Morgunblaðið - 13.12.1975, Qupperneq 40
Drekkið
11
DAGAR
TIL JÓLA
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1975
Forsætisráð-
herra endur-
skoðar svarbréf
til Wilsons
Eins og sagt hefur verið frí f
fréttum fór brezki ráðherrann
Hattersley með munnleg skilaboð
frá Geir Hallgrfmssyni, forsætis-
ráðherra til Wilsons forsætisráð-
herra Bretlands þegar brezki ráð-
herrann hélt héðan af landi brott
17. nóv. s.l. eftir að viðræður um
fiskveiðar Breta f fslenzkri land-
helgi höfðu farið út um þúfur.
Geir Hallgrfmssyni forsætisráð-
herra, hefur borizt svar f bréfi frá
Wilson dagsettu 29. nóv. Sagði
Geir f samtali við Morgunblaðið f
gær að ekkert nýtt hefði komið
fram f bréfinu og ekkert minnst á
viðræður eða slfkt, en Geir kvaðst
hafa verið með tilbúið bréf með
athugasemdum til Wilsons er at-
burðirnir áttu sér stað fyrir aust-
an land á fimmtudag, en með
tilliti til þeirra myndi hann nú
endurskoða bréf sitt.
Skriður á
viðræður
ASÍog Ví
TORFl Hjartarson sáttasemjari
tjáði Morgunblaðinu f gærkvöldi
að í dag, laugardag, yrði fundur
með samninganefndum ASl og
Vinnuveitenda, en f hvorri nefnd
kvað hann vera um 20—30 menn.
Þá kvað Torfi lækna koma til
fundar í dag kl. 2, en þeir höfðu
verið á fundi með sáttasemjara,
borg og ríki, frá kl. 4 á föstudag
og til kl. 4 aðfaranótt laugardags.
Sjálfvirk sím-
stöð í Varmahlíð
Mælifelli — 11. desember.
UNDANFARNA daga hafa allir
bæir í Seyluhreppi, Stokkhólmi í
Akrahreppi en sá bær er vestan
vatna, Staðarhreppsbæir á Lang-
holti og í Sæmundarhlíð verið
tengdir sjálfvirkri símstöð í
Varmahlíð. Stöðin er gerð fyrir 90
númer og eru þau öll uppgengin
nú þegar, samkvæmt upplýsing-
um Halldórs Björnssonar stöðvar-
stjóra.
Fyrirsjáanlegt er því, að mjög
bráðlega verður að stækka stöð-
ina enda fjölgar fólki í Varmahlíð
og eru þar nokkur íbúðarhús i
smíðum og verkstæðisbygging.
Liðug 30 ár eru frá því sfmstöð
kom í Varmahh'ð og lögðust þá
niður stöðvarnar á Víðimýri, Völl-
Framhald á bls. 22
SKEMMDIRNAR A ÞÓR — Varðskipið Þór kom inn til Seyðisf jarðar um hádegisbil f gær. Hér er skipið komið upp að bryggju og menn eru
að virða fyrir sér skemmdir þær sem urðu af völdum brezku dráttarbátanna. Fleiri myndir eru f miðopnu og þar eru einnig viðtöl við
Helga Hallvarðsson skipherra á Þór og Hermann Sigurðsson 2. stýrimann, sem skaut fyrstu skotunum fþessu þorskastrfði við Breta.
Freigátumar sigla með
fallbyssumar mannaðar
BREZKU freigáturnar á miðunum hafa nú tekið upp
þann hátt á miðunum fyrir austan að sigla stanzlaust um
miðin með mannaðar fallbyssur. Samkvæmt upplýs-
ingum Landhelgisgæzlunnar sendi Guðmundur Kjærne-
sted, skipherra á Tý, skeyti um fimm-leytið í gær, þar
sem hann tilkynnti þessa hegðan freigátanna. 1 skeytinu
sagðist Guðmundur aldrei á sfnum skipstjórnarferli í
þorskastrfðum hafa orðið slfks hátternis var.
Týr var eina varðskipið á
miðunum fyrir austan í gær, en
varðskipið Þór var þá inni á
Seyðisfirði, en hélt út í gærkveldi
eftir ásiglingarnar f fyrradag. Þá
kom Ægir til Reykjavfkur eftir
22ja daga gæzluferð, en Óðinn Iét
úr höfn f sína fyrstu eiginlegu
gæzluferð eftir endurbyggingu
skipsins. Skipstjóri á Óðni er
Höskuldur Skarphéðinsson, þar
sem Sigurður Árnason gat ekki
farið með skipið sckum veikinda.
Upphaflega hafði verið ákveðið
að Höskuldur færi með Baldur en
eins og kunnugt er af fréttum
hafa komið upp bilanir bæði á
skiptiskrúfu skipsins, svo á spili. 1
gær horfði þó betur um þessar
bilanir, þar sem einhver hluti
þeirra reyndist vera stillingar-
atriði. Þá mun Árvakur brátt láta
úr höfn undir stjórn Pálma Hlöð-
verssonar.
A miðunum í gær voru tvær
freigátur, Brighton og Galatea og
höfðu þær mannaðar byssur og
létu f ljós þann ásetning sinn, að
ef fslenzkt varðskip notaði sfnar
byssur, myndu freigáturnar
Hlaut 214 árs fangelsi
fyrir að ræna konur
KVEÐINN var upp f sakadómi sl.
fimmtudag dómur f máli er höfð-
Lesbók Morgunblaðs-
ins kemur ekki út um
þessa helgi vegna anna í
prentsmiðju.
að var á hendur Sævari Arnfjörð
Hreiðarssyni fyrir rán. Hann
hafði f aprfl sl. brotizt að degi til
inn f hús eitt f miðbænum og hitti
þar fyrir roskna konu sem var ein
heima I húsinu. Réðst Sævar á
hana og heimtaði af henni pen-
inga. Misþyrmdi hann konunni og
vann spjöll á húsmunum, en
hvarf sfðan á brott og hafði með
sér veski með nokkrum þúsund-
um króna.
1 júlí var Sævar síðan að nóttu
til á ferli í miðbænum og fór þá í
þjófnaðarskyni inn um opinn
glugga. Þar var einnig ein kona
fyrir og réðst Sævar á hana, tók
hana hálstaki og sló hana í andlit-
ið um leið og hann heimtaði af
henni peninga. Konan leitaði að
peningum en fann þá ekki og
réðst þá Sævar að henni aftur,
misþyrmdi henni en hvarf síðan á
braut.
Sævar var dæmdur í 2ja ára og
6 mánaða fangelsi og einnig til
greiðslu bóta og málskostnaðar.
Hann er 21 árs að aldri en hefur
áður verið dæmdur fyrir auðg-
unarbrot og fleira.
einnig gera það. Þá voru á miðun-
um dráttarbátarnir.
Veður var sæmilegt á miðunum
f gær.Togaraflotinn var nær allur
á svipuðum eða sömu slóðum og
hann var í fyrradag þ.e. um 40
mílur f norðaustur frá Glettinga-
nesi. Landhelgisgæzlan taldi 35
togara að veiðum.
Freigátunum er nú að berast
liðsauki frá Bretlandseyjum, þar
sem freigátan Leander fór frá
Clyde í fyrrakvöld áleiðis til Is-
lands. Segir jafnframt í frétta-
skeytum frá Bretlandi að Le-
ander muni leysa Galateu af
hólmi, en hún hcfur þó verið mun
skemur á miðunum en Brighton.
Þá mun verndarskipið Star Sirius
að öllum lfkindum hafa komið á
Islandsmið í dag frá Lerwick á
Hjaltlandseyjum, en þangað fór
skipið til þess að taka eldsneyti og
nýja áhöfn.
Uppboðsmálið í Hafnarfirði:
LÍKUR AÐ EIGANDIHALDI
HÚSINU ÁN UPPB0ÐS
SAMKVÆMT upplýsing-
um bæjarritarans í Hafnar-
firðV Guðbjörns Ólafsson-
ar, eru allar líkur á að ekki
verði af nýju auglýstu upp-
boði á húseigninni Hraun-
brún 18 í Hafnarfirði, sem
getið hefur verið um í
fréttum og þáverandi lög-
fræðingur Hafnarfjarðar-
kaupstaðar bauð í á sínum
tíma.
Bæjarsjóður Hafnar-
fjarðar hefur fallið frá
kröfu sinni um uppboð þar
sem búið er að semja við
eiganda Hraunbrúnar 18
um skuldina, m.a. vegna
verksamnings sem bærinn
hefur gert við hann.
Þá mun búið að ganga
frá skuldum við fógeta og
Landsbankann og ef allir
aðilar falla frá kröfu um
uppboð fellur það sjálf-
krafa niður og eigandinn,
Bergur Jörgensen held-
ur sínu húsi án þess að
þurfa að bjóða í það.
Keppni Friðriks
log Guðmundar frestað
„ 1 dag stóð til að þeir stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson og
Guðmundur Sigurjónsson tefldu
nokkrar skákir á hið fræga ein-
vígsskákborð úr heimsmeistara-
keppninni en það er einn af vinn-
ingum f happdrætti Skáksam-
bands Islands. Af óviðráðanleg-
um orsökum verður að fresta
þessari keppni til næsta laugar-
dags. Keppnin mun fara fram f
salarkynnum Samvinnubankans
og verða höfð uppi sýningartöfl
til að auðvelda áheryendum að
fylgjast með skákunum.