið sér
saman um reglur, sem þau telja full-
nægjandi starfsramma um umsvif
þeirra og ekki sé rétt að setja starf-
20 HELGARPÓSTURINN
semi þeirra frekari skorður fyrst um
sinn, en lofa þeim að þróast óáreitt-
um eftir því sem markaðurinn býð-
ur, og þar til þau hafa fundið sér það
form, sem hér á við.
Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðs-
son, hefur hins vegar talið eðlilegt
og nauðsynlegt að samræmd lög-
gjöf taki til alls fjármagnsmarkaðar-
ins í heild, þannig t.d. að bönkum og
sparisjóðum séu ekki reistar þröng-
ar og nákvæmar lagalegar skorður,
meðan fjármögnunarfyrirtækin fái
að leika nánast lausum hala. Með
því sé hið opinbera að mismuna hin-
um ýmsu geirum þessa markaðar
og skekkja samkeppnisgrundvöll
þeirra.
Á sl. ári var vöxtur innlána í bönk-
um og sparisjóðum um 37%. Á
sama tíma var vöxtur verðbréfa-
sjóðanna um 186% eða úr 1.260
milljónum í um það bil 3,6 milljarða.
Fjármögnunarleigufyrirtækin uxu
þó enn hraðar því að umsvif þeirra
hvorki meira né minna en fjórföld-
uðust — úr tæpum milljarði 1986 í
4,2 milljarða 1987 — eða um 337%.
Samanlagt eru verðbréfasjóðir og
fjármögnunarleigufyrirtæki með
um 8 milljarða króna umleikis á sl.
ári. Með þessu er hlutdeild þessara
fyrirtækja af heiidarinnlánum orðin
rúm 10%, því að reiknað er með, að
heildarinnlán bankakerfisins hafi
numið um 70 miiljörðum króna í
árslok. Það er því ekki lítill hluti af
sparifé landsmanna, sem er saman
kominn í höndum tiltölulega fárra
fyrirtækja, þótt fráleitt sé að ætla,
að það séu þessi fyrirtæki fyrst og
fremst, sem hafi spennt upp vexti
undanfarin ár. Hins vegar má álykta
sem svo að þau eigi sinn þátt í því
þensluástandi, sem hefur skapast,
einkum með því að auðvelda inn-
streymi erlends lánsfjár.
í stuttu viðtali við HP sagði við-
skiptaráðherra, að drög að frum-
varpi til laga, er tæki til starfsemi
verðbréfasjóða og fjármögnunar-
leigufyrirtækja, afborgunar- og
greiðslukortaviðskipta, væru nú á
lokastigi í ráðuneytinu og yrðu
væntanlega nú í vikunni send þeim
aðilum á fjármagnsmarkaðnum,
sem málið varðaði, til umsagnar.
Frumvarp þetta yrði svo lagt fram á
yfirstandandi þingi og væntanlega af-
greitt þaðan sem lög. Jón kvað það
engan veginn ætlunina með þessu
frumvarpi að reisa þröngar skorður
við þessari nýjung á fjármagns-
markaðnum heldur að skapa sam-
ræmdar leikreglur og tryggja að all-
ir aðilar sætu við sama borð í þess-
um efnum. Megintilgangur laganna
væri í senn aukin neytendavernd og