Morgunblaðið - 18.03.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
3
Hallgrímskirkja:
Orgelið kostar 12 millj.
ORGEL í Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti, sem nú er í byggingu og
stefnt er að því að vígja árið 1986, mun kosta um tólf milljónir króna, að
því er Hörður Áskelsson organisti kirkjunnar sagði á blaðamannafundi
er Listvinafélag Hallgrímskirkju efndi til í gaer. Hörður sagði, að nú væru
til í orgelsjóði milli 600 og 700 þúsund krónur, eða um 7% af heildar-
kostnaði við orgelkaupin.
Að sögn Harðar líður senn að
því að taka ákvörðun um orgel-
kaup, eigi það að vera tilbúið á
vígsludegi kirkjunnar. Um tvö ár
er venjulegur afgreiðslutími
sérsmíðaðra hljóðfæra af þessu
tagi. Hann sagði enn ekki ákveðið
hvar orgelið yrði keypt, en vænt-
anlega yrði víða leitað um tilboð,
og erlendir aðilar væru raunar
þegar teknir að kanna málið.
Hörður sagði ekki ákveðið hvar í
kirkjunni hljóðfærið verður stað-
sett, í upphafi hefði verið gert ráð
fyrir því uppi aftantil í kirkjunni,
það er á hefðbundnum stað, en nú
í seinni tíð hefðu einnig komið
fram hugmyndir um að hafa
orgelið í hliðarskipi niðri á aðal-
gólfi, nær altari og predikunar-
stól. Hann kvað Hallgrímskirkju
munu taka um 1.000 manns í sæti
þegar þar að kæmi, og væri því
Ijóst að nauðsynlegt gæti verið að
hafa orgelið nær presti og kór en
upphaflega hefði verið ráðgert.
Að minnsta kosti væri ljóst að
annað orgel yrði að vera í kirkj-
unni ef aðalorgelið yrði uppi.
Að sögn Harðar er talið nauð-
synlegt að hið fyrirhugaða orgel
verði 70 radda, til að fullnægja
þeim kröfum er gera þyrfti til
húss sem kirkjunnar, sem ætti að
verða með besta hljómburð hér á
landi. Stærsta hljóðfæri nú væri
orgel Akureyrarkirkju, með 43
röddum, sem ekki væru taldar
nægja, hvað þá minni hljóðfæri i
öðrum kirkjum, ef flytja ætti
mikil kirkjuleg tónlistarverk.
Hugmynd að orgeli í Hallgríms-
kirkju, sem þýskur aðili hefur gert.
Þetta er sjötíu radda hljóðfæri, og
eru pípur þess um tíu metrar, og
mcsta hæð hljóðfærisins frá gólfi
milli 15 og 20 metrar. Neðst fyrir
miðju á hljóðfærinu má sjá hvar
nótnaborðið er fyrirhugað, og til að
gefa hugmynd um stærðina, sagði
llörður Askelsson að þar uppí væri
tæp mannhæð frá gólfi.
Stúdentaráð:
Viðræður
um meiri-
hiutasam-
starf ekki
hafnar
EKKI eru ennþá hafnar formlegar
umræður um meirihlutasamstarf í
Stúdentaráði Háskóla íslands eftir
kosningarnar til Stúdentaráðs, sem
fram fóru síðastliðinn þriðjudag, en í
þeim kosningum vann Vaka einn full-
trúa af vinstrimönnum.
Undanfarin tvö ár hefur Vaka og
Félag umbótasinnaðra stúdenta
farið með meirihlutann í samein-
ingu og að sögn Gunnars Jóhanns
Birgissonar, formanns Stúdenta-
ráðs, en hann er fulltrúi Vöku, verð-
ur fundur hjá Vöku um helgina þar
sem lagt verður fyrir hvort bjóða
eigi Umbótasinnum áframhaldandi
samstarf eða ekki. Bjóst hann við
að það yrði úr og yrði það þá senni-
lega tekið fyrir á fundi hjá Umbóta-
sinnum sem áætlaður er á mánu-
dagskvöld.
Vestmannaeyjar:
Aflabrögð
þokkaleg
Vestmannacyjum, 17. marz.
AFLABRÖGÐ hafa verið þokkalega
góð síðustu vikurnar og nú um miðj-
an mánuðinn var vertíðaraflinn kom-
inn ( 11.740 lestir. Enn vantar um
3.000 lestir upp á að náð sé sama
aflamagni og á sama tíma í fyrra, en
aflinn nú er rúmum 2.000 lestum
meiri en 1981.
Meðalafli í löndun hjá netabát-
um er 10,5 lestir og 8,7 lestir hjá
trollbátum. Togaraaflinn er nú
mun minni en undanfarnar vertíð-
ar. Hjá þeim er meðalafli í löndun
125,3 lestir. Þrír netabátar hafa nú
lagt á land meira en 400 lestir frá
áramótum, Suðurey, 490 lestir,
Heimaey 476 lestir og Sighvatur
Bjarnason 439 lestir. Huginn er
aflahæstur trollbáta með 318 lestir.
Breki er með mestan afla togar-
anna, 732 lestir, Vestmannaey er
með 660 lestir, Sindri 523 lestir og
Klakkur 472.
Netabátar verða að taka upp net
sín þriðjudaginn 29. marz og mega
ekki leggja þau aftur í sjó fyrr en 5.
apríl. Páskahroturnar víðfrægu
heyra nú orðið fortíðinni til. Ekki
er annað að heyra á sjómönnum en
þeim lítist sæmilega vel á vertíðina
í vetur, páskarnir eru nú snemma á
ferðinni og búast menn við góðum
aprílmánuði, verði tíðarfar skap-
legt.
H.KJ.
MALLORKA
PÁSKAFERÐ
„á gömlu gengi"
og auk þess allt að helmings afsláttur fyrir börn
Mallorka er vöknuð af vetrardvalanum líf og fjör, sólskin og sjór.
Páskaferðin er tilvalið tækifæri til að taka forskot á sumarið, páskarnir eru einnig
mjög heppilegur tími því aðeins fáir vinnudagar fara í fríið, þú átt því mestallt sumarfríið enn eftir.
Komið og leitiö nánari upplysinga, nýr litprentaður bæklingur og video.
cncMiw
Ferðaskrifstofa, iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580. c