Morgunblaðið - 22.12.1968, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1968
Armann Örn Armannsson, viðskiptafr.:
Úrelt atvinnugrein ?
NOKKRAR HUCLEIÐINCAR FRÁ
NHS-VIKUNNI í LUNDI -
DAGANA 6-12 október fór fram
í Lundi í Svíþjóð, ráðstefna við-
skiptiafræðmeflma allra Norð-
urlanda, svoköl'luð NHS-vika.
Það eru engar stórfréttir, að
haldin sé norræn ráðstefna, en
svo var til vandað og svo mik-
ilsverð mál rædd, að mínum dómi
að ég vil með þessum línum koma
á framfæri nokkru af því, sem
ráðstefnan opnaði augu mín fyr
Ráðstefnan fjallaði um: Marg-
þjóða fyrirtæki — það að gera
fyrirtækin alþjóðleg — undir-
búning okkar fyrir væntanlega
þróun næstu ára. Auk 120 við-
skiptafr. frá öllum viðskiptahá
skólum Norðurlanda voru komn
ir til Lunds um 40 menn, for-
stjórar alþjóðafyrirtækja og
stofnana svo sem Esso, SKF, Uni
lever, ASEA, SAS, CEI, Atlas
Copoco, ICC o.fl. o.fl.
Þetta eru iðnaðarfyrirtæki,
sem í áratugi hafa markvisst ein
beitt sér að sölu á alþjóðamörk-
uðum,
— sem vita hvað þessir mark-
aðir þurfa.
— sem mánuð eftir mánuð
fylgjast með aðgerðum keppi-
nautanna,
— sem leggja fram tugmilljón
ir ár hvert, til þess aðð einmitt
þeirra framleiðsla henti heimin-
um á morgun.
Þetta eru fyrirtæki, sem hafa
vaxtið og hailda áfram að vaxa
Þetta eru fyrirtæki, sem ís-
lenzk iðnaðarfyrirtæki þurfa að
mæta og í mörgum tilfellum deila
með mörkuðum, ef hinn fyrir-
hugaði vöxtur íslenzks iðnaðar
á að verða staðreynd.
Ein er sú atvinnugrein, sem
helzt getur gert þennan vöxt
mögulegan.
Atvinnugrein með gífurlega
útflutninigsmöguleika — fullkom
lega ónotaða.
Atvinnuigrein, sem sóar verð-
mætum og mögu'leikum sínum
meir en flestir aðrir.
Atvinunigrein án raunverulegs
sambamds við sinn framtíða
markað — sem heldur góðu sam
bandi við gamlla viðskiptavini,
en gleymir öllum þeim nýju.
Atvinnugrein, þar sem hlut-
hafamir eingönigu hugsa um
kostnaðinn nýzkir ag skammsýn-
ir.
Atvinnugrein, sem hefur betra
hráefni en flestir aðrir.
Atvinnugrein með óendanlega
og ónotaða möguleika á heims-
markaðnum, en nú framleiðir mik
ið af úreltum vélum, án góðs sam
bands jafnvel við sinn heima-
markað.
Þessi atvinnugrein, sem mjög
var til umræðu á fyrmefndri
ráðstefnu, er skólakerfið, réttara
sagt hinir svonefndu æðri skól-
ar. Öll þessi framlteiðsla lögfræð
inga, lækna ag ,,húmanista“,
sem fram hefur farið ag fer að
miklu leyti enn fram algerlega
án vitundar um að heimurinn er
vinnumarkaður þeirra.
Það eru háskólamenn með al-
þjóðlega samkeppnishæfa mennt
un, sem við verðum að framleiða,
það sem ekki er samkeppnisfært
alþjóðlega, verður ekki beldur
samkeppnisfært á heimamarfcaði
í heiminum, eins ag hann
RÖDULL
Iverður 1980—90, en þá
fyrst reynir af alvöru á þekk-
ingu þeirra, sem framleiddir
eru í dag.
Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki
minnzt á , ekki eytt einni
mínútu í sjónvarpi eða útvarpi,
í umræður um hið mikilvæga
vandamál, bæði fyrir æskuna og
landið í heild, hvernig hægt er
að gera kennslukerfi okkar al-
þjóðlegt, enda þótt rætt sé lang-
tímum saman um nauðsyn stór-
iðju og útflutningsiðnaðar.
Stúdentum sífjölgar, þó svo að
innan fárra ára verði ómögulegt
að taka við aukningu í Háskól-
ann, eingöngu vegna húsnæðis-
skorts — og það er framleitt að
miklu leyti án sambands við þörf
markaðsins, vinnukraftur, sem
íslenzkt þjóðlíf og atvinnulíf
hefur enga þörf fyrir.
Á sama tíma er heimur fullur
óleystra verkefna, sterk og
spennandi alþjóða þróun og sog
eftir fólki, sem raunverulega vill
gera eitthvað.
Fyrir 10-20 árum vildu: banda
rísk fyrirtæki ráða Bandaríkja-
menn, ensk, Englendinga, frönsk
Frakka.
Nú er ástandið annað, alþjóða
fyrirtæki og stofnanir vaxa ört
upp og þær leita eftir alþjóð-
legum vinnukrafti.
Á ráðstefnunni í Lundi var
bent á aðstöðu Norðurlandaþjóð
anna, hvað snerti hlutleysið, að
hver Bandarík j amaður, Rússi,
Frakki, Englendingur og Belgi
hafi blóð á höndum sér í huga
margra og séu litnir hornauga.
Norðurlandaþjóðirnar hafi traust
þær hafi opinn markað.
Fyrir hundrað árum flúði
alda atvinnulausra bænda og
vinnumanna frá öllum Norður-
lönduim yfir hafið til hins inýja
Heims. Það þótti þjóðarógæfa þá
og þykir sumstaðar enn. Nú er
vitað að milljónir útflytjenda frá
Norðurlöndum hafa komið á ó-
metanlegum samböndum fyrlr
hinn norræna iðnað á nýjum
mörkuðum.
Hvort sem fólki líkar betur
eða ver, mun koma ný alda út
og innflytjenda í vinnumarkað
framtíðarinnar, alda velmennt
aðra háskólamanna.
Ég vona að með þessum lín-
um hafi ég vakið eihhverja til
umhugsunar. Ég hef frekar gagn
rýnt en komið með leiðir til úr-
bóta. Það var á ráðstefnunni í
Lundi bent á margar leiðir, til
úrbóta og hver rnaður, sem kunn
ugur er kennslumálum og hugs-
ar um þau mál, sem ég hef
minnzt á getur þegar séð marg-
ar.
Það var mikið rætt um að
koma á fót norrænni samvinnu í
alþjóðlegum anda, svo sem með
stofnun norrænnar stofnun-
ar fyrir alþjóðleg störf o.fl. Það
er von mín að við láitum ekki
okkar hlut eftir liggja í nor-
rænni samvinnu. En fyrst og
fremst þarf sú endurskoðun,
sem nú er alltaf verið að tala
um, á íslenzku kennslukerfi að
gegnsýrast af því, að við erum
ekki einir í heiminum og að
heimurinn nú er ekki eins og
hann verður eftir 20-30 ár, og
æskan sem verið er að mennta í
dag mun þá fara með völd. Það
verður að reyna að gera mennt-
unina í dag, raunhæfa fyrir dag-
inn á morgun.
Reykjavík, 29 október 1968
Ármann Örn Ármannsson
ír.
Skreyttar jólaskálar og körfur
Opið alla daga
GAMLA GRÓÐRARSTÖÐIN
Laufásvegi 74 Sími 13072.
Ur og klukkur
fjölbreytt úrvul
— óbreytt verð
PIERPOm
SWISS
Helgi Sigurðsson
Skólavörðustíg 3 — Sími 11133.
úrsmiður
Orðsending
frd veitingahúsinu RÖÐULL
Um jólin og áramótin verður opið sem hér
segir:
Mánudag 23. dag. (Þorl.messa) Til kl. 11.30
Fimmtudag 26. des. (annan jólad. til kl. 1
Föstudag 27. des. til kl. 1
Laugard. 28. des. til kl. 1
Sunnudag 29. des. til kl. 1
Mánudag 30. des. til kl. 11.30
Þriðjudag 31. des. (gamlárdag) til kl. 2
Miðvikudag 1. jan. (nýársdag) til kl. 2
Sérstök athygli skal vakin d því að
d gamldrsdag og nýjdrsdag verður
aðgangseyrir aðeins kr. 25.oo eins og
aðra daga. Framreiddur verður
hdtíðamatur bæði kvöldin.
Hljómsveit Magmisar Ingimarssonar leikur
Söngvarar: Þuríður Sigurðardóttir
og Vilhjálmur Vilhjálmsson
Opið í dag til kl. 10 s.d.
Flestar okkar vörur voru keyptar
Úrvals jólaepli, 4 teg. og Jaffa-appelsínur í heilum og hálfum
kössum. Mjög hagstætt verð.
Niðursoðnir ávextir, mikið úrval á gamla verðinu.
Mikið úrval af kryddi, hnetum, möndlum, marsipan og öðrum
bökunarvörum.
Opið alla daga til kl. 22 síðdegis í Skipholti 70.
fyrir gengisfellingu
Grenimel 12 — Sími 17370.
Skipholti 70 — Sími 31275.