Morgunblaðið - 13.12.1975, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1975
Akureyrarliðin
leika saman
SlÐUSTU leikirnir sem fram fara
í íslandsmótinu í handknattleik
fyrir áramót veröa nú um helgina.
Er þar um að ræða m.a. þrjá leiki
í meistaraflokki kvenna og einn
leik í 2. deild karla. Kvennaleik-
irnir verða eftirtaldir:
Njarðvík: IBK — Fram (laugar-
dagur kl. 14.40)
Hafnarfjörður: FH — Valur
(sunnudagur kl. 16.30)
Garðahreppur: UBK — KR
(sunnudagur kl. 15.00)
Leikurinn í 2. deild verður milli
Akureyrarliðanna Þórs og KA og
fer hann fram á Akureyri kl.
14.00 á morgun. Er þar um þýð-
ingarmikinn leik að ræða. KA
þarf að vinna leikinn til þess að
verða með í baráttunni á toppnum
í 2. deildinni, en Þór þarf að
vinna til þess að bæta stöðu sína
við botninn í deildinni. Leikir
þessara félaga hafa oftast verið
jafnir og átakamiklir og má búast
við að svo verði einnig nú.
A thugasemd við
grein um karete
I FRAMHALDI við karatefþrótt-
ina f Morgunblaðinu 2. desember
s.l. finnst okkur rétt að taka eftir-
farandi fram til að fyrirbyggja
allan misskilning.
I umræddri grein er svo frá
sagt, að hér á landi muni um 300
manns æfa karateíþróttina og að
æfingar fari fram í húsnæði Júdó-
félags Reykjavíkur að Brautar-
holti 18. Af þessu mætti ráða að
einu karateæfingarnar hér í borg
færu fram á áðurnefndum stað,
en svo er ekki.
Jimmy Rogers hinn þeldökki
leikmaður Armannsliðsins fagn-
ar eftir sigur f vetur. Ekki er
ósennilegt að honum gefist tæki-
færi til þess eftir lefk Armenn-
inga við UMFN f dag, þótt aldrei
sé að vita.
Jafnframt starfsemi Karatefé-
lags Islands, hefur Karatefélag
Reykjavíkur gróskumikla starf-
semi í æfingasal félagsins að Ár-
múla 28, þar sem nú æfa reglu-
lega um 250 manns.
Með fullri virðingu fyrir Reyni
Santos og Karatefélagi Islands,
vonumst við til að grein þessi
fyrirbyggi allan misskilning.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Stjórn Karatefélags Reykjavíkur
Andrés Hafliðason.
Sauma varð
50 spor
JÖNAS Jóhannesson, hinn
snjalli miðvörður úr körfu-
knattleiksliði UMFN meiddist
illa f æfingaleik fslenzka
landsliðsins við úrvalslið frð
Keflavfkurflugvelli I fþrótta-
húsinu á vellinum f fvrra-
kvöld. Jónas hugðist ná send-
ingu sem var að fara útaf, er
hann skall utan f óvarinn mið-
stöðvarofn með þeim afleið-
ingum að hann fékk svöðusár á
handlegg. Var Jónasi komið til
læknis og varð að sauma 50
spor f handlegg hans.
Jónas verður þvf ekki með
UMFN á móti Armenningum f
dag, og verður frá keppni
a.m.k. fram yfir áramót.
Landsliðið átti ekki f erfið-
leikum með nefnt úrvalslið f
æfingaleiknum — sigraði með
60 stiga mun.
Leiðrétting
I frásögn Morgunblaðsins af
þjálfaramálum i knattspyrnu f
gær, urðu okkur á þau mistök,
að sagt var að tsfirðingar lékju
í 3. dgild. Undu Isfirð-
ingar þvf illa að vonum, þar
sem þeir unnu sig upp i 2.
deild s.I. haust ásamt liðum
Þórs og KA frá Akureyri. Biðj-
umst við velvirðingar á mistök-
um þessum.
Tveir leikir í 1. deild
körfoknattleiksmólsiiis
TVEIR leikir verða f 1. deildinni
f körfuboltanum um helgina og
fara þeir fram á Seltjarnarnesi
kl. 14 f dag. Eru það leikur
Armanns og UMFN, sem hefst kl.
14, og leikur Vals og tR, sem er
strax á eftir.
Telja verður sigur Armanns f
fyrri leiknum Ifklegri, þeir hafa
átt betri leiki að undanförnu, og
hafa ekki tapað leik f mótinu, en
Njarðvíkingarnir hafa gert sér
grein fyrir þvf, að ósigur þeirra f
dag gerir möguleika þeirra á að
verða meðal efstu liðanna f mót-
inu að engu. Armenningar munu
örugglega berjast vel f dag, og
það er engin hætta á þvf að Njarð-
vfkingarnir sem ætla að fjöl-
menna á leikinn að venju hvetji
ekki sfna menn til sigurs.
Ekki er vitað þegar þetta er
skrifað hvort Þorsteinn
Hallgrfmsson verður með IR f
dag, það er fremur ólfklegt. En>
hvort sem það verður eða ekki
ætti IR að sigra örugglega.
Einn leikur verður f 3. deild í
dag, leikur UMFL og fBK sem fer
fram á Laugarvatni kl. 14. — A
morgun eru tveir leikir f m.fl. kv.
IR leikur við KR og eru þar tvö
sterkustu Iiðin á ferðinni, og
Fram leikur við UMFS. Leikirnir
hefjast kl. 18. Eftir þessa leiki
verður hlé á Islandsmótinu fram
yfir áramót.
gk.
Þessa skemmtilegu mynd af Björgvini Björgvinssyni tók Friðþjófur f landsleik
tslands og Noregs á dögunum. Björgvin og félagar verða f eldlfnunni um helgina,
þar sem fslenzka landsliðið tekur þátt f f jögurra liða æfingamóti f Danmörku.
Tel mig ekki hafa náð lápiarkinu
— sagði Stefán Hallgrímsson
— Ég hefði lagt alla áherzlu i að
komast I tugþrautarkeppni s.l. haust,
heföi ég vitaö aö tugþrautarmetiö
væri ekki gilt, sagði Stefán Hall-
grlmsson I viðtali við Morgunblaðið I
gær, en eins og skýrt var frá I blað-
inu á miðvikudag þá mun met
það sem hann setti I sumar,
7740 stig, ekki hljóta stað-
festingu þar sem meðvindur var yfir
leyfilegu himarki I einni
keppnisgrein þrautarinnar. —
Það stóð til að Islenzka tugþrautar-
landsliðið yrði sent I landskeppni
sem fram fór I Wales s.l. haust. og
eftir að FRl ákvað að senda ekki lið
þangað óskaði ég og Ellas Sveinsson
eftir þvl að fá að fara og keppa sem
gestir og þá jafnvel á eigin kostnað.
Þá fékk ég hins vegar þær fréttir að
af þessari keppni yrði ekki. og var
svo óheppinn að Einar Frimannsson
sem á sæti I varastjórn FRÍ og hefur
jafnan reynzt mér innan handar var
erlendis, þannig að ekki var unnt að
gera meira I málinu. Það kom svo á
daginn að um misskilning var að
ræða hjá stjóm FRÍ — keppni þessi
fór fram, og þar hefði ég átt mögu-
leika á að bæta mig og ná Olympfu-
lágmarkinu, en ég tel mig ekki hafa
náð þvl enn. þar sem umrædd tug-
þraut var ógild.
Það var Stefán sjálfur sem óskaði
eftir þvt að vindmælir yrði notaður I
tugþraut þeirri sem hann setti fs-
landsmet sitt I. en mikill misbrestur
er jafnan á notkun hans. Þannig mun
hann t.d. ekki hafa verið notaður er
Ellas náði þvl afreki sem fær stað-
festingu sem bezta tugþrautarafrek
sumarsins, 7212 stig. og þvl tæpast
á hreinu hvort það afrek er löglegra
en 7740 stiga afrek Stefáns og betra
afrek sem Eltas náði þá. Ætti það að
vera sjálfsagt mál að nota vindmæl-
inn ævinlega á frjálslþróttamótum,
en ekki ráða það af blakti fána, hvort
meðvindur muni vera löglegur eða
ekki. Frjálslþróttamönnum er enginn
greiði gerður með þvl að hafa það
Blakað út og suður
I dag verður einn leikur i 1.
deild íslandsmótsins í blaki og
verður hann í íþróttaskemmunni
á Akureyri. Þar eigast við botn-
liðið og toppliðið í deildinni, IMA
og IS, og hefst leikurinn kl. 16:00.
Á morgun verða þrír leikir. I 1.
deild keppa UMFL og Þróttur og
verður sá leikur á Laugarvatni. I
2. deild keppa UBK og USK og að
honum loknum keppa Víkingur
og Skautafélagið. Báðir þessir
Ieikir verða í iþróttahúsi
Kennaraháskólans og hefst fyrri
leikurinn kl. 17:00. — Af leikjum
helgarinnar er Laugarvatnsleik-
urinn einna mest spennandi og
verður gaman að fylgjast með
hvernig Þrótti vegnar í „Ijóna-
gryfjunni“, en því hefur verið
spáð að Laugdælir muni ekki tapa
þar leik í vetur.
Staðan í blakinu
ekki á hreinu hvort um lögleg afrek
er að ræða eða ekki.
—■ Auðvitað vonast ég til þess að
ná Olymplulágmarkinu, sagði Stefán
I gær, — en það er óneitanlega
dálltið slæmt fyrir mig að fá ekki
vitneskju um að afrek mitt sé ekki
gilt fyrr en eftir svo langan tlma. Þá
sagði Stefán að þegar hann talaði
um Olymplulágmarkið þá miðaði
hann við lágmark það sem Alþjóða
Olymplunefndin setti, 7650 stig, en
sem kunnugt er þá er lágmark það
sem FRÍ setti nokkru lægra, eða
7500 stig.
Varla er vafi á þvl að Stefán nær
umræddu lágmarki. Þótt meðvindur
kæmi honum til góða I einni grein I
þrautinni I sumar þá voru aðstæður
að öðru leyti ekki hagstæðar. Var
brautin t.d. að mestu undir vatni er
sfðasta grein þrautarinnar, 1500
metra hlaupið, fór fram, auk þess
sem hliðarvindur var bæði I stangar-
stökkinu og I spjótkastinu, en sllkt
þykir ekki vænlegt til að bæta
árangur I þeim greinum.
L U T HRINUR SKOR STIG
is 31 3 0 9- -2 163— 113 6
VlKINGUR 4 3 1 10—4 201— 136 6
ÞRÓTTUR 3 2 1 7—5 149— 144 4
UMFL 3 2 1 7—3 137- ■81 4
UMFB 4 1 3 3—9 139— ■193 2
IMA 4 0 4 0- -12 87— 182 0
Innanfélagsmót
ÍR heldur innanfélagsmót í
kúluvarpi karla og kvenna í
Laugardalshöllinni kl. 13.00
n.k. laugardag.
Jólatréssala
TENNIS- og badmintonfélag
Reykjavíkur gengst fyrir jóla-
tréssölu í hinu nýja húsi sínu
við Gnoðavog 1 (Glæsibæ).
Verður þar opið allar helgar og
öll kvöld fram til kl. 22. Um leið
og fólk á þangað erindi til
kaupa á jólatrjám gefst því
tækifæri til þess að skoða nýja
húsið, en framkvæmdum við
það hefur miðað allvel áfram og
mikill áhugi er hjá þeim TBR
mönnum að geta sem fyrst farið
að stunda íþrótt sína f eigin
húsnæði.
Haukar
AÐALFUNDUR handknatt-
leiksdeildar Hauka verður
haldinn 15. desember n.k. kl.
20.00 í Sjálfstæðishúsinu í
Hafnarfirði.
Uppskeru-
hátíð UBK
LAUGARDAGINN 13. desember
verður haldin f Félagsheimili
Kópavogs hin árlega uppskeru-
hðtfð knattspyrnudeildar Breiða-
bliks. Hátíðin hefst kl. 14.00 og til
hennar er boðið öllum knatt-
spyrnumönnum Breiðabliks og
aðstandendum þeirra, svo og
áhugafólki um knattspyrnu,
meðan húsrúm leyfir.
A hátfðinni verða afhent verð-
laun til hinna fjölmörgu knatt-
spvrnuflokka, sem sigruðu f mót-
um s.I. keppnistfmabil. Þá verður
valinn knattspyrnumaður ársins f
hverjum aldursflokki. Vmislegt
fleira verður til skemmtunar, svo
sem stuttu ðvörp og kvikmynda-
sýning.